Fréttablaðið - 17.05.2002, Side 14

Fréttablaðið - 17.05.2002, Side 14
14 FRÉTTABLAÐIÐ 17. maí 2002 FÖSTUDACUR HASKOLABIO HÍOÍIOR&I • 5ÍM! 510 191» • STÆR5I* SÝH!MG*RI|»LD l»H0S!HS i’ Sýnd kl. 5 og 9 YOUCAN COUNT Ofl M£ Imulholland drive kl. 7 og 101 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 SCORPION KINC kL 5,7,9 og 111 |J0HN Q kl. 5.45, 8 og 10.151 HUOíj SmHRH v Bio Sýnd kl. 12, 1, 3, 4, 6, 7, 9, 10, 12 og 1 (Powersýning) Sýnd kl. 2, 5, 8 og 11 [ÍSÖLD m/islenslai tali ~"kl. 12 og 2 ÍSPIDERMAN kl. 2,4, 5, 7, 8,10,11 og 1 (Powesýning) Bönnuð innan 10 ára SlMI 564 0000 - www.smarajjigiis Sýnd kl. 5.45, 8.30 og 10 vrr 380 Sýnd kl. 6.15 og 10 vrr sao WQ Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 vit 377 SHOWTIME ■>'•6 08 8 H55I Vinnie Jones: Tekur lagið með Westlife sviðsuós Fyrrum fótboltaruddinn Vinnie Jones hefur samþykkt að syngja lag með hljómsveitinni Westlife sem verður gefið út á smáskífu um jólin. Lag- ið er tökulag, samið af Sly and the Family Sto- ne, og heitir „Dance to the music“. Westlife eru þessa dag- anna að hljóðrita breiðskífu sem inniheldur nær eingöngu dúetta með frægu fólki. Á meðal þeirra sem taka lagið með strákunum á plötunni eru þær Denise Van Out- en og Billie Piper. Getur verið að þeir hafi fengið hugmyndina eftir velgengni Robbie Williams og Nicole Kidman? ■ Nláliiing fynralla m/mat* Farveland Farveland MALARINNJm Batiarllnd 2 » Kópayoal • Síml; S81 3S00 Láttu þér líða vel! h úsgög n Höfðatúni 12 105 Reykjavík Sími 552 5757 www.serhusgogn.is FRÉTTIR AF FÓLKI jALIG Forsýnd kl. 10 jJIMMY NEUTRON m/ísLtali IBUBBLE BÓY kl. 4, 6 og 8 1 UjJl ÍPÉTUR PÁN m/isl. tali THÉ SCORPION KING 4, 6, 8 og loj^í IMONSTER ni/isl. tali k'Æi Stjórnmálaflokkur í New Jers- ey er að reyna sannfæra rokkarann Bruce Springsteen um að bjóða sig fram til þing- mennsku. Flokk- urinn er þegar byrjaður að safna þeim 800 undir- skriftum sem þarf að skila inn til að framboð rokkarans verði lögmætt. Eini gallinn er að eng- inn í flokknum hefur komið sér á mál við Springsteen sjálfan um málið. Þeir hafa þó reynt síðan í desember að ná tali af honum án árangurs. Þeir vonast því til að söfnunin verði nægileg hvatning til þess að rokkarinn samþykki það að fara í framboð. Framtíð veffyrirtækisins Nap- ster virðist nú endanlega ráð- inn. Nú hefur stofnandinn sjálf- ur hættur störf- um. Fyrirtækið er sagt vera við gjaldþrot. Vefur þeirra og þjón- usta hefur legið niðri síðan í júlí í fyrra og ekkert hefur gengið að fá nægilegt fjár- magn til þess að halda starfsem- inni gangandi. Napster hefur ekki náð að halda sér á floti frá því að úrskurður dómstóla var sá að þjónusta þeirri bryti á rétt- indum plötufyrirtækja. Á meðan blómstrar starfssemi audioga- laxy.com, sem er nauðalík Nap- ster. Tónleikar á Ingólfstorgi á morgun: Sleppum fordómum tónleikar Á morgun verður punkt- urinn settur fyrir aftan vitundar- vakninguna „Sleppum fordómum“ sem hófst í Listasafni Reykjavíkur l.maí síðast- — , n,—i .... liðinn. ■fL '&WF- 'A IJ Tónleik- '• >1 arnir hefj- WiihH Íi7 .... i>* asi kl 16:00 og fram koma margir þekktir tón- listarmenn. Þar má m.a. nefna Ragnhildi Gísladóttur ásamt RaggaJackMagic, Stefán Hilmars- son, Jón Jósep söngvara poppsveit- arinnar í svörtum Fötum, Land & Synir, indversku söngprinsessan Leoncie, Vinabandið, Eyjólf Krist- jánsson, Gvend á Eyrinni og svar Mosfellsbæjar við Lúðrasveit Verkalýðssins sem nefnist Lúðra- verk Sveitalýðsins. Búist er við því að fleiri þekktir tónlistarmenn bætist í hópinn. Auk fagurra tóna verða á staðn- um eldgleypar, trúðar, dansarar og fjöllistamenn. Klukkutíma eftir að dagskráin hefst verður svo sleppt um 5.000 svonefndum fordóma- blöðrum í loftið. Veðurspáin er fín og því allar líkur á því að sumarið mæti á stað- Hundaást Sambíóin frumsýna í dag mexíkósku myndina „Amores Perros“ sem var tilnefnd til Oskarsverðlauna í fyrra. Myndin hefur hlotið fjölda verðlauna. meðal annars verðlaun gagnrýnenda á Cannes há- tíðinni 2000. kvikmynpir Mexíkóska kvik- myndin „Amores Perros“, eða „Hundaást" á íslensku, spyr áhorfendur sína ekki einungis hvað ástin sé heldur svarar því á fremur beittan og blóðugan hátt. Samkvæmt myndinni er ástin tilfinningarkokteill og bragðið súrsætt. Ástin er svik, spenna, dauði, synd, eigingirni, sársauki og von. Hver einasta persóna myndarinnar trúir því að ástin muni á endanum frelsa hana frá þjáningum sínum. í staðinn þurfa þær að kynnast sársauka þess að fyrirgefa og iðrast. Myndin gerist í Mexíkóborg og segir þrjár sögur sem allar tvinnast saman að lokum í einu og sama bílslysinu. Áhorfandinn kynnist tveimur bræðrum sem báðir eru ást- fangnir af sömu konunni. Það einfaldar svo ekki málin að kon- an er eiginkona eldri bróðurins Ramiro sem er ekkert gæða- blóð. Tilveran hefur leikið yngri bróðurinn Octavio grátt og fátt hefur gengið honum í haginn. Hann kemst svo loksins í feitt er hann fer að sjá um ólöglegt hundaat í borginni. Hann hyggst safna nægilega miklu fé til þess að geta fengið eiginkonu bróður síns til þess að stinga af með sér. í annarri sögunni kynnist miðaldra viðskiptamaður því hvernig draumar geta breyst í martraðir. Hann yfirgefur eigin- konu sína og börn til þess að búa með fyrirsætu sem er víst afar einföld í hugsunarhætti. Afleið- ingar bílslyssins valda því að að- stæður breytast og hann neyðist til að takast á við samvisku sína og siðferði. í þriðju sögunni kynnumst við leynimorðingja og fyrrver- andi hermanni sem fær það verkefni að myrða ríkan kaup- sýslumann. Morðið á eftir að draga dilk á eftir sér og hann neyðist til að kveða niður gamla fortíðardrauga sem tengjast dóttur hans. „Amores Perros“ var tilnefnd sem „besta erlenda myndin“ á Óskarsverðlaunahátíðinni í fyrra. Myndin er gerð af leik- stjóranum Aljeandro Gonzales Inarritu og er margverðlaunuð, hirti aðalverðlaunin á kvik- myndahátíðinni í Chigaco, verð- laun gagnrýnenda á Cannes há- tíðinni árið 2000, var valin „besta myndin“ á AFI kvik- myndhátíðinni í Los Angeles og á Tokyo kvikmyndahátíðinni. biggi@frettabladid.ls KVIKMYNDIR Eru þið s Skoðanir á nýjustu Star Wars myndinni verða skiptar, svo mikið er ljóst. Nýja myndin er af nýja skólanum, ekki tilraun Lucasar til þess að endurfanga tilfinningu eldri myndanna. Það sem er að: Leikur er stíf- ur á köflum eins og hann er reyndar í öllum Stjörnustríðs- myndum. Hayden (Anakin Skywalker) er stífur í fyrstu en bætir svo upp fyrir það með sannfærandi töktum í drama- tískari senunum. Ástarsagan milli Anakins og Amidölu er af- greidd snaggaralega. Líklegast vegna þess að myndin er það stútfull af sögufléttum að hún fær fyrir vikið lítið pláss. Það sem rokkar: Engir jóla- sveinar eða börn, nema Jar Jar sem sést aðeins í tæpar 3 mínút- ur. Lucas þræðir sögufléttur nýju trilógíunnar og þeirrar gömlu saman á vitsmunalegan hátt. Grunnurinn að falli Anak- ins er lagður og virðist á bjargi byggður. Tæknibrellurnar?? Óaðfinnanlegar. Hasarinn stopp- ar nánast ekki í gegnum alla myndina. Veislan er slík að ómögulegt er að kyngja öllum STAR WARS: EPISODE 2-ATTACK OF THE CLONES kökubitunum í einu. Yoda og Obi-Wan hafa aldrei verið betur heppnaðir en nú. Niðurstaða; betri en „Phantom Menace" og „Return of the Jedi“. Síðri en „Star Wars“ og „Empire Strikes Back“. Birgir Örn Steinarsson

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.