Alþýðublaðið - 13.07.1960, Blaðsíða 1
41. árg. — Miðvikudagur 13. júlí 1960 — 155. tbl.
EXNS og blaðið skýrði
•frá í gær, varð alvarlegt
bifreiðarslys í Hrútafirði í
^yrradag. Eldri kona, sem
var farþegi í bifreiðinni,
beið bana nær samstund-
is, en dótturdóttir hennar
andaðist í Landsspítalan-
•um í fyrrinótt.
Alþýðublaðíð átti í gær tal
vi'ð s'krifstofu sýslumannsins á
Blönduósi o gspurðist fyri'r um
yannsókn málsins. Fyrir svörum
varð Guðbrandur ísherg, fyrr-
verandi sýslumaður.
Hann skýrðí blaðinu frá því,
að sýslumanninum hefði' ekki
yerið gert viðvart um slysið
fyrr en um1 hádegi í gær, nær
sólarhring eftir að það varð.
Þá var of seint að láta lög-
regluna sitja fyri'r ökumanni
ibifreiðarinnar, sem kom á ofsa-
hraða á móti þeirri, sem fyrir
slysinu varð.
Guðbrandur sagði', að þessi
ýfirsjón mundi gera rannsókn
málsins miklu erfiðari, en byrj-
að væri á því að reyna að ná í
það fól'k, sem kom á slysstað-
inn.
Sýslumannsskrifstofunn i var
ekki kunnugt um það í gær-
kvöldi, hvaða bifreið það var,
■sem ekið var svO' þjösnalega á
veginum, né hver stjórnaði
henni.
ÍNánari' tildrög slyssins eru
þau, að um miðjan ðag á mánu-
daff var Volvo-sendiferðabif-
reiðin G 742 á leið norður. Eig-
andi bifrei'ðarinnar, Axel Jóns-
son ,kaupmaður í Sand.gerði,
tæpl'ega 67 ára að aldri, ók bif-
reiðinrii. í Hrútafirði' kemur
önnur bifreið á móti á ofsa-
hraða og þegar Axel vék til
hliðar til að forðast árekstur,
rakst bifreið hans á símastaur
við vegbrúnina.
í íramsætinu var kona Axels,
Þorbjörg Einarsdóttir, tæplega
65 ára að aldri. Lézt hún að
hei'ta mátti samstundiis við á-
raksturinn. í aftursæti voru-
dóttursonur þeirra hjóna, Axel
Ingvarsson, tæpra 16 ára gam-
A FERÐ
OG FLUGI
VEÐ höfum ekki séð öllu
betri fótboltamynd. Eða
ætti maður kannski að
kalla þetta ballett? Á fót-
boltavelli var myndin
samt tekin, og það suður
í Aþenu. Herakles og
Niki háðu þarna kapp-
leik. Herakles (sem á fliig-
manninn) sigraði Niki
(sem á þann jarðbundna)
með tveimur mörkum
gegn einu.
Eí Útver eignast
skuffogarar verða..
VIGFUS Friðjónsson
útgerðarmaður á Siglu-
firði hefur hug á að gefa
ungum hjónum tækifæri
til að vinna saman á sjón-
um. Frá þessu segir í við
tali við Vígfús í Víkingn-
um. Hann segir frá skut-
togara, sem Útver hf. á
Siglufirði vill láta smíða í
Þýzkalandi.
í Víkingsgreini'nni segir:
„Þá ætlar hann einnig að
láta gera sex tveggja manna
klefa í skipinu lianda ungum
hjónum, sem kynnu að vilja
vinna saman á sjónum um
nokkurra mánaða skeið.“
Vigfús hefur fengið teikning-
ar af skuttogaranum og leitað
tilboða hjá þýzku skipasmíða-
stöði'nni Riohmers Werft í Bre-
ALÞYDUBI.ADID hefur
það eftir góðum beimild-
um, að Tryggvi Ófeigsson,
útgerðarmaður ■ Reykja-
vík, hafi keypt togartann
„Gerpi“ af Bæjarútgerð
Neskaupstaðar.
Tryggvi keypti togar-
ann fyrir rúmar 20 millj-
ónir. Togarinii fór í veiði-
ferð sl. föstudag, s*m eign
Tryggva.
„Gerpir“ vtar upphaf-
lega smíðaður fyrir Bæj-
arútgerð Neskaupstaðar.
Hann er næststærsti tog-
ari landsins. Stærstur er
„Maí“ í Hafnarfirði.
nwnummwawwuMmw