Lögberg - 22.12.1938, Side 11
LÖGBERG, FIMTUDAGrlNN 22. DESEMBEB 1938
11
eÖa átti hún að setja þau sér á
kné og kenna þeini íslenzku?
Um það urðu tvær skoðanir.
Önnur taldi það synd og
skömm að láta ekki hvert ís-
lenzkt barn læra “ástkæra ylhýra
málið,” málið sem er mjúkt sem
blómstur, sterkt sem stál,” hið
óviðjafnanlega mál feðranna,
“mál, sem hafði mátt að þola
meinin flest er skyn má greina.”
Ef tungunni sleppir er úti um
alt íslenzkt þjóðerni í Vestur-
heimi. Að hætta íslenzkum
guðsþjónustum, eða láta íslenzk-
úna hverfa úr sunnudagaskólun-
um er svik við uppruna vorn og
feðut. Ef íslenzk tunga er rek-
in burt úr kirkjustarfinu, er eng-
in þörf f á íslenzkum söfnuðum;
menn mega þá alveg eins aðhyll-
ast al-enskar kirkjur. Má vera
að fáir einstaklingar hafi gengið
svona langt í öllum atriðum, en
allar þessar raddir létu til sin
heyra.
Þvert á móti þessu var sú
skoðun, að bezt væri að þurka
af sér íslenzká rykið sem fyrst,
að flytjast inn í hérlent þjóðlíf,
sem allra fljótast. Islendingur-
inn þurfti að hverfa með skyndi,
en hann að endurfæðast í kana-
diskri mynd, eða þá í gerfi
Bandaríkjamannsins. í fyrstu
var þetta ókirkjuleg skoðun, en
að því kom að kirkjan fór að
athuga ástandið og komust þá
sumir hennar menn á þá skoðun
að kirkjan mætti ekkert skifta
sér af þjóðerni, að það væri
saurgun á henni hér að hlynna
að íslenzku þjóðerni, að kirkjan
mætti ekki vera heft af neinni
tungu, að það væri eitthvað ó-
hreint við það, fyrir kirkjuna,
að vera að kenna íslenzku. Slíkt
væri með öllu fjarri hlutverki
hennar og að öllu leyti hindrun
á starfi hennar.
Það var til þriðja skoðunin,
sem fann sannleiksbrot í báð-
um þessum stefnum. Sú skoðun
kannaðist við að straumurinn inn
í þetta þjóðlíf hlyti að halda á-
frann en sá ekki svo litla hættu
í því að hraða þessari ferð um
of. Með því móti hlyti margt
JÚLIN ERU HATÍÐ LJÓSANNA !
f
Vér liöfitm alt til raflýsinga og óskum vorum íslenzku
vinum gleðilegra jóla og farsæls nýárs
Sargeitt Ulertric
QLompang
I
í
i
726i/2 SARGENT AVE. - - SIMI 35 560
The Riedle Brewery Limited
Winnipeg, Manitoba
This advertisement is not issued by the Government Liquor Control Com-
mission. The Commission is not responslble for statements made as to quallty or
products advertised.
gott að glatast. Þessvegna var
heilbrigðara og betra að straum-
urinn væri fremur hægfara og að
ferðinni væri hagað með viti, að
menn ferðuðust með opin augun.
Að slíta rætur göfugra erfða
gat borið úr býtum stórt tjón,
að neita mönnum u-m notkun þess
tungumáls sem var það eina semi
þeir skildu, var ekki síður
heimskulegt. Að neita kjörlandi
voru og föðurlandi barna vorra
um það lið, sem oss var unt að
veita því var sviksemi.
Eitthvað í áttina til hins síð-
asta 'hefir hugsun min oftast
legið. I prédikun sem eg flutti
27. febrúar, árið 1916, sagði eg
þetta: “Vér komum ekki hing-
að til að stofna nýtt ísland.
heldur til þess að helga þessu
landi krafta vora, að taka þát
í starfi þess og striti, ekki sem
hálfir menn eða umskiftingar
heldur sjálfum oss sannir, vegna
þess vér erutni sannir því guðlega
sem í oss býr.
Að sumu leyti er miklu auð-
veldara að hugsa aðeins um eina
tungu og eina þjóð, en að því
skapi sem það er erfiðara er í
því meiri gróði að elska tvö lönd
og tvær tungur.”
Flestar þessar raddir munu að
einhverju leyti hafa látið til sín
heyra í Fyrsta lúterska söfnuði.
Og nú hefir söfnuðurinn leyst
ráðgátu liðins tíma eftir því
ljósi sem leiðsögn hans hefir
hlotið. Meiri hluti starfsins fer
nú fram á ensku máli. Etiginn
er sviftur tækifæri.til að nema
Guðs orð og fræðast um krist-
indóminn vegna þess að hann
skilur ekki íslenzku. En feðra-
tungan er enn í gildi i söfnuð-
inu-mi, þar sem önnur guðsþjón
ustan á hverjum sunnudegi fer
fram á íslenzku, annað kven-
félagið notar gömlu tunguna, og
karlmanna félagið að nokkru
leyti. Meiri hluti safnaðarins
mun ásáttur með þessa niður-
stöðu, enda hefir það ávalt verið
eitt allra sterkasta einkenni safn-
aðarins hvað menn hans hafa
fylgst vel að málum, og einingin.
þrátt fyrir skoðanamun nokkurn.
frábærlega mikil.
Hvernig fær þessi söfnuður,
eins og nú er ástatt, bezt leyst
hlutverk sitt af hendi, sýnt mesta
trúmensku við sína heilögu köll-
un. komist sem næst því að vera
fólki sinu alt í öllu?
í nokkrum dráttum verður
Ieitast við að sýna það.
Á þessum árum sem liðið hafa
frá því starf hans hófst, hefir
ýmislegt orðið skýrara. hvað er
þjóðernislega rétt stefna. Að
einhverju leyti hafa mrin komist
út úr þokunui.
Það er rangt að kirkjan eigi
ekkert að skifta sér af þjóðerni
i
I
Business and Professional Cards
DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Grahani og Kennedj Sts. Phone 21 834—Offiee tlmar 3-4.30 Heimili: 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manltoba DR. B. H. OLSON Phones: 35 076 906 047 Consultation by Appointment Omy Heimili: 5 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manitoba
DR. ROBERT BLACK Sérfrœöingur f eyrna, augna, nef og héissjúkdömum. 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy Viðtalstlmi — 11 til 1 og 2 tll 6 Skrifstofuslmi — 22 251 Heimili — 401 991 Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medica! Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy St». Phone 22 866 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200
Dr. S. J. Johannesson 272 HOME ST. STE. 4 THELMA APTS. á fyrsta gölfi Talsimi 30 877 Viðtalstfmi 3—5 e. h. DRS. H. R. & H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEQ
H. A. BERGMAN, K.C. Islenzkur lögfrœOingur Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 1666 PHONES 95 052 og 39 043 DR. A. V. I0HNS0N Dentist 506 SOMERSET BLDG. Telephone 88 124 Home Telephone 36 888
LINDAL, BUHR & STEFÁNSSON Barristers, Solicitors, Notaries, etc. W. J. Llndal, K.C., A. Buhr Björn Stcfánsson Telephone 07 021 Offices: 325 MAIN STREET 1 J. T. THORSON, K.C. islenzkur lögfrasOingur 800 GREAT WEST PERM. BLD Phone 94 668
A.S. BARDAL
84 8 SHERBROOKE ST.
Selui Itkkistur og annast um út-
tarir Allur útbúnatSur sá bezti.
Enníreraur selur hann allskonai
minnisvarða og legsteina.
Skrifstofu talstmi: 86 607
Heimilis talstmi: 601 562
LIMITED
601 PARIS BLDG., WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. Ot-
vega peningalán og eldsábyrgC at
öllu tægi.
PJIONE 94 221
meðlima sinna. Hvað er þjóð-
erni annað en þau einkenni, sem
hafa þroskasí með sérhvrri þjóð
á liðnum dögum? Má vera
margt þess sé gott, sem því þarf
að varðveita og efla, en sumt
slæmt sem þarf að yfirbuga og
út kasta. Trúboðinn mikli,
Stanley Jones hefir gjört þann
sannleika áberandi, að það er
ekki köllun kristniboðans frá
Vesturheimi að kenna Austur-
landaþjóðum amerískt þjóðerni,
heldur að ryðja Kristi veg i
þjóðerní þeirra. Það er eins og
Páfl segði: Indverjum vil eg
vera Indverji; Canadamönnum,
Canadamaðttr; íslendingum, ís-
lendingur.
CCA4C CCTEL
eiMLi
Notv owned and managed by people
born and raised in Gimli
Next time you visit Gimli make your home at the Hotel.
Our roomg are clean and redecorated. And you will
enjoy our tasty meals. — WE AIM TO PLEASE.
IVe zvislt to extend to muny of our Icelandic friends
and to all Icelandic people
j A MERRY XMAS and HAPPY NEW YEAR
z
ST. REGIS HOTEL
285 SMITH ST., WINNIPEG
pœgilegur og rólégur ftiittaHur
miffbiki borgarinnar
Herbergi $2.00 og þar yfir;
baCklefa $3.00 og þar yfir
Agætar máltlBir 4 0c—60c
Free Parking for Gve«t*
L
Hver á þá að vera afstaða vor
til Canada? Hún er landið, sem
vér höfum eignast, landið þar
sem vér eigum heima, land fram-
tiðar vorrar eftir því sem vér
vitum. Vér erum ekki aðeins
heimamenn og borgarar hér.
Þetta er vort land, landið, sem
vér elskum, landið, sem vér helg-
Um krafta vora. Alt eigum vér
að vilja gjöra til þess að efla
farsæld þessa lands, en hindra
framgang alls hins illa. Þessu
landi viljum vér leggja til alt,
sem er nýtilegt í sálarlífi voru,
alt sem er göfugt í íslenzku
þjóðerni voru, alt sem er heil-
brigt í líkamlegum og andlegum
kröftum vorum. Hér viljum vér
lifa, starfa og deyja. Þetta er
föðurland barna vorra. Alt
landið stendur þeim opið með
öllum þess tækifærum. Hér eiga
þau að ávaxta sitt pund að það
verði sem mest úr því til far-
sældar Canada. Enginn má
leggja hindrun á þessa framrás
sé hún aðeins göfug. Hún má
halda áfram upp að efsta tindi
þeirrar guðinnblásinnar mann-
legrar dýrðar, sem þetta land
(Framh. á næstu blaðsíðu)