Mosfellsblaðið - 01.10.1998, Síða 9
Reykjagarður h/f hefur nýlega fest
kaup á jörðinni Mið-Fossum í Anda-
kílshreppi í Borgarfirði og hefur
þar með tekið nýja stefnu í rekstri sínum.
í samtali við Bjarna Ásgeir Jónsson, fram-
kv.stj. Reykjagarðs h/f réði nokkrum úr-
slitum með kaup á þessari jörð, að þar er
heitt vatn til staðar, ágætar byggingar fyr-
ir íbúð og uppeldi fugla, en nokkurra
breytinga og bygginga þarf við. Ennfrem-
ur er tilkoma Hvalfjarðarganga afar hag-
stæð tenging milli starfssvæða Reykja-
garðs h/f, einnig von um nýjan Hafra-
vatnsveg fni Suðurlandsvegi að Mosfells-
bæ, þannig að Mosfellsbær verður vel
staðsettur gagnvart höfuðborg og öðrum
landshlutum.
Framleiðslugeta fyrirtækisins t dag er um 1300 tn.,en
verður 1900 tn. með 500 ferm. nýju húsi að Ásmundar-
stöðum i Ásahreppi þar sem yrði 100 tn. viðbót og
hreyttu húsnæði að Mið-Fossum í Andakíl 3.300 ferm.
með 500 tn. viðbót, eða um 1.900 tonna framleiðsla af
kjúklingum á næsta ári. Á Ásmundarstöðum er hústjóri
Ríkharður Bragason frá Mosfellsbæ.
Sláturhús fyrirtækisins á Hellu slátraði árið 1997 1600
tonnum ;tf fuglakjöti, sem er um 10 % af kjötframleiðslu
landsins. Á þessu ári stefnir í 2.100 tn. slátrun, sem er
um 30 % aukning milli ára. Fyrirhugað er að byggja nýtt
sláturhús við ltlið hins gamla að Hellu sern þýðir veru-
lega aukna afkastagetu og rnikla hagræðingu. Árið 1999
má gera ráð fyrir um 500 tn. aukningu í slátrun, sem þá
yrði um 2.600 tonn. Ráðgert er að reisa nýja útungunar-
stöð í Mosfellsbæ, um 600 ferm. hús.
Höftiðstöðvar Reykjagarðs h/f eru og verða áfram við
Álafossveg í Mosfellsbæ.Þar em skrifstofur, frystigeymsl-
ur og dreifingarstöð, ásamt fyrirhugaðri nýrri útungun-
arstöð og kjúklingaeldi á Teigi. Frekari uppbygging í
Mosfellsbæ hefur ekki svigrúm vegna vaxandi íbúða-
byggðar. - Rekstrarferillinn verður síðan sá, að ungarnir
fara daggamlir úr útungunarstöðinni í Mosfellsbæ til
Sigrún Rós tveggja ára ásamt foreldrum stnum, Helga Gissurarsyni biístjóra aö Mið-
Fossum og Rósu Emilsdóttur að heimili þeirra viö Skeljatanga.
uppeldisstöðva sinna að Teigi í Mosfellsbæ, Ásmundar-
stöðum í Ásahreppi og Mið-Fossum í Andakílshreppi
svo og annarra bænda, sem taka að sér uppeldishlut-
verk.
Þegar fuglarnir em 5-6 vikna gamlir er þeim ekið að
sláturhúsinu að Hellu jiar
sem slátmn og vinnsla fer
fram. Að þessu loknu kemur
kjötið allt til baka í dreifing-
arstöðina í Mosfellsbæ, það-
an er því dreift um land allt,
en t.d. er vaxandi eftirspurn
á Keflavíkurflugvelli eftir
Holtakjúklingi, sem þykir af-
bragðsfæða.
Ráðinn hefur verið bú-
stjóri að Mið-Fossum, er það
Helgi Gissurarson og í'htur
hann þangað næstu daga
ásamt fjölskyldu sinni, hest-
unum og hundinum Snata.
Þau munu búa í 170 ferm.
hæð í íbúðarhúsinu,en leigja
út hesthús sitt á Varmár-
bökkum.
Reykjagarður h/f leigir af þeim húsið við Skeljatanga,
en í það flytja 2 ungir Akureyringar, svo ekki verður
fólksfækkun í Mosfellsbæ við þessar breytingar. Annar
þeirra mun leika með HandknattleiksdeildAftureldingar
í vetur.
Heykja«
með nýj
FeðgamirAtli og Bjarni Ásgeir horfafram á veginn viö höf-
uðstöövar Reykjagarðs h/f í Mosfellsbœ.
VEQMERKINQ EHF.
Grænumýri 5 • 270 Mosfellsbæ • Sími 566-7259
VERTU VIÐBUINN VETRINUM
Mikiö úrval af vetrardekkjum
Umfelgun - Smurþjónusta
MICHELIN
NO:9DEKK
RIKEN •
Langatanga 1a - Mosfellsbæ - Sími 566 8188
MoslellKlilíKMð (£)