Lögberg - 22.12.1938, Blaðsíða 3
3
LÖŒBERG, FIMTUDAGrlNN 22. DESEMBEB 1938
Stjórnmál
MaÖurinn er pólitísk dýr.—
Aristoteles. ,
—Öll erum viÖ pólitísk, hvort
sem við erum mentuð eða ó-
mentuð.—Soame Jenyns.
—Ekkert áhættuspil jafnast á
við pólitík.Benjamin Disraeli.
—Allmikið af stjórnmálum
okkar er af lífeðlisfræðilegum
toga spunnið.—Emerson.
—'Stjórnmál eru ef til vill sá
eini starfi, sem ekki er talið
nauðsynlegt, að menn mentist
neitt til á einn eða annan veg.
—R. L. Stevenson.
—Stjórnniál skipa sannarlega
undarlegum mönnum í sömu
sængina.—John S. Bassett.
—Flestar pólitískar fyrirætl-
anir eru hlægilegar. — Samuel
Johnson.
—Allir pólitískir flokkar deyja
að lokum af því að éta ofan í
sig sín eigin ósannindi.—John
Arbuthnot.
—Þegar miklum málum hefir
verið ráðið til lykta, myndast
litlir stjórnmálaflokkar.—Walter
Bagehot.
—Að fórna persónulegum
heiðri fyrir flokk sinn er svo
mikil óeigingirni, að hinir víð-
sýnustu stjórnmálamenn vorir
hafa ekki hikað við að gera það
—Charles John Darling.
—Stjórnmálaflokkur er skipu-
lögð efnishyggja.—lóisraeli.
—Sá þjónar sinum flokki
bezt, sem er trúastur sínu föð-
urlandi.—R. B. Hayes.
—Góður flokkur er betri en
nokkur einstaklingur, sem uppi
hefir verið.—Thomas B.. Reed.
—Fyrsta heilræði, sem eg get
gefið flokki, er að hann hafi
hreinan skjöld.—Roseberry lá-
varður.
Hon. J. S. McDiarmid
Náttúrufríðindaráðgjafi Bracken
stjórnarinnar, Hon. J. S. Mc-
Diarmid, hefir getið sér hvar-
vetna hinn bezta orðstír fyrir
röggsamlega forustu á sviði
námarékstursins i Manitoba-
fylki; gengur nú sú framleiðslu-
tegund næst kornframleiðslunni
að verðgildi í fylkinu.
—Hann hugsar eins og ihalds-
maður og talar eins og frjáls-
lyndur maður, en slikt er ákaf-
lega áríðandi nú á tímum. —
Oscar Wilde.
—Það er eins örðugt að vfera
sannur og heiðarlegur stjórn-
málamaður eins og að vera sóma-
maður i alla staði.—Bacon.
—Alt pólitískt vald er í hönd-
um hrings (trust).—Charles J.
Fox.
—Stjórnmál eru hið brenn-
andi málefni dagsins i dag.—
Disraeli. —Samtíðin.
Nokkur minningarorð
um Jón Jóhannesson
Hrappsteð,
Fæddur 21. apríl 1861
Dáinn 1. september 1938
Jón Hrappsteð flutti með for-
eldrum sínum Jóhannesi Einars-
syni og Þóru Einarsdóttur frá
Meiðavöllum í Axarfirði, í
Hrappstaði í Vopnafirði árið
1885, og tók hann sér auknefni
eftir þeim bæ eftir að hann kom
hingað vestur 1893.
Jón var tvígiftur, fyrri kona
hans var Margrét Jónsdóttir ætt-
uð úr Vopnafirði, mesta myndar
kona. Hún dó á Atlantshafi á
leið hingað vestur 1893. Börn
þeirra; Octó og Einar, báðir
giftir og búa nálægt Elfros,
Sask. og Jóhannes, er druknaði
um tvítugsaldur í Winnipegvatni,
Seinni kona Jóns var Abigal
(dáin i janúar 1929). Hennar
foreldrar: Ólafur Jónsson frá
Kúðá i Þistilfirði og kona hans
Friðrikka Jónsdóttir, hálfsystir
Valdimars Ásmundssonar rit-
stjóra. Börn Jóns af seinna
hjónabandi eru: Þóra, gift Ó. G.
Brandson; Friðrikka gift Har-
aldi Sigurdson; Valdimar, gift-
ur konu af innlendum ættum;
Óli, giftur konu af norskum ætt-
um; Karl, gfitur Oddnýju Sig-
urdson; Tryggvi og Hermann ó-
giftir. Þessi myndarlegi barna-
hópur er allur búsettur í Swan
River.
Systkini Jóns heitins voru:
Jóhanna, gift Runólfi Magnús-
syni frá Felli í Vopnafirði (bæði
dáín) ; Aðalbjörg og Jóna ógift-
ar. Einar og Magnús.
Jón heitinn Hrappsteð flutti
frá Argyle til Swan River 1899
og bjó hér ávalt siðan. Hann
var góður félagsmaður, sjálf-
stæður i skoðunum og efnalega,
og kom upp sínum stóra barna-
hóp með sóma. Hann gat engan
séð liða, hvorki menn né mál-
leysingja, sem sýndi sig bezt í
því að hann tók að sér gamlan
og einfættan mann, sem engan
átti að, og hjúkraði honum í
mörg ár á meðan hann þurfti á
að halda, sem skilgetinn bróðir
væri.
Harlington,
16. des., 1938.
| J. A. Vopni.
Mót norrœnna
hjúkrunarkvenna
Frú Sigríður Eiriksdóttir, for-
maður Félags ísl. hjúkrunar-
kvenna, var meðal farþega á
Gullfossi frá útlöndum síðast.
Kom hún frá Kaupmanna-
höfn, en þangað fór hún til
þess að sitja fund formanna
fimm hjúkrunarkvennafélaga á
Nyrðurlöndum, ræða nánar um
hið væntanlega hjúkrunarkvenna-
mót, sem Félag isl. hjúkrunar-
kvenna- gengst fyrir í Reykjavík
næsta sumar, og þá sérstaklega
að ráða skip til fararinnar.
—Er nú afráðið, að skemti-
ferðaskipið, Stvangerfjord flytji
hjúkrunarkonurnar hingað, sagði
frú Sigríður, er fréttaritari
Morgunblaðsins hitti hana að
máli. — Þær verða 600 alls, en
auk þess verður rúm fyrir 100
farþega aðra. Enda mun það
koma sér vel, þar sem margir
ferðamenn munu hafa hug á að
koma til íslands og vera fáeina
daga um kyrt.
Skipið leggur af stað frá Olsó
19. júlí og á að koma hingað 22.
júli, verður því aðeins hálfan
þriðja sólarhring á Leiðinni. Hér
verður það í 5 daga, meðan mót-
ið stendur yfir, og fer síðan
norður til Akureyrar.
Með þessu móti verður hjúkr-
unarkonunum og hinum öðrum
farþegum gert kleift að fara
landveg norður og taka skipið
þar, eða sigla með ströndum
landsins, en þær hafa látið í ljós
mikinn áhuga fyrir því að kynn-
ast landi og þjóð, eins vel og
föng eru á.
Eins og fyr segir, heldur frú
Sigríður áfram, stendur mótið
yfir í 5 daga, frá 22. júli til 26.
Fundarhöld verða í 2 daga, og
fara þau fram í Gamla Bíó. Þrír
dagar eru síðan ætlaðir til ferða-
laga, austur til Þingvalla, Geysrs,
um nágrenni Reykjavíkur o. fl.
—Það er Félag isl. hjúkrun-
arkvenna, sem efnir til þessa
móts ?
—Já, stjórn félagsins hefir
allan veg og vanda af því, og
hefir sérstaka undirbúnings-
nefnd sér til aðstoðar við undir-
búning allan og ýmislegt í sam-
bandi við mótið.—Mbl. 25. nóv.
King sextíu og
fjögra ára
Þann 17. þ. m. átti Rt. Hon.
W. L. Mackenzie King sextíu og
f jögra ára aldursafmæli; var
hann við það tækifæri hyltur af
fjölda miklum samborgara sinna.
Lengi vel .í sumar er leið, var
Mr. King veill á heilsu, en er nú
sagður að hafa náð sér að fullu.
Mr. King hefir haft á hendi
forustu Liberal lfokksins síðan
1919 og gegnt forsætisráðherra
embætti í tólf ár ; hann er við-
mentur og hverjum manni hátt-
prúðari.
Á mánudaginn var mættu á
fundi i Ottawa allflestir þing-
menn Liberal flokksins á sam-
bandsþingi frá Ontario; jafnt úr
báðum deildum; svo og þeir
frambjóðendur í þvi fylki, sem í
kjöri voru við síðustu kosningar
til Sambadsþings, en biðu lægra
hlut. Til fundarins var boðað
vegna þess ágreinings, sem átt
hefir sér stað milli Mr. Kings
og Mr. Hepburns forsætisráð-
herra fylkisstjórnarinnar. Fund-
armenn lýstu einróma trausti á
Mr. King sem forsætisráðherra
og forustumanni Liberal flokks-
ins í Canada.
WITH COMPLIMENTS OF
f THE
Canada Cycle & Motor
Compan}), Limited
WESTON, Ont.
MONTREAL - TORONTO
WINNIPEG - VANOOUVER
-
)
Manufactwrers of
C.C.M. Skates, Bicýcles,
Joycycles
Innilegar hátíðakveðjur
TIL VORRA ISLENZKU VIÐSKIFTAVINA !
f
f
f
ÖIBSON I1ALL
Refrigeration Engineers
í 290 SHERBROOK ST. - - - SIMI 31520
Tryggið yður pláss
á
Jflarlborougí)
fyrir
HÁTlÐAHÖLDIN
Sunnudaginn 25. Desember
JÓLAVERÐUR
12:00 á hádegi til 9:00 e. h. framreidd- aj
ur í hinum fagra Grothic borðsal (Börn 'Ll /n
75c). Músík við máltíðir. «JI I
SKEMTUN Á GAMLARSKVELD
ÁTBURÐUR HÁTIÐARINNAR
$2.50 fyrir manninn, ásamt kveldverði. Hlunn-
indi: Fyrsta flokks hljóðfærasveit til taks. Gerið
ráðstafanir snemma til þess að útiloka vonbrigði.
NÝÁRSBORÐHALD
12:00 á hádegi tíl 9 e. h. Framreðsla í aðalborðstofu.
$1.25 á miann (Börn 75 cents). Sérstök músík meðan
á máltið stendur
FYRIRFRAM RAÐSTAFANIR
Gerið ráðstafanir í tæka tíð—Símið 96 411