Alþýðublaðið - 30.06.1960, Side 4

Alþýðublaðið - 30.06.1960, Side 4
MYNDIN sýnir þýzka hersveit legasta stræti Oslóborgar, þramma niður Karl Johan glæsi snemma dags 9. apríl 1940. Síöari grein HERNÁM Norðurlanda varð Hitler dýrkeypt þeg- ar til lengdar lét. Hann gat aldrei slitið hugann frá vörnum Noregs og á hverri nóttu bjóst hann við innrás þar, annað hvort Breta eða Rússa. Hann gaf skipun um að verja hvern tanga og hverja vík í Nor- egi og hann sendi hvert herfylkið af öðru til Norð- ur Noregs. Meira að segja flutti hann eitt herfylkið úr umsátinni um Lenin- grad þangað og veikti þar með stöðu þýzka hersins á ai^sturvígstöðvunum. Hér birtist seinni grein- in! um hersetu Þjóðverja í norðurvegi og segir frá hvernig hugsun Hitlers snerist æ meir um Norður lönd og einkum varnir Noregs, þannig að hann vanrækti aðrar hliðar styrjaldarinnar. Brátt kom í ljós, að Þjóð- verjar réðu ekki yíir nægum mannafla eða vopnum til þess að gæta Noregs eins vel og Hitler vildi. Þýzkaland var ekki eins vel búið undir styrjöld og' Hitier hélt. Hitler lét líka æ meir stjórnast af duttlungum eins og bezt kom í Jjós, er hann breytti hernaðarátælun sinni í Sovétríkjunum eftir brezku á- rásina á Svolvær. Til þess að tryggja varnir NorðuriNoregs flutti hann þangað 'hersveitir, sem hann hafði ætlað að senda gegn Leningrad. Hitler van- rækti alveg að hugsa frarn í tímann, en ákvað hvað gera skyldi þegar í stað og umhugs unarlaust. Órói og kvíði hel- tóku hann og eftir því sem angistin óx skipti hann sér meir af öllum hlutum, jafnvel smáatriðum í víglínunni. Hitler jók einnig stöðugt liðsafla Þjóðverja á Krít og í Noregi. Lét hann reisa þar öfl- ug vígi, flugvelli og þá var einnig lögð jámbraut í Norð- ur-Noregi, sem engin þörf var fyrir í hernaðarlegu tilliti. Stríðsfangar voru látnir vinna að þessum framkvæmd- um, fyrst og fremst rússneskir stríðsfangar. En það skorti skýli yfir þá og fyrst varð að byggja þau. AHt þetta kostaði af fjár, tíma og þolinmæði. En Hitler hefði átt að sjá, að bandamenn höfðu ekki áhuga á innrás í Noreg er svo mikið þýzkt herlið var þar fyrir, en hann viðurkenndi aldrei þá staðreynd. Líklegt er að banda menn hefðu ráðizt inn í Nor- eg og opnað nýjar vígstöðvar ef hann hefði ekki gripið tii þessara ráða, en 1942 er Þjóð- verjar staðsettu svo til allan flota sinn þar var innrás úr sögunni. Wilhelm List hershöfðingi var í febrúar 1942 sendur til Noregs og Finnlands f þeim tilgangi að kynna sér varnar- stöðvar þar og varnarmögu- 41 30. júní 1960 — Alþýðublaðið Vildu engan prest? STAÐH) hafa yfir prestskosningar í þremur byggðarlöguntj að undanförnu. Fréttir hafa verið sagðar af úrslitum, þessara kosninga, sem maður skyldi ætla að hefðu farið fram áu mannfalls, þar sem aðeins einn var í kjöri í hverju byggðar-i lagi. En þá bregður svo við að einn fellur, þ. e. nær ekki at- kvæðafjölda til að vera löglega kosinn, eins og það heitir. Ég hef ekki kynnt mér hvaða reglur gilda um löglega kosningi® af þesu tæi, en þeim þarf augsýnilega að breyta, efl þær era þannig úr garði gerðar, að prestar geta fallið, þrátt fyrir þa® að þeir eru einir í framboði og fá auk þess töluvert magxn atkvæða. Prestar eru nauðsynlegir, næstum eins og læknar, þar sem enn þarf að skira og gifta Og jarða, þótt kokhreystl fjöldans hafi kannski að mestu leyst sjálfan Drottin afl hólmi. Og ég get ekki séð að það örvi menn að læra til prestsskapar, ef þeir mega eiga von á því að falla, eiginlega fyrir, sjálfuna sér, dirfist þeir að sækja um brauð. Prestskosningar með ann- mörkum einhverrar hámarkstölu í atkvæðum, er ekki annað en óþarfur leikur með virðing manna, og ekki ástæða til afS láta neina komast upp með slíkt, meðan við höfum ekki kast- að kirkjunni og siðum hennar fyrir róða. „Komir þú á Grænlands- grund" SVO ber við að hópur m.anna fer til Grænlands á næstunni, þeirra erinda að sjá sig um í landi Eiríks rauða, og jafnframt opna nýja ferðamannaleið vestur yfir Danmerkursund. Uppá- tækið er gott, fyrst menn á annað iborð eru að leggja sig eftir því að ferðast. Þeir sem hafa gengið tíu sinnum á Snæfells- jökul, fjórtán sinnum á Esjuna og sex, sinnum á Heklu eigai skilið að Grænland sé opnað. Þar er m;argt að sjá, og Græn- landsvinir segja að ísland blikni sem fjallaland, sé það borif? saman við Grænland. Vonandi gengur væntanleg hópferð vel og íslendingar eru orðnir það þroskað fól'k, að ekki þarf aS óttast að þeir sýni Grænlendingum nýlenduhroka, þótt alltaf sé leyfilegt að gruna menn héðan urn að líta á þá sömu aug- um og menn sunnan úr álfu litu á íslendinga til skamms tíma. Sá grunur hefur samt ekki við nein rök að styðjast, enda mun það ekki ha.na drifið menn í þetta, heldur hitt aði Grænland er fagurt land og geymir íslenzka harmsögu. Og svo mega ferðamenn fara að rifja upp fvrir sér vísur Sig- urðar, sem eru eins konar ferðahand'bók um Grænland, líka 1 því er tekur til rauðu hárbandanna. Kannski koma einhverjir giftir til baka. Þrír tittir á stöng ÉG fór fyrir skömínu upp að Meðalfellsvatni og stóð þar einxs síðdag með hundrað krónu stöng japanska og kastaði fýrir silung. Raunar skiptir það mann engu hvað hann veiðir, að- alatriðið er að eiga erindi út undir bert loft. Og þegar ég hafði dregið þrjá fingurlanga titti upp úr þessu vatni, sem er fallegra en það er veiðilegt, hvarflaði ekki að mér að ég hefði verið að eyða tímanum til einskis. Það er því ekki vegna þess að ég hafi móðgazt við Meðalfellsvatn, að ég staðhæfi að ein- ungis trassaskap er um að kenna, að ekki skuli hafa verið 'hafin ræktun í þessu vatni og öðrum, svo mennirnir me$ hundrað krónu stengurnar geti átt von á örlítið stærri sil- ungum, þegar þeir f'ara til að láta sólina skína á sig á sunnu- dögum. Ég fullvissa stjórnendur veiðimála í þessu landi um að stengurnar myndu þola það. I.G.Þ. leika. Við heimkomuna gaf hann Hifler skýrslu um för- ina. En það, sem Hitler hugs- aði sér var að skipa List eða Kesselring yfirhershöfðingja í Noregi og sýnir það, að hann hugði. að Skandinavía yrði' vígvöllur. Ári síðar gaf hann skipun um undirbúning að á- rás á Svþjóð. Það vai ekki fyrr en haustið 1943 að hanra lét flytja eitt herfylki frá Nor egi. 12—15 heríylki voru þar óvirk öll stríðsárin. Og fyrstu. hermennirnir voru flutti'r það an er Þjóðverjar gátu ekki haldið áfram sókninni í Rúss- landi. Hernám Danmerkur og Noregs hvíldi þungt á herðuip Þjóðverja öll stríðsárin.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.