Fréttablaðið - 17.05.2002, Síða 12
FRÉTTABLAÐIÐ
17. maí 2002 FÖSTUDACUR
GJAFADAGAR í KRINGLUNNI
16. - 18. MAÍ
Nokia 3310
13.990kr.
með Kjarnaáskrift
Léttkaup
1.295 kr. á mánuði
Heildarverð 15.540 kr.
Frftt stofngjald!
Þú hringir
f rítt í 4
með GSM Kjarnaáskrift
Verslun
Kringlunni
Islandssfmi
islandssimi.is
Undankeppni HM kvenna í knattspyrnu:
Leikið gegn
Rússum á morgun
knattspyrna Á morgun fer fram í
Rússlandi leikur íslands og Rúss-
lands í undankeppni HM kvenna í
knattspyrnu. Leikurinn hefst
STAÐAN í RIÐLINUM :
LIÐ LEIKIR STIG
Rússland 4 7
Ítalía 4 6
Spánn 5 6
fsland 3 4
klukkan 11 og virðist sem ísland
geti stillt upp sínum sterkustu
leikmönnum. Rússland er í efsta
sæti í riðlinum og er liðið mjög
sterkt. íslenska liðið náði góðum
leik gegn Rússum í fyrri leiknum
á KR-velli síðasta sumar og skildu
liðin jöfn 1-1. Efsta liðið í riðlinum
kemst beint í úrslitakeppni HM
2003 en liðið í öðru sæti fer í um-
spil um þáttöku þar. Neðsta liðið
fer í umspil um fall í næsta styrk-
leikaflokk fyrir neðan. ísland er í
ágætri stöðu þegar liðið hefur lok-
ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ
Þær íslensku fögnuðu 2-0 sigri gegn þeím
ítölsku í haust. Þá var sett áhorfendamet á
kvennaleik.
ið helmingi leikja sinna, með ein-
um sigri, einu jafntefli og einu
tapi. Island leikur við Spán á
Kópavogsvelli 30. maí og Ítalíu úti
8. júní. ■
Hefur áhyggjur af
að vera spáð sigri
Dagbjartur Einarsson er einn helsti stuðningsmaður Grindavíkurliðsins
í knattspyrnu og segist þrátt fyrir allt trúa spánni undir niðri.
fótbolti Grindvíkingum var spáð
sigri í Símadeild karla og kom það
mörgum á óvart. Dagbjartur Ein-
arsson fyrrverandi útgerðarmað-
ur í Grindavík er einn þeirra.
„Þessi spá fer ekkert vel í mig.
Þótt undir niðri trúi ég þessu auð-
vitað. Ég held bara að það sé
hætta á að strákarnir slævist við
þetta og það verður aukin pressa
á þeim. Þess vegna hef ég áhyggj-
ur af þessu.“
Dagbjartur hefur engar skýr-
ingar á reiðum höndum um ástæð-
ur þessarar spár. Þó að sjö leik-
menn séu farnir frá félaginu og
aðeins þrír hafi komið í staðinn,
þá er ákveðinn kjarni sem hefur
spilað saman lengi, sem verður
áfram í sumar. „Ólafur Bjarnason
og Siniza Kekic sem er stórhættu-
legur í framlínunni og Grétar
Hjartarson er eldsnöggur. Svo er
Scott Ramsey kominn í fínt form
því hann var hér í vetur í stað
þess að fara heim eins og hann
hefur gert. Ég held að það spili
líka inn í að Bjarni Jóhannsson er
FÖCNUÐUR HJÁ GRINDVIKINCUM
Grindvíkingar hafa næga ástæðu til að
fagna í sumar ef spáin gengur eftir.
farinn að þjálfa hér og ég sagði
það líka við mína menn. Hann er
viðurkenndur þjálfari og við vit-
um að það er svo ótrúlegt hvað
sálfræðin spilar stórt hlutverk.
Maður getur séð það til dæmis í
Englandi hvað allt snýst við þegar
búið er að reka eða ráða þjálfara.
Alveg sami mannskapur í liðinu
en það er eins og allt breytist. Það
er hugarfarið; það ekki nóg að
sparka bara boltanum, höfuðið
verður að vera með,“ segir Dag-
bjartur. Hann segir menn í bæn-
um almennt ekki ánægða með
spádóminn. „Þú veist nú hvernig
þetta var með KR-ingana árum
saman, það var nú ákveðin sorgar-
saga. Nú eigum við einmitt að
byrja mótið hjá þeim.“
DAGBJARTUR EINARSSON
Dagbjartur hefur fylgt Grindavíkurliðinu í
gegnum tíðina og hér var hann mættur á
KR-völlinn.
Dagbjartur viðurkennir þó að
það geti líka verið kostir við þenn-
an spádóm, því hann gæti gert það
að verkum að fleiri kæmu á völl-
inn og stuðningurinn við liðið því
aukist, ásamt því að fjárhagurinn
vænkast. „Já, peningarnir skipta
nú ekkert neinu smá máli í þessu,
því rniður," sagði Dagbjartur, sem
hefur hætt störfum sem forstjóri
Fiskaness og snúið sér að öðru:
„Nú var ég að koma úr fjárhúsun-
um því það stendur yfir sauðburð-
ur og er að fara út í kálgarð að
setja niður kartöflur."
bryndis@frettabladid.is
Islandsmót karla í knattspymu:
Símadeildin hefst
á mánudag
fótbolti Nú fer að líða að þeirri
stund sem flestir knattspyrnuá-
hugamenn bíða eftir í ofvæni í
átta mánuði á ári, en það er upp-
haf íslandsmótsins í fótbolta.
Fyrsta umferðin fer fram á
mánudag, annan í hvítasunnu, og
hefjast allir leikirnir klukkan
17.00, nema FH og Fylkir í
Kaplakrika, sem hefst klukkan
19.15. Grindavíkurliðið, sem var
á dögunum spáð sigri í deildinni,
leikur úti gegn KR. Einn leikur
fer fram á Akureyri, þegar nýlið-
arnir í deildinni KA taka á móti
ÍBV. Verður hann að sögn leikinn
á grasi, þrátt fyrir kuldakastið og
snjókomuna sem reið yfir hluta
landsins fyrir stuttu. Keflavík,
sem var spáð falli tekur á móti
Fram og bikarmeistarar Akra-
ness á móti Þór, sem spáð var
neðsta sætinu. Þórsarar eru ný-
liðar í deildinni eins og hitt Akur-
eyrarliðið, þeir unnu sem kunn-
ugt er 1. deildina í fyrra eftir að
hafa komist upp úr 2. deild árið
áður. ■
FJÖLMENNT Á VÖLLINN
islenskir knattspyrnuáhugamenn geta
loksins farið á völlinn eftir langan vetur.