Fréttablaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 22
22
FRÉTTABLAÐIÐ
17. maí 2002 FÖSTUDAGUR
• N-1 bar í Keflavík. Vinsæll
skemmtistaóur á besta stað í
Keflavík. Auðveld kaup.
• Góður og vaxandi söluturn í
Grafarvogi. Velta 2,7 MKR á
mánuði.Verð aðeins 4,5 MKR.
• Lúxus snyrtistofa í miðbænum.
Gott tækifæri fyrir nýútskrifaðan
snyrtifræðing. Eigandi til í að
hafa umsjón sem meistari.
Auðveld kaup.
• Fiskréttaverksmiðja í lítilli starf-
semi. Góð tæki, húsnæði,
vörumerki og uppskriftir.
Auóveld kaup.
• Skemmtilegt fyrirtæki í afþrey-
ingar iðnaðinum sem búið er að
byggja upp með öflugri
markaðssetningu og öflun
fastra viðskiptavina. Hentar
bæði sem sérstakur rekstur eða
í bland með öðrum rekstri.
• Spennandi sérverslun með
notaðan fatnað (second-hand)
í miðbænum.
• Verslunin Dýrið, Laugavegi.
Sérstök verslun með mikla
möguleika.
• Höfum til sölu nokkrar stórar
sérverslanir, heildverslanir og
iðnfyrirtæki í ýmsum greinum
fyrir rétta kaupendur. Ársvelta
100-1000 MKR
• Rótgróin efnalaug í Hafnarfirði.
Mjög vel tækjum búinn. Traust
fyrirtæki í föstum viðskiptum.
Velta um 2 MKR á mánuði.
• Eitt af vinsælustu veitingahú-
sum bæjarins. Mjög mikið að
gera.
• Tveir staðir í þekktri pizza-keðju
til leigu með samtals 6 MKR
mánaðarveltu. Einstakt tækifæri
fyrir unga athafnamenn að
koma undir sig fótunum.
• Verslun, bensínssala og
veitingarekstur í Búðardal. Eigið
húsnæði. Mjög góður rekstur.
Ársvelta 180 MKR og vaxandi
með hverju ári. Besti árstíminn
framundan.
• Heildverslun með þekkt
fæðubótaefni sem aðallega eru
seld í apótek. Ársvelta 20 MKR.
• Veitingastaður í atvinnuhverfi.
Mánaðarvelta 2-3 MKR á
mánuði. Eingöngu opið virka
daga kl. 7-17. Auðveld kaup.
• Lítil en vel þekkt heildverslun
með iðnaðarvélar. Hentar vel
fyrir 1 -2 starfsmenn, sér-
staklega smiði.
• 300 fermetra vinnsluaðstaða
fyrir matvælaiðnað. 40 fm
frystir, 20 fm kælir og ýmis tæki.
Mjög hagstæður húsaleigu-
samningur.
• Lítið plastframleiðslufyrirtæki
sem framleiðir bílahluti. Góð
markaðsstaða.
• Sérhæft fyrirtæki sem setur
lakkvörn á bíla. Gott einka-
umboð, tæki og lager.
Hentugt fyrir tvo menn.
• Rótgróin deild úr fyrirtæki, sala
mælibúnaðar fyrir framleiðslu-
og matvælafyrirtæki. Framlegð
5 MKR á ári.
• Snyrtivörudeild úr heildverslun.
Litalína sem er í nokkrum
góðum verslunum og hægt er
að efla. Hentugt fyrir konu sem
hefur vit á snyrtivörum og
langar í eigin rekstur. Lágt verð.
• Hlíðakjör. Söluturn í góðu hús-
næði í Eskihlíð. Hentugt fyrir
hjón. Auóveld kaup.
• Lítill sport pub í Árbæjarhverfi.
Besti tíminn framundan.
Auðveld kaup.
• Meðeigandi óskast að
matvælafyrirtæki með mikla
sérstöðu. Selur bæði í matvöru-
verslanir og á stofnanamarkaði.
Ársvelta nú um 35 MKR en
getur vaxið hratt.
• Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin)
• Sími 533 4300 • Gsm 820 8658
Afitur í Þjóðleikhúsið
Stjórn íslensku kvikmynda- og
sjónvarpsakademíunnar réði á
dögunum Þórey Vilhjálmsdóttur
framkvæmdastjóra Edduverð-
launanna. Verðlaunahátíðin fer
fram í fjórða skipti 10. nóvember
næstkomandi.
„Þetta er mjög spennandi. Ég
er með fullt af hugmyndum," seg-
ir Þórey. Hún er nýbúin að ljúka
prófum í viðskiptafræði við Há-
skóla íslands og er að hefja störf.
„Ég er heppin að taka við hátíð-
inni núna. Það er komin reynsla
eftir þrjú ár, vitað hvað heppnað-
ist vel og hvað illa.“ Sjálf hefur
Þórey mikla reynslu af fram-
kvæmd svipaðra atburða. Hún
var framkvæmdastjóri og annar
eigenda Eskimo Models og sá
meðal annars um framkvæmd
Futurice-tískuvikunnar, Ford-
keppninnar og V-dagsins. Hún
segist hins vegar ekki meiri
bíófíkill en hver annar.
Verðlaunaathöfnin fer fram í
Þjóðleikhúsinu. Þar fór hún fyrst
fram fyrir tæpum þremur árum.
Síðan flakkaði Edda yfir í Borgar-
leikhúsið og á Broadway. „Þjóð-
leikhúsið er glæsilegt hús. Það
ber þetta vel. Það verður örugg-
lega annað snið á athöfninni en
áður. Ég er með breytingarnar í
hausnum. Margt verður auðvitað
eins og athöfnin verður í beinni
útsendingu í Sjónvarpinu," segir
Þórey.
Edduverðlaunin njóta gífur-
lega vinsælda. Rúmlega 60 pró-
._________Persónan
Þórey Vilhjálmsdóttir var nýlega ráðin
framkvæmdastjóri Edduverðlaunanna.
sent þjóðarinnar hafa fylgst með
afhendingu þeirra undanfarin ár.
Það ætti ekki að breytast í haust
þar sem allt bendir til þess að
kvikmyndaúrvalið verði mikið.
Leikstjórarnir Friðrik Þór Frið-
riksson, Baltasar Kormákur, Ró-
bert Douglas og Dagur Kári Pét-
ursson stefna allir að því að frum-
sýna myndir á árinu. Þangað til
verður Þórey á þönum að sjá til
þess að allt verði til reiðu. ■
ÞÓREY VILHJÁLMSDÓTTIR
Er að byrja að undirbúa Edduverðlaunahá-
tíðina sem ferfram 10. nóvember.
TÍMAMÓT
JARÐARFARIR___________________________
10.30 Halldóra Borg Jónsdóttir, Daltúni
23, Kópavogi, verður jarðsungin
frá Hallgrímskirkju.
13.30 Guðjón Jónsson, Hafnarstræti 47,
Akureyri, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju.
13.30 Helga Stella Guðmundsdóttir,
áður til heimilis Hólmgarðí 40,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju.
13.30 Valgerður Jónsdóttir, Þangbakka
10, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Laugarneskirkju.
14.00 Sölvi Guttormsson, Nestúni 6,
Hvammstanga verður jarðsunginn
frá Hvammstangakirkju.
14.30 James Joseph Dempsey verður
jarðsunginn frá Hvítasunnukirkj-
unni Fíladelfíu, Hátúni 2, Reykja-
vík. Jarðsett verður að Breiðabóls-
stað I Fljótshllð.
15.00 Kristján Elías Kristínsson,
Reykjavíkurvegi 50, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnar-
fjarðarkirkju.
AFMÆLI____________________________
Árni Ibsen er 54 ára.
Ólafur Gíslason er 59 ára.
Þorgils Óttar Matthiesen er 40 ára.
STÖÐUVEITING______________________
Þórey Vilhjálmsdóttir hefur verið ráðin
famkvæmdastjóri Edduverðlaunanna.
ANDLÁT
Guðfreður Guðjónsson lést 5. maí. Út-
förin hefur farið fram.
Sigriður Elín Guðbjartsdóttir, Seljahlíð,
Hjallaseli 55, lést 15. maí.
Dagbjört Hannessína Níelsdóttir, áður
húsfreyja í Elliðaey, Breiðafirði lést 14.
maí.
Guðrún Grímsdóttir, Glitvangi 27, lést
14. maí.
Kristrún Sigtryggsdóttir, frá Kumblavík,
Langanesi, lést 13. maf.
Lilja Sigríður Guðlaugsdóttir, Suðurhól-
um 26, Reykjavík, lést 13. maí.
I FÓLK í FRÉTTUM I
að hafa opið, en með víggirðingu
allt um kring var lítið um viðskipti.
Eigandinn ætlar að taka þessu sem
hverju öðru hundsbiti og segir
blessun að alla jafna sé langt á
milli svona uppákoma. Hann taldi
þó að eðlilegri framgangur hefði
verið að gera fyrirtækjum að loka
dagana sem Natófundurinn stóð
yfir og greiða eðlilegar skaðabæt-
ur fyrir.
George Robertson, lávarður, var
hins vegar hinn reffilegasti
þar sem hann skundaði upp Lauga-
veginn, um klukkan 6 síðdegis að
loknum fundahöldum á miðviku-
daginn. Hann var með nokkurt
föruneyti, en þó var ekki að sjá
lögreglumenn eða áberandi vopna-
burð. Verður það að teljast skrítið
mióað við háar girðingar á funda-
stað að hleypa mönnum svo bara
fótgangandi í bæinn. Hafði sá sem
til sá þó tvo til þrjá fylgdarmenn
lávarðarins grunaða urn að vera
annað og meira en venjulega
túrista þar sem þeir gengu með
honum, herðabreiðir og prýddir
sólgleraugufn.
Meðal eftirkasta Natófundarins
á Hótel Sögu voru vandræði
með símasamband sem hrjáði alla
bygginguna í gær. Tengja þurfti
allt símakerfi upp á nýtt og stóð sú
vinna fram eftir degi. Ekki var
hægt að ná sambandi við skrifstof-
ur Bændasamtaka íslands, en þær
voru teknar undir Natófundinn.
Flestir starfsmenn samtakanna
unnu heiman frá sér og allar síma-
línur samtakanna voru teknar und-
ir fundinn, utan eina. Síðla dags í
gær var enn verið að reyna að
greiða úr símaflækjum í Bænda-
höllinni.
Þá hefur blaðið spurnir af nokk-
urri óánægju meðal forsvars-
manna fyrirtækja sem starfrækt
eru í hótelinu. Rakarastofan fékk
Húsgögn eftir þínum þörfum
hornsófar
stakir sófar
stólar
hvíldarstólar
svefnsófar
veggeiningar
borðstofuhúsgögn og fl.
húsgögn
Höfðatúni 12 105 Reykjavlk Sími 552 5757
www.serhusgogn.is
[ AFMÆLI 1
Heldur veislu eftir tíu ár
Þorgils Ottar Mathiesen viðskiptafræðingur er fertugur í dag. Þorgils,
sem var meðal fremstu handknattleiksmanna þjóðarinnar um árabil,
fór út úr bænum með Qölskyldunni í gær.
ÞORGILS ÓTTAR MATHIESEN
Framkvæmdastjóri hjá íslandsbanka. Hann er að hætta í bæjarráði Hafnarfjarðar eftir
tólf ár sem bæjarfulltrúi.
Eg ætla að láta mig hverfa um
helgina," segir Þorgils Óttar
Mathiesen. Hann og konan hans,
Berta Gerður Guðmundsdóttir,
og börnin tvö, Sigrún sex ára og
Einar fjögurra ára, fóru út úr
bænum í gær. „Það er ágætt að
fara í svona góðu veðri,“ segir
Þorgils.
Hann er ekki mikið fyrir að
halda afmælisveislur. Engin
veisla var haldin á þrítugsaf-
mælinu og engin er áætluð nú í
ár. Þess vegna mætti halda að
vini og vandamenn væri farið að
lengja eftir almennilegri hátíð.
„Þessu verður maður að fá að
ráða sjálfur. Ætli það vei’ði ekki
haldin góð veisla á fimmtugsaf-
mælinu."
Þorgils er framkvæmdastjóri
reikningshalds, bakvinnslu og
reksturs íslandsbanka. Árið 1987
hóf hann störf hjá Iðnaðarbank-
anum, sem sameinaðist í íslands-
banka árið 1990. Árið 2000 sam-
einaðist íslandsbanki FBA. Þor-
gils hefur því í raun starfað á
sama stað í 15 ár. „Ég er svolítið
íhaldssamur. En þetta er
skemmtilegur vinnustaður. Það
er mikið að gera og gengur vel.“
Upp á síðkastið hefur Þorgils
einnig kennt EVA-greiningu í
Endurmenntun Háskóla íslands.
Það er aðferð við mat á árangri
fyrirtækis, sem íslandsbanki
hefur tileinkað sér. Það hlýtur
því að liggja beint við að Þorgils
er fær með tölur. „Ég vona það.
Ég tel mig vera það. Það er eitt
af mínum ábyrgðarsviðum að sjá
tií þess að tölurnar séu réttar,"
segir hann.
í stjórnmálum stendur Þor-
gils á tímamótum. Síðustu tólf ár
hefur hann verið bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði, fjögur ár varafull-
trúi og átta ár aðalfulltrúi. Á
þriðjudaginn sat hann hins vegar
síðasta bæjarráðsfund sinn, að
minnsta kosti í bili. „Það var
ánægjulegt að starfa í bæjai’mál-
um Hafnarfjarðar. Þetta er orðið
nóg í bili. Ég er ennþá ungur og
því aldrei að vita nema ég snúi
aftur."
halldor@frettabladid.is