Alþýðublaðið - 13.07.1960, Blaðsíða 3
WWWWWWWWWWMMMMWtWmWWWMWWWWIW
HROÐALEG prentvilla
slæddist inn í HAB-frétt
blaðsins » gær. Fallið hafði
niður orðið ekki, og gjör-
breytti það merkingu setn
ingarinnar. Svona átti inn
gangur fréttarinnar að
vera:
„Ég er með raunaleg
skilaboð til fyrrverandi
eiganda HAB-miða nr.
1277. Hann hefðí unnið
Volkswagenbíl ef honum
hefði EKKI láðst að end-
urnýja.“
Úr því HAB er aftur til
umræðu hér í blaðinu, má
reyndar vekja athygli á
smáskrýtinni tilviljun:
HAB-bílarnir virðast
ganga betur út þegar tveir
eru í boði en einn.
Þannig fóru þeir báðir í
drættinum 7. maí.
Væntanlega fer þá eins
í næsta skipti, 7. septem-
ber.
Þá verður bíllinn, sem
nú féll á óframlengdan
miða, nftur settur inn í
happdrættið.
tmHHMMIMMIMIMUMIMH
Siglufirði í gær.
RÚSSNESKA þingmannanefd-
in kom hingað í morgun um kl.
10. í fylgd með nefndinni var
sendiherra Sovétríkjanna á fs-
landi, Friðjón Skarphéðinsson,
forseti sameinaðs þings, Pétur
Pétursson forstjóri og Björn
Jónsson alþingismaður.
I Á Hafnarbryggjunni' tóku á
móti nefndinni stjórn Síldar-
verksmiðju ríkisins og stjórn
Síldarút'vegsnefndar ásamt for-
seta bæjarstjórnar og bæjarfull
trúi.
Gestunum var sýnd síldarsölt
unarstöð, og síðan var þeim
sýnd Síldarverksmiðja ríki'sins
undir leiðsögn Vilhjálms Guð-
mundssonar framkvæmda-
stjóra.
Fyrir hádegi sat nefndin boð
Síldarverksmiðju ríkisins og
Síldarútvegsnefndar. Eftir há-
degi hélt bæjarstjórn Siglu-
fjarðar veizlu fyrir gestina.
Haldnar voru ræður og minnzt
vi'nsamlegra samskipta íslands
og Sovétríkjanna. Gestunum
var fært að gjöf skjaldarmerki
Sigga Vigga
V ÞOR
-(- -
Sigtufjarðar, haganlega útskor-
ið. Koma nefndarinnar hingað
var í alla st'a'ði hin ánægjuleg-
asta.
Þingmennirnir f óru héðan um
kl. 3 í dag og héldu áleiðis til
Akureyrar.
J.M.
..tbl HVEPhllG GAT tG BODIÍJ MANNINUM BC-TP.I
TfV/GGlNGU tN AD HANN SKRIFADI UPP k WANN SiÁLFUR"
Þeir ferðast
um ísland
í ÞESStJM mánuði koma hing-
að til lands hópar jarð- og land-
fræðinga Hópar þessir koma af
alþjóðlegum mótum, sem hald-
in verða í Kaupmannahöfn og
Stokkhólmi.
Landfræðingahópurinn, sem
kemur, mun 'fara í ferðalag
kringum ísland, og leggur af
stað í þá ferð 23. þ. m. Hópurinn
.fer norður og austur með land-
inu, og dvelur á Skeiðarársandi
nokkurn tíma. Ferðin tekur 12
daga í þessurn hóp verða 30
menn, og verður Sigurður Þór-
arinsson jarðfræðingur farar-
stjóri hópsins.
Jarðíræðingarnir, sem koma
hingað em 60. Sá hópur mun
einnig fara sams konar ferð og
landfræðingarnir.
tMenni'rnir, sem hingað koma
með þessum hópum eru frá 20
löndum, og .eru margir meðal
þeirra vel þekktir vísindamenn.
sia:
fyrir hálaunaða
en segja verkafólki oð híða
ALÞÝÐUBLAÐIÐ vill A'ekja athygli landsmanna á því,
sem gerzt hefur, síðan ríkisstjórnin bannaði verkfall flug-
manna. Það er þetta:
1) Alþýðuflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn stand'a gegn
því, að fámenn stétt hálaunaðra manna fái nú miklar
kjarabætur.
2) Kommúnistar og Framsóknarmenn h'alda uppi harð-
vítugri baráttu fyrir þessa sömu fámennu stétt hálaun-
aðra manna.
3) Á sama tíma hreyfa kommúnistar hvorki legg né lið
til að knýja fram kjarabætur fyrir verkamenn, verka-
konur eða aðrar láglaunastéttir. Mörg verkalýðsfélög
þessa fólks eru undir stjórn kommúnista og hafa lausa
samninga.
Þetta er athyglisvert ástand. Forseti Alþýðusambands-
ins, Hannibal Valdimarsson, forustumenn kommúnista í
verkalýðshreyfingunni og aðrir ráðamenn kommúnista
völdu þá stefnu á ráðstefnu Alþýðusambandsins fyrir
nokkru að bíða átekta. Þess vegna bíða láglaunastéttir
landsins, enda má ætla' að mikill meirihluti þjóðarinnar
vilji gefa efnahagskerfi ríkisstjórnarinnar tækifæri til að
sýna, hvort það dugir eða ekki.
Staðan í dag er því þessi: Kommúnistar heyja harðvít-
uga baráttu fyrir hinum hálaunuðu, en segja láglauna-
fólkinu lað bíða. Alþýðuflokkurinn segir 'hins vegar: Há-
launamenn verða að bíða eins og láglaunafólkið. Þeir
mega ekk, ganga á undan.
Hvor flokkurinn starfar meir í anda alþýðu og sannrar
verkalýðsbaráttu?
Útsvarslækkun
á Akranesi
LOKIÐ er niðurjöfnun út-
svara á Akranesi og hefur út-
svarsskráin verið lögð fram.
Alls var jafnað niður um 12
Aukið húsnæði
pósts og síma
I Neskaupstað
Neskaupstað, 11. júlí.
NÝLEGA er lokið endurbót-
um póst og símahúsnæðis hér á
Norðfirði, auk um 100 fermetra
viðbótarbyggingu. Einkum er
stórbætt aðstaða póstsins með
stórum afgreiðslusal, böggla-
geymslu, innmúruðum skáp, —
vinnuherbergi stöðvarstjóra og
snyrtiherbergi.
Þá eru símaborð aukin og
hafa nú 360 númer. Skráð og
tengd númer eru nú 184, en
20-30 manns eru á biðlista. —
Vegna skorts á jarðstrengjum
hafa menn orðið að bíða, allt
upp í 2-3 ár eftir síma.
Framkvæmdir við póst- og
símahúsnæðið hér hófust í októ
ber 1958. Dráttarbrautin h.f.
skilaði húsinu fokheldu, en Jó-
hann P. Guðmundsson, hús-
gagnasmíðameistari, annaðist
innréttingar.
Stöðvarstjóri er frú Kristín
Ágústsdóttir, sem hefur starfað
við póst og síma frá 1916.
— Oddur.
millj. kr. á 1200 gjaldendur.
Lagt var á eftir útsvarsstiga
þeim fyrir kaupstaði, sem sam-
þykktur var á síðasta alþingi,
með nokkurri lækkun.
Samkvæmt upplýsingum Dan
íels Ágústínussonar, bæjar-
stjóra á Akranesi, er erfitt að
segja um hve mdkil útsvarslæ'kk
unin er, þar sem Iagt hafi verið
á eftir nýjum reglum, ólíkum
þeim, sem áður giltu.
Þessir 10 gjaldendur bera
hæst útsvör á Akranesi:
1. Haraldur Böðvarsson & Co.
565 500 kr.
2. Fiskiver hf. 155 900 kr.
3. Kaupfélag Suður-Borgfirð-
inga 97 700 kr.
4. Sigurður Hallbjarnarson
hf. 84 000 kr. I
5. Vélsmiðjan-Þorgeir & Elj-
ert 77 800 kr.
6. Hraðfrysti'húsið Heimá-
skagi hf. 74 500 kr. I
7. Garðar Finnsson skipstjó^i'
51 600 kr.
8. Fríða Proppé, lyfsali 51 100
kr.
9. Dráttarbraut Akraness
51 000 kr. ,
10. Skeljungur hf. 50 400 kr.
Alþýðublaðið — 13. júlí 1960 j