Heimdallur - 01.12.1884, Side 3

Heimdallur - 01.12.1884, Side 3
hann vildi komast enn noröar, og það heppnað- ist líka, árið 1851 komst hann norður að fljót- inu Zambese; er það ákaflega stórt fljót. Neðri hluta fljótsins höfðu menn áðurþekkt, en hugðu, að upptök þess væru langt um sunnar. Nú var það mark og mið Livingstones, að finna leið fyrir jiær þjóðir, er bjuggu inni í miðju landi, til sjávar og greiða þannig iyrir samgöngunum. í því skyni lagði hann upp að nýju 1853, og á þremur árum fór ham fram meö allri vestur- ströndinni norður til Loanda og þaðan þvert yfir til Kilimane á austurströndinni. Paft var eigi einungis, að ferðin var til hins rnesta gagns fyrir vísindin, þar sem hann gaf mönnum svo að segja nýjan uppdrátt yfir Suður-Afríku, heldur gjörði hann sjer hvervetna allt far um, að kynnast þjóðunum, og koma sjer í vinfengi við þær, sætta þær innbyrðis og mennta. í þrjú ár hafði Livingstone ekkert frjett úr hinum menntaða heimi, en nú ásetti liann sjer að fara til Englands, til þess að fá styrk þar, svo hann gæti haldið áfram uppgötvunum sínum. Til Englands kom hann 12ta des. 1856 eptir 16 ára burtveru. Par var honum tekið með hinum mesta fögnuði og hvervetna sýndur hinn mesti heiður. Hin enska stjórn rjeði afað búaút för mikla, einkum til þess að ránnsaka Zambese og austurstöndina betur, ef vera mætti, að verzlun- arviðskipti gætu orðið milli Englendinga og innbúanna, og þrælasalan, sem einkurn átti sjer stað þar, yrði afnumin. Árið 1858 lagði þá Livingstone að nýju á stað. A þeirri ferð til 1863 fór hann eptir og fram með Zambese, og rannsakaði landið hver- vetna í kring. Komst hann þá að raun urn, að ekki var að hugsa til, að áin yrði skipgeng til verzl- unar, því að ýmist eru háir fossar eða grynn- ingar, og aptur annarsstaðar stríðir straumar. Á þessari ferð fann hann vatniö Nyassa fyrir norðan Zambese. 1864 fór hann aptur til Eng- lands, en þar dvaldi hann eigi iengi, hugurinn vildi alltaf áfram, og hann bjó sig undir nýja ferð. Árið 1866 hóf hann sína síðustu ferð frá Sansibar. Nú ætlaði hann sjer ekkert smáræði. Eins og öllum er kunnugt rennui' stóráin Níl norður eptir öllu Egiptalandi til Miðjarðarhafs; um allar aldir höfðu upptök hennar verið ókunn, en þá nýlega hafði Speke fundið, að hún kemur frá tveimur afarmiklum vötnum inni í miðri Afríku. Nú hafði Livingstone fundið, að stór- árnar Kongo, sem rennur til vesturs út í At- lantshaf og Zambese, sem rennur til austurs út í indverska hafið, hafa upptök sín á sama hálendi; ætlaði hann sjer nú að rannsaka stöðvarnar milli þessara þriggja fljóta. Á þessari ferð fór hann fyrst. upp meö fljótinu Rufuma og fyrir suðuroddann á vatninu Nyassa. Par var það, að menn frá Jóhanna- eyjunum, sem hann haföi með sjer, yfirgáfu hann og breiddu út, að hann væri dáinn, og frjettist það til Evrópu og þóttu mikil tíðindi. Frá Ny- assa fór hann til Kasembens lands, þá fann hann vatnið Bangveolo 1868; þessi árin var hann önnum kafinn í að rannsaka löndin fyrir norðan Nyassa, en var opt mjög veikur. Öll þessi árin hafði ekkert frjetzt til Li- vingstones í hinum menntaða heimi, og því sendi Bennett eigandi heimsblaðsins New-York Herald, frjetl aritara sinn Henry Stanley, til þess að leita liann uppi. Stanley lagði af stað frá Sansibar, og loks fann hann Livingstone viö Tanganji- kavatnið 1871, og má nærri geta, að það var fagnaðarfundur. Eptir að þeir höfðu skilið, hjelt Livingstone áfram ferðalagi sínu kring um Bangveolovatnið, þótt hann væri jafnan mjög veikur af blóðspýt- ingi. í miöjum apríl 1873 voru líkams kraptar hans mjög teknir að þverra, og eptir það hnign- aði honum óðum, enda var aðbúnaðurinn eöli- lega eigi sem beztur. Hinn 4ða maí kl. 4 um morguninn fundu fylgdarmenn hans liann í kofa sinum örendan og þegar stirðan. Bannig hafði þessi mikli feröamaður endað göngu sína eptir framkvæmdarsamt og starfsamt líf, sem hann einungis hafði varið til að göfga og mennta mannkynið. Fjónar hans tóku lík húsbónda síns, smurðu það og báru þaö síðan 300 inílur, frá Bangveoio til Sansibar; er það efalaust sú erf- iðasta og lengsta líkganga, sem nokkru sinni hefur verið farin. Líkið var síðan flutt til Eng- lands, og jarðsett 18da apríl 1874 í Westmin- ster, þar sem hinir göfugustu og mestu synir Bretlands hvíla. Jarðarförin fór fram með hinni mestu viö-

x

Heimdallur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimdallur
https://timarit.is/publication/123

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.