Lögberg - 22.12.1938, Page 19

Lögberg - 22.12.1938, Page 19
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 22. DESEMfíER 1938 19 hér upp ný alda meÖ því augna- miÖi aÖ vinna bug á þeirri miklu vínnautn, sem hér hefir átt sér stað á siðustu árum. Eru skóla- kennarar hér bæði i Reykholti og á Hvanneyri góÖir stuðnings ■ menn þeirra mála. Það eru húsfreyjurnar, sem farið hafa varhluta af skemti- samkomum s og orðið að annast heimilisverkin, oft einar, þegar unga fólkið hefir verið að skemta sér fram á nætur. Vegna þess hve lengi þær höfðu, marg- ar hverjar, búið á hakanum í þeim efnum, vildu ýmsir góðir menn, sem stóðu í þakklætis- skuld við þær, stuðla að því_ að þeim veittist kostur á því að njóta einhverra þeirra skemtana sem þeim yrði lengi í mdnni. Var það kaupfélagsstjóri Þórð- ur Pálmason í Borgarnesi, sem veitti því máli fylgi sitt að allar konur félagsmanna yrðu kostað- ar, svo fljótt sem því yrði við komið á hentugum tíma, í skemtiferð til merkustu staða i Árnessýslu, Ljósafoss, Þrasta- lundar, Þingvalla, Laugarvatns, Gullfoss og Geysis. Þessi kosta- kjör vöktu ferðahug í brjósti kvenna, sem fæstar höfðu séð þessa merkilegu staði. Um Jónsmessu leytið hófst fyrsti samfloti borgfirzkra húsmæðra í slíka skemtiferð. Voru þær sex- tíu að tölu, úr Hálsasveit, Reyk- holtsdal, Hvítársíðu og Þverár- hliíð. Á öllum veitingastöðum meðfram brautum þeim, sem þeSsi kvenna skari lagði leið sína biðu þeirra borð með vistum og öðru því sem þörfin krafði. Ear- gjald með bifreiðum og allar veitingar fram og til baka, borg- aði kaupfélagið. Eerðin stóð yfir rúma tvo sólarhringa var þá nóttin björt sem dagur og heið- ur himinn. Höfðu margar þeirra, sem í förinni voru, eink- um þær eldri, aldrei veitt sér slíka ánægju fyr og urðu sem ungar í anriað sinn. Nokkru síðar hóf annar floti kvenna för á sama hátt um sömu eða líkar leiðir. En þær húsfreyjur, sem hafa enn ekki átt kost á þvi að nota þetta glæsiboð, eiga það ti! góða næsta sumar. Eg get þessa hér, því þetta mun vera< í fyrsta sinni sem kaupfélag hefir sýnt húsfreyjunum svona mikið drenglyndi. Nú er annað hefti af Héraðs- sögu Borgarf jarðar í prentun og kemur á bókamarkað í þessum mánuði. Þetta hefti saman- stendur af ritgjörðum frá Borg- firðingum. Kemur þar margt, sem í frásögur hefir þótt fær- andi viðsvegar á þessu héraði. Lengstu þættirnir í þessu hefti eru eftir Ásgeir Bjarnason fyrr- umi bónda i Knarrarnesi á Mýr- um, föður Bjarna alþingismanns á Reykjum í Mosfellssveit og Björn Jakobsson á Stóra-Kroppi i Reykholtsdal. Ásgeir skrifar um margt frá eldri tímum þar á Mýrum og kemur víða við. ^Björn skrifar um skáld, hagyrð- inga og rithöfunda frá því á söguöld og fram á þessa tíma, sem talist geta til Borgarfjarð- arhéraðs. — í þá ritgjörð er heimildum safnað úr ýmsum áttum ásamt nokkrum ljóðabrot- um og lausavísum. Um það má lengi deila hvað langt skal geng- ið i slikrj upptalningu og sýnist þar ekki öllum á einn veg. Og altaf verða einhverir útundan sem hafa staðið jafnfætis eða fremri þeim, sem þarna koma fram á sjónarsviðið. En alt um það er þáttur Björns saminn af smekkvísi, dugnaði og hlut- drægnislaust gagnvart ö.llum þeim, sem koma þar við sögu. En smáir laxar eru þar með í blandi. Bókin verður prýdd f jölda landslagsmynda úr hérað- inu, sem teknar eru flestar af Þorsteini Jósepssyni frá Signýj- arstöðum ,í Hálsasveit. Hefir Þorsteinn fyrir löngu vakið á sér eftirtekt fyrir smekkvisi í þeirri grein og hlotið verðlaun fyrir landslagsmyndir. Þá verða þar líka myndir af höfundum allra þeirra greina, sem í heft- inu standa. Þótt reynt hafi verið að vanda til þessa heftis af Héraðssögunni eftir föngum þá vita þeir bezt sem að þvi hafa unnið, að eitt og annað mætti þar betur fara, en sem réttsýnir dómarar kunna þó að virða á betrj veg með tilliti til þess að bókin er rituð í hjáverkum af bændum héraðsins og eru sumir þeirra komnir til hárrar elli. Fyrsta hefti Héraðssögu Borg- arfjarðar fékk ágætar viðtökur og má því vænta að þetta hefti, með kostuni' sínum og göllum fái ekki lakari viðtökur hjá ýms- um velmetnum ritdómendum. Engar farsóttir hafa gengið hér á síðastliðnum misserum og herklaveikin, sem lagðist hér á tímabili þungt ,á sum heimili, virðist mikið í rénun, þótt henn- ar verði vart á ýmsum stöðum; er þá leitað til heilsuhælanna með þá sjúku oft nteð góðum árangri. Einkum er það aldrað fólk, sem látist hefir hér á þessu ári og slkal eg þessu næst minn- ast ýmsra þeirra. Sigurður Fjeldsted í Ferju- kosti lézt á heimili sínu síðast- liðið vor, eftir langa legu. Sig- urður var sonur stórbóndans og listamannsins nafnkenda Andrés- ar Fjeldsted á Hvítárvöllum. Ferjukot er eitt g*læsilegasta heimili i Borgarfirði og bjó Sigurður þar nær 4O ár með stórri rausn og prýði og með réttu talinn héraðshöfðingi. Hann átti t^ö börn, Sesselju konu Sigurðar Guðbrandssonar frá Hrafnkelsstöðum, mjólkur- bússtjóra í Borgarnesi og Krist- ján búfræðing í Ferjukoti. Kona Sigurðar var Elízabet Árnadóttir úr Hafnarfirði. Býr hún nú í Ferjukoti. Séra Gísli Einarsson, fyrrum prestur í Hvammi i Norðurár- dal og síðar i Stafholti, lézt í Borgarnesi í sumar, 81 árs að aldri. Hann var dóttursonur hins þjóðkunna fræðimanns Gísla Konráðssonar og bróðir sjónleikaskáldsins Indriða Ein- arssonar, sem enn lifir i hárri elli. Séra Gísli var heilsu- hraustur alla æfi, lipur á fæti, röskur í ferðum og sat fallega á hseti að skagfirzkum sið. Kona hans var Vigdís Pálsdóttir frá Dæli í Víðidal d. 1932. Heimili þeirra hjóna var lofað mjög fyrir gestrisni. Þótti þar mörg- um gott að koma meðal annars fyrir það hvað börn þeirra, sem voru sjö að tölu, höfðu fagrar söngraddir og léku sum þeirra líka vel á hljóðfæri. Verða slík heimili aðlaðandi. Á síðustu prestsskaparárum séra Gisla var heimili hans farið að verða tóm- legra eftir því sem aldur færðist yfir hann og börn hans dreifð- ust i ýmsar áttir. Þessi eru börn séra Gísla: • Sverrir, bóndi í Hvammi í Norðurárdal, giftur Sigurlaugu Guðmundsdóttur frá Lundum; Björn bóndi í Stóru- Gröf, giftur Andréu Kristleifs- dóttur frá Stóra-Kroppi; Ragn- heiður, gift Hermanni Þórðar- syni frá Glitstöðum; Sigurlaug, gift Þorsteini Snorrasyni frá Laxfossi; Vigdís, ekkja eftir Jón Blöndal lækni í Stafholtsey; Efeni'ia og Kristín, ógiftar. Sigmundur Þorsteinsson bóndi í Gróf í Reykholtsdal, lézt síð- astliðinn vetur, kominn á átt- ræðisaldur. Hann var fæddur í Gróf og ól þar allan sinn ald- ur. Kona Sigmundar var Val- gerður Gísladóttir frá Brúsholti í Flókadal. Lifir hún mann sinn. Þau áttu níu börn, fimm syni og fjórar dætur, sem öll eru á lífi. Þorsteinn Sigmundsson býr nú í Gróf ógiftur. Einar Sigmunds- son býr f, Drangholti, kona hans er Jóney Jónsdóttir Eyjólfsson- ar frá Hurðarbaki. Sumarliði býr í Borgarnesi, giftur Guðríði Halldórsdóttur frá Kjalvarar- stöðum. Flest börn Sigmundar eru ógift og einhleyp. Sigmund- ur í Gróf bjó við lítil efni, en var starfsamur og vinsæll. Ábýl- ið hans litla hefir nú tekið mikl- um umbótum frá því sem áður var þegar litli torfbærinn stóð þar í dálitlum kargamóa. Guðmundur bóndi á Hofs- stöðum i Hálsasveit lézt þar síð • astliðinn vetur. Hann var 49 ára að aldri, ógiftur og barn- laus. Guðmundur var sonur Eyjólfs Gíslasonar, sem lengi bjó á Hofsstöðum og lifir enn í Borgarfirði hjá Steinunni dótt- ur sinni, sem þar dvelur nú ekkja. Eyjólfur átti Valgerði Bjarnadóttur frá SkarðsViömrum i Norðurárdal. Komust átta börn þeirra til fullorðinsára, en af þeim hafa nú látist fimm á siðustu áratugum, Bjarni, Gísli, Rósa, Ingólfur og nú síðast Guðmundur. Guðmundur var greindur maður, hagur á verk- (Fratnh. á bls. 23) £ f f f f Innilegar hátíðakveðjur Vér óskum v o r u m mörgu islenzku vinum Gleðilegra Jóla og Farsæls Nýárs, um leið og vér þökkum viðskifti liðna timans. Þér getið ávalt reitt yður á giftusamlega bökun, ef þér notið FIVE ROSES Til allra hluta nytsamt fyrir PASTRY - CAKES - PUDDÍNGS - BREAD LAKE OF THE WOODS MILLING CO. LTD. Offices at: Winnipeg - Regina - Calgary - Victoria - Ft. William Edmonton - Medicine Hat - Vancouver Hlöður, sem taka á móti korni i MANÍTOBA SACKATOHEWAN ALBÉRTA WB7-20 C/uvl/ H 5 C Thi8 advertist'ment is not inserted by the Government Liquor Control Com- mission. The Commission is not responsible for statements made as to quality or products advertised. The Manitoba Rolling Co. Ltd. Manufacturers of Open Hearth Steel and Merchant Bars Óskum Islendingum í Selkirk-bce, og livar annarsstaðar sem þeir eru búsettir Gleðilegra Jóla Og Farsæls Nýárs

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.