Heimskringla - 28.07.1948, Síða 9
WINNIPEG, 28. JÚLÍ 1948
FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
Séra Valdimar J. Eylands
kominn v
Séra Valdimar Eylands kom
til Winnipeg s. 1. fimtudag úr
ársdvölinni heima á ættjörðinni,
en frú Lilja Eylands og dætur'
presthjónanna stöldruðu við í
New York, en koma heim í þess-
ari vkiu. Á frú Lilja þar frænd-
fólk, sem hún vildi finna. En
séra Valdimar sagði að sér hefði
fundist líkt að koma þangað úr
rónni og fegurðinni heima og að
koma í álfhól og flýtti förinni
hingað.
í stuttu símtali við séra Valdi-
mar, lét hann hic? bezta af dvöl-:
inni heima. Það væri að vísu alt
breytt heima frá því sem áður,
var, en sú breyting væri öll til
góðs og landið og þjóðin kæmi
manni undantekningarlaust hið
ánægjjulegasta fyrir sjónir. —
Hann sagðist hafa haft margt ó-
segjanlega gott af dvölinni og
hún yrði sér ógleymanleg.
Hann áleit slík verkaskifti og
þarna áttu sér stað geta orðið tii
mikils góðs og gagnleg til við-
halds kynningar eystra og vestra.
Sér hefði og verið það mikil á-
nægja að finna, hvað íslending-
um heima væri kynning af Vest-
ur-íslendingum kærkomin.
Þjóðinni heima sagði hann líða
ágætlega; það væri að vísu hörg-
ull að verða, vegna skort á er-
lendum gjaldeyri, á ýmsum vör-
um, er á erfiða tíma mintu, en
það væri á ýmsan hátt hægt að
bæta sér það upp og alvarleg
vandræði þyrfti ekki af því að
leiða. Með eflingu iðnaðar og
framfara, fullnægði landið ávait
betur og betur þörfum sínum.i
Eitthvað á þessa leið var sam-
talið.
Hann sagði börnum þeirra,
Jóni, Elínu og Lilju hafa farið
svo fram í íslenzku máli, að þau
töluðu nú íslenzku eins og fará
gerði. Voru tvö hin eldri og
fyrstnefnd á Laugavatnsskóla s.
1. vetur.
Góðhugur og þakklæti lýsti sér
greinilega í orðum séra Valdi-
mars, er hann mintist þeirra, er
hann starfaði fyrir, er ekki hefðu
einungis viljað alt fyrir þau
hjónin gera, heldur hefðu og
leyst þau út með góðum gjöfum.
Stjórn íslands sæmdi hann og
riddarakrossi.
Vestur-íslendingar bjóða séra
Valdimar og fjölskyldu hans vel-
komna aftur til starfs í víngarði
þeirra hér vestra.
Rússum bannaður
flutningur
Það síðasta sem gerst hefir í
Berlín-deilunni milli vestlægu
þjóðanna og Rússa, er það, að
vestlægu þjóðirnar banna nú
Rússum allan flutning yfir vest-
ur hluta Þýzkalands; en með því
er Rússum bægt frá að senda vör-
ur eins og áður frá höfnum í
Vestur-Þýzkalarrdi til Norður-
landa eða til Sviss. Ennfremur
er allur vöruflutningur stöðvaður
til Rússa eftir þessum leiðum.
|Telja vestlægu þjóðirnar ástæð-
una fyrir þessu ‘t'ekniska erfið-
leika”, eins og Rússar sögðu um
vegabann sitt. Þetta gerðist milli
, vestlægu þjóðanna í Frankfurt.
Á fundi þeirra um þetta, var og
samþykt, að reka lögregluforseta
Paul Markgraf í Berlín, er Rúss-
ar studdu þar til valda. Er hald-
ið, að Rússum svíði þetta hvort-
tveggja. .
Nýfundnaland
á báðum áttum
Við nýafstaðna atkvæða-greið-
slu um það í Nýfundnalandi,
hvort landið ætti að ganga Can-
ada á hönd, eða halda áfram að
vera sjálfstjórnarfylki, eins og
það kaus sé, er alt Canada sam-
einaðist í eina þjóð, kom á dag-
inn að meiri hluti atkvæða var
með sameiningu við Canada, en
Ottawa-stjórnin er alveg óráðin
í hvað gera skuli, vegna þess, að
meiri hlutinn var svo lítill, að-
eins 5000 atkvæði, að nærri læt-
ur að segja helming íbúanna áj
móti henni, eða með sjálfstjórn.
Og úr því svo er, mun sambands-
stjórn Canada hugsa sig tvisvar
um, áður en hún veitir beiðnil
meiri hlutans. Með samein-
ingu greiddu 75,462 atkvæði,
en með sjálfstjórn 70,592. Að eiga
alt að því helming íbúanna á
móti sér, gæti orðið nægilegt til
þess, að engu af áformum sam-
See
CANADA’S NEWEST CAR
íh THE LO W PRICE FIELD
lílpíédr.
AT
/
J\atíonaí Aiototó
■■ ■.Limited—- -
Winnipeg’s Mercury, Lincoln and Meteor Dealer
276 COLONY ST.
Prompt Delivery to Country Points on
Mercury, Meteor and Ford Parts
bandsstjórnar yrði komið í fram-
kvæmd til viðreisnar landinu. —
Hvað réttast er að Canada geri,
er því auðsætt.
Berlínarmálið
f því hefir lítið gerst er til
nokkurrar breytingar megi telja.
Vegabanninu hefir ekki verið
létt af og Sokolowsky, rússneski
herforinginn í Berlín segir það
ranglega hafa verið haft eftir sér
í fréttum vestlægu þjóðanna, að
hann hafi talið nokkur líkindi til^
að fyrst um sinn yrði nokkuri
breyting á því.
En þrátt fyrir þetta eru Banda-
ríkin bjartsýn á að hjá stríði verði
stýrt. Clay hershöfðingi þeirra í
Berlín, segir Rússa ekki fýsa í
stríð og Truman forseti lét ný-
lega sömu skoðun í ljósi. En sú
bjartsýni virðist einkennileg,
þegar á hitt er litið, að Rússar
KVEÐJA OG ÞAKKIR
Þegar við hjónin ásamt sonum
okkar, hverfum héðan eftir rúm-
lega ársdvöl, þökkum við ógleym-
anlega vinsemd og gestrisni í
orði og verki.
Starfið í Fyrsta lúterska söfn-
uði, hefir verið mjög ánægju-
legt, og samvinnan við safnaðar-
nefndina, djáknanefndina, söng-
stjóra, organista, söngflokka og
umsjónarfólk kirkjunnar, gat
ekki betri verið. — Safnaðar-
fólkið tók fagran þátt í kirkju-
lífinu og mikið og göfugt var
starf kvenfélaganna. Og ekki
gleymist Sunnudagaskólinn, —
æskulýðsfélagið og bræðrafélag-
ið — the Men’s Club. Guð blessi
söfnuðinn, safnaðarstarfið og á-
gætan og frjálslyndan sóknar-
prest, er hann nú kemur heim
eftir göfugt, farsælt og mikið
starf heima á fslandi.
Víða var ferðast um íslenzkar
bygðir, alt vestur á Kyrrahafs-
strönd; guðsþjónustur fluttar og
erindi um ísland, hag þess og
menningu. Alstaðar var okkur
tekið með vinsemd, hlýleika og
frábærri gestrisni.. Fjöldi fólks,
sem ann af hjarta íslandi og öllu,
sem íslenzkt er, hefir hlustaðj
með hrifningu á góðar fréttir um j
framfarir og batnandi hag ís-
lenzku þjóðarinnar. — Blómleg-
ar bygðir og fögur heimili höfum,
við séð, framtak, menningu og
manndóm. Alt geymist þetta í
ljúfum minningum. — Gott hefir
verið samstarfið og lærdómsríkt
við prestana innan Kirkjufélags-
ins og utan. Allir hafa þeir verið
okkur eins og bezfu bræður.
Samsæti var okkur hjónum
haldið af Fyrsta lúterska söfn-
uði, stjórnarnefnd Þjóðræknisfé-
lagsins og prestafélagi Kirkju-
félagsins. Voru okkur þar færð-
ar dýrmætar gjafir, ræður fluttar
og kvæði. — Ótal margar ánægju
stundir höfum við átt í vinafagn- j
aði á heimilum kærra vina í Win-
nipeg og víðsvegar í landinu.
Fjölmargir hafa gefið okkur
fagrar gjafir til minningar um
dvöl okkar hér, og munu þær j
ævinlega verða okkur undur kær- j
ar. — Þetta alt og ótal margt j
annað, alla vinsemd auðsýnda j
ungum sonum okkar, fyrirbænir
og blessunaróskir, þökkum við
af hjarta. — Við biðjum guð að
blessa ykkur öll og varðveita, í
fögru og frjósömu og sólríku j
landi. —
“Vegir skiljast”. En vináttu-
bönd hafa verið tengd. Oft munu
hugir okkar hverfa hingað og
minnast svo margs með ánægju
og þakklæti. Guð blessi þau bönd,
er tengja saman íslenzkt fólk hér
og heima á íslandi, og gefi að þau
megi vaxa og styrkjast.
Guð blessi ykkur öll og gefi
ykkur bjarta framtíð í vaxandi
farsæld lands og þjóðar. Lifið
heil!
Guðrún Guðmundsdóttir
Eiríkur S. Brynjólfsson
krefjast enn sömu yfirráða í Ev-
rópu og þeir hafa gert. Þó þeir
ætli sér hvorki né geti komið
þeim fram með stríði, er hug-
myndin samt að koma þeim fram
— með áróðri sem er það eina
skynsamlega fyrir þá. Með hon-
um er ekki að taka fyrir, að þei;
geti sigrað, því aðrar þjóðir
standa þeim þar langt að baki
Að Rússar vilji stríð, væri ein hin
mesta fásinna að halda fram, því
þeir óttast ekkert meira en stríð
og vita að öll áform þfeirra eru úr
sögunni með því. Þeir stæðust
þar ekki snúning við vestlægu
þjóðunum. Með því að segja, að
þá fýsi ekki í stríð, er því í raun
og veru ekkert sagt. Það stendur
alt við það sama og áður og er
ekki hóti betra. Það er hin nýja
landvinninga aðferð þeirra, að
þykjast vilja frið, en senda Svika
Smerdisa sína inn í hvert land og
grafa með lævísi stoðirnar undan
stjórnskipulagi þeirra og taka
þannighverja smáþjóðina af ann-
ari í sínar hendur.
Meiri sigur fyrir liberala
Kosningum, sem frestað var í
tveimur kjördæmum í Saskat-
chewan, er nú lokið. Kjördæmin
voru Athabaska og Cumberland;
unnu liberalar bæði þingsætin.
L. M. Marion, óháður liberali
var endurkosinn í Athabaska;
Axel Olson, C.C.F-sinni og Da-
vid Lachasseur, óháður, sóttu
báðir á móti honum.
Sá er vann í Cumberland, heit-
ir Lorne Blanchard, liberal; á
móti sóttu Joseph Johnson, C.C.
F.-sinni og Joseph Buote.
Fullnaðar úrslit- atkvæða-
greiðslunnar voru ekki komin
fyrir helgina, en frá.svo mörgum
kjörstöðum hafði frézt, að kosn-
ing liberala þótti vís; þeir höfðu
hvor um sig helming allra at-
kvæða eða eins mikið og tveir
gagnsækjendur þeirra.
Eftir kosningarnar í þessum
norðurljósa héruðum (það er sagt
að norðurljós hafi tafið eða trufl-
að sendingu kosningaúrslitanna}
hefir þá C.C.F.-stjrónin 31 þing-
mann, liberalar 19, óháðir liber-
alar 1 og liberal Progressive Con-
servative einn. Þingsætin eru 52.
Stjórnarþjónar
fá kauphækkun
Charles E. Greenlay ritari
Manitoba-fylkisstjórnar tilkynti
nýlega, að stjórnarþjónar fylkis-
ms fengju kauphækkun frá 1.
júlí.
Það fylgir ekki fréttinni, hvað
kauphækkunin er mikil á hvern i
mann, en hún verður miðuð við
kauphækkun tveggja undanfar-
inna ára. .
Kauphækkunin er sögð vera til
bráðabirgða og fara endanlega
eftir því, sem athuganir síðar
leiða í Ijós.
En hún áhrærir 95% stjórnar-
þjóna og nemur $600,000 á ári.
K Y Æ Ð I
Flutt á samkomu
MEIRI GÓÐAR FRÉTIR
af íslendingadeginum á Gimli,
hafa blaðinu borist, en því miður
of seint til þess að myndir gætu
fylgt þeim. En fréttirnar eru
þessar:
Rósa Hermannson Vernon
Eitt af því, sem mikilsvert má
telja til skemtana á íslendinga-
deginum á Gimli, er, að frú Rósa
H. Vernon, söngkonan góða og
vinsæla, syngur þar.
Gunnar Sæmundsson
flytur frumort kvæði fyrir
minni íslands á íslendingadeg-
inum 2. ágúst á Gimli.
Þennan fagra frelsis dag,
frónið lætur skarta,
heyrist íslenzkt æða slag,
út frá hverju hjarta.
Þetta aldna ættar band,
sem ekkert getur slitið,
tengir menn við móðurland,
meðan endist vitið.
Álit bindur út um heim,
eldinn kyndir braga.
Vekur yndi í álfum tveim
íslands mynd og saga.
Kynsins valda, andans oft,
auðlgeð faldar prýði,
það mun halda heiðri á loft,
hér, þótt aldir líði.
H. E. Magnússon
-Seattle, Wash., 17. júní
Elmer Nordal
syngur og á íslendingadegin-
um 2. ágúst á Gimli.
Til bæjarins komu í gærkvöldi
norðan frá Winnipegosis, Man.,
Mrs. og Mrs. Valdi Grímson og
Mr. .og Mrs. Thórður Gunnarson
frá Vancouver, B. C., og Mrs.
Vala Anthony frá Bandaríkjun-
um. Þetta fólk hefir ferðast bíl-
leiðis að vestan, og er að heim-
sækja skyldfólk og kunningja
hér í bæ.
* * *
Mr. og Mrs. Frank Guðmund-
son, 1045 Redwood Ave., Winni-
peg, urðu fyrir þeirri sorg, að
sonur þeirra, Jimmy, á fyrsta ári,
lézt s. 1. sunnudag. Jarðarförin
verður í dag frá útfararstofu A.
S. Bardal. Séra Valdimar Ey-
lands jarðsyngur.
Framtíð yðar er umhyggja vor í dag
Víðsvegar um Canada og Bandaríkin
eru hundruð þúsunda manna, kvenna
og barna, . . . einstaklingar . . . fjöl-
skyldur ... og hópar ... sem umhyggju
njóta hjá Great-West Life.
Aukin lífsgleði þeirra, einnig trygging
og ánægja í framtíðinni, er fullvissa
þeirra, vegna hinna mörgu tegunda lífs-
trygginga, slysa, og heilsu og hópa
tryggingar-skírteina sem þetta félag
hefir á boðstólum.
Great-West Life
ASSURANCE COMPANY
HEAD OFFICE - WINNIPEC