Lögberg - 20.12.1945, Qupperneq 10
10
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 20. DESEMBER, 1945
Systir Ísland
Minning um
Ólajíu Jóhannsdóttur.
Ein af þeim fáu íslenzku kon-
um, sem unnið hafa sér nafn
meðal erlendra þjóða, er Ólafía
Jóhannsdóttir. Hjá frændþjóð
vorri, Norðmönnum, var hún
nefnd “Systir Island”.
Ólafía var fædd á Mosfelli í
Mosfellshreppi 22. desember
1863, dóttir séra Jóhanns, prests
að Mosfelli, og konu hans, Ragn-
heiðar, systuf Benedikts Sveins-
sonar, sýslumanns og alþingis-
manns, og Þorbjargar Sveins-
dóttur ljósmóður-
1 endurminningum sínum nefn
ir hún fyrstu æviár í Viðey, þar
sem hún var í fóstri til fimm
ára aldurs, og ann hún mjög
þeim stað og frúnni sinni í Við-
ey. Móðir hennar kom og tók
hana þaðan og flutti hana til
systur sinnar, Þorbjargar Sveins
dóttur ljósmóður, og var hún í
fóstri hjá henni eftir það.
Ólafía naut hins bezta upp-
eldis hjá fóstru sinni og ömmu.
Lýsir Ólafía fóstru sinni í end-
urminningum sínurr^ með mikl-
um ágætum. Var hún líka þjóð-
kunn kona fyrir gáfur og djörf-
ung og áhuga fyrir hvers konar
umbótum í þjóðfélaginu.
Ólafía gekk í kvennaskólann í
Reykjavík, og síðan las hún und-
ir stúdentspróf í latínuskólanum.
En hún varð að lesa utan skóla
því að henni var ekki leyft að
ganga í skólann. Það, þótti ekki
kvenlegt á þeim árum að ganga
í latínuskólann. Hún tók fjórða
bekkjar próf og las undir stú-
dentspróf á einum vetri. En hún
fékk ekki leyfi til að taka próf-
ið eftir svo stuttan tíma, svo að
hún tók það aldrei. Um þetta
leyti stundaði hún kennslu á
vetrum, en las undir stúdents-
prófið í hjáverkum.
Hún hafði mikinn áhuga fyrir
menntun húsmæðra, og í því
skyni ferðaðist hún til Danmerk
ur og var þar á skóla til undir-
búnings undir húsmæðrafræðslu.
Einnig dvaldi hún á stærri heim-
ilum.
Frá Danmörku fór hún til Nor-
egs og dvaldi þar um tíma. Þar
komst hún í kynni við forstjóra
lífsábyrgðarfélagsins “Star”,
Æskti hann þess, að hún færi
til íslands og útbreyddi félagið
þar og einnig í Færeyjum. Ólafía
tók þessu boði og fór heim. Hún
ferðáðist mikið fyrir “Star’’ og
stofnaði deild á íslandi.
Árið 1895 komu þrjár konur
frá Ameríku á vegum Good-
Templarareglunnar og Hvíta-
bandsins. Var það ungfrú Akkel-
mann og tvær kennslukonur.
Ungfrú Akkelmann hafði ferð-
azt umhverfis jörðina og stofn-
að Hvítabandsdeildir- Áður en
hún kom, hafði Ólafía stofnað
Hvítabandsfélag í Reykjavík, og
gekk það nú í alþjóðasamband-
ið.
Ólafía fylgdi þessum konum
til Gullfoss og Geysis, — eins
og gefur að skilja á hestbaki.
Dáðust þær mjög að okkar fagra
landi og álitu, að fólkið, sem í
því byggi, mimdi vera mjög gott.
Árið 1899 fékk Ólafía bréf frá
Bandaríkjunum, þar sem hún var
beðin að mæta á fundi Hvíta-
bandsins í Toronto í Kanada, en
fundinn átti að halda um haust-
ið. Var boðið frítt far frá Eng-
landi. Förin var ráðin, og Ólafía
fór að áliðnu sumri til Ameríku.
Hún ferðaðist þar um og kynnt-
ist mörgu. Segir hún frá því í
endurminningum sínum.
Að rúmu ári liðnu kom hún
aftur heim og starfaði þá að
ýmsum málum fyrir “Star”,
Hvítabandið og Good-Templara-
regluna. Árið 1900 ferðaðist hún
um hávetur frá Reykjavík til
Seyðisfjarðar, ýmist á hestum
eða gangandi, og mun slíkt ferða-
lag konu vera eins dæmi á þeim
tímum. Á þessu ferðalagi hélt
hún fyrirlestra um bindindismál
og útbreiddi “Star”.
Sumarið 1900 ætlaði Hvíta-
bandið að halda heimsmót sitt í
Edinborg. Var ráðgert, að Ólafía
færi þangað. Fór hún frá Seyðis-
firði á skipi til Edinborgar. Þetta
sama ár hafði erkibiskupinn í
Kantaraborg boðað til heims-
móts til að ræða bindindismál,
og átti Ólafía að mæta þar fyrir
íslenzka Good-Templara. Var
mót þetta haldið stuttu á undan
Hvítabandsmótinu.
Norðmenn, sem voru á þessum
þingum, fóru þess á leit við
Ólafíu, að hún kæmi með þeim
til Noregs og ynni þar fyrir
bindindismálið. Hún dvaldi
samt í Skotlandi um sumarið,
en fór til Noregs um veturinn.
Þar ferðaðist hún og hélt fyrir-
lestra fyrst í stað. En- heilsa
hennar bilaði, og hún varð að
hætta og fór heim til móður-
systur sinnar »í Reykjavík, sem
tók henni tveim höndum.
Nú var hún heima um skeið
og hjúkraði móðursystur sinni í
banalegu hennar og sá um út-
för hennar.
Á þessum árum tók hún þátt
í heimatrúboðs-hreyfingu þeirri,
sem Sigurbjörn Á. Gíslason hóf
hér á landi, og veitti honum að-
stoð í því starfi.
Sumarið 1903 fór hún á Hvíta-
bandsfund í Genf, og úr þeirri
ferð til Noregs, og dvaldi hún
þar til 1920, að hún kom aftur
til íslands.
í Noregi var henni opinn veg-
ur til starfs, þar^var hún eftir-
sótt og viðurkennd að makleg-
leikum.
Sumar manneskjur bera með
sér svo sterk persónuáhrif, að
þær gleymast aldrei alla ævi,
jafnvel þótt þær hafi orðið á
vegi manns þegar á barnsaldri,
og orðin, sem þær tala, festast
í minni og verða íhugunarefni
jafnan síðan. Jafnvel 1 almenn-
um viðræðum mæla þær þau
orð, sem hafa þann kraft, að þau
lýsa upp dimmar nætur og
dimm vetrarkvöld, hressa og
gleðja dapran huga. Það er lífs-
speki í orðum þeirra, sprottin
af miklum gáfum, mikilli lífs-
reynslu og sálargöfgi. Það eru
spakir menn, sem sýo mæla.
Slík var Ólafía.
Eg var 10 ára, þegar eg sá
Ólafíu fyrst. Hún var þá í fyrir-
lestraferð norður og austur um
land. Þessi unga Reykjavíkur-
stúlka lagði í slíka ferð um há-
vetur alla leið frá Reykjavík til
Seyðisfjarðar, eins og þá var á-
statt: nær engin á brúuð, aðeins
vegarslitur hér og þar, enginn
sími og ekkert að átta sig á,
nema vörður á fjallvegum.
Allar hindranir urðu að víkja
úr vegi fyrir eldheitum áhuga
þessarar ungu stúlku. Hún starf-
aði fyrir hófsemi og bindindi
og barðist móti þeirri brenni-
vínsöld, sem þá geisaði og hafði
eyðilagt margan efnismann,
> teietetetete{e(eie!ete!cicie!e%!e«e«e<e>etete!e%
GLEÐILEG JÓL
OG NÝÁR
ADANAC j
741 Sargent Ave.
i I
B. Myers, eigandi
i
)Mt»»iat9í9)at9t3ta)»9t3t»9)9iai%»S)a)k9)«
'eteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteietetctetetetetetetcte^teteteteteteteteteteteteteteteteíl
CANADIAN WESTERN B0X C0.
LIMITED
YEOMAN AND PACIFIC AVE., WINNIPEG
835 MARION STREET, ST. BONIFACE
Óska íslenzkum viðskiplavinum sínum gleðilegra jóla
og góðs og farsæls nýárs.
|
1
1
I
1
I
i
£
Jf »»»»»»»»»»9Ö)»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»
LOUIS HATSKIN, forsijóri
SÍMI 201 185-86
bæði hér heima og erlendis og
einnig hér í Húnavatnssýslu, þar
sem húsfreyjan á einu stórbýli
sýslunnar tók tappann úr brenni-
vínstunnu bónda síns, þegar
önnur tunnan hafði verið sett á
stokkana.
Ólafía hélt fyrirlestui* um
bindindi á heimili foreldra
minna, Lækjarmóti í Húnavatns-
sýslu. Hér var ekkert funda-
hús, aðeins vel hýstur bær á
þeirra tíma vísu. Eg man, að
Ólafía stóð í dyrunum milli pilta
hússins og stofunnar og talaði
þar. Fólkið, sem hlustaði, var
margt: full stofan og piltahús-
ið og loftið yfir. Stiginn upp á
loftið var úr piltahúsinu, svo
að vel mátti heyra til fyrirles-
arans þangað.' Svo skýrt og
snjallt talaði hún. Ekki sá eg, að
hún hefði nokkurt orð skrifað,
heldur talaði hún alveg blað-
laust, en ræðan var flutt með
slíku lífi og fjöri, að eg minnist
þess alla ævi.
Eftir fyrirlesturinn gekk hún
milli fólksins og spurði, hvort
það vildi ekki mynda félagsskap
um bindind'i. Henni tókst að
stofna félagið, og formaður þess
varð Jósef Elíesersson, bóndi í
Lækjarkoti, faðir Þorsteins Jó-
sefssonar rithöfundar.
Eg man, að Ólafía talaði við
vinnukonur móður minnar og
spurði þær, hvort þær ættu ekki
kærasta, sem þætti gott í staup-
inu. Ef svo væri, ættu þær að
ganga í bindindisfélagið.
Þegar Ólafía fór héðan, hafði
hún fyrir fylgdarmann Magnús
Benediktsson, bónda í Hvammi
í Vatnsdal. Sótti hann hana hing-
(Framh. á bls. 11)
jxtetetetetcteteteteteteteteteteteteteteteieteteieteteteteteeeteteietetetetctetetetetcteteteteteteteteteíf
*
I
I
I
I
I
Jóla- og Nýárskveðjur
frá framkvæmdarsljórn og starfsfólki
■
|
■
K
I
K
THE J. II. ASHDOWN
HARDWARE CO. LTD.
I WINNIPEG REGINA SASKATOON CALGARY
EDMONTON
“Success” Course
---IS---
Sound lnvestment
NEW YEAR TERM
OPENS
Wednesday January 2nd
Our New Year Term will open on Wednesday, January 2nd, for
Day Classes and on Thursday, January 3rd, for Evening
Classes. We invite you to begin your Course on that date. Our
office will be open for enrollments every business day between
Christmas and the New Year, from 9 a.m. to 6 p.m. You may
arrange an appointment for a personal interview by
telephoning 96 434.
(lei&we. 044/i 2>edÁ
If you cannot enroll on January 2nd, you may begin later, as our system
of personal and group instruction permits new students to commence at
any time and to start right at the beginning of each subject. We suggest,
however, that you advise us early in regard to the approximate date on
which you expect to enroll as our maximum attendance quota will be
reached very early in the New Year. A personal call at our office or a
remittance of $10.00 by mail, will reserve your desk for the date on which
you desire to commence.
'W'uie 'Mé', GaLL at au>i Ójjf
osi Plt&ne 96434
for a copy qf our illustrated Prospectus, which contains detailed
information regarding our courses and the College. This is free, on request.
THE AIR-CONDITIONED COLLEGE OF HIGHER STANDARDS
WINNIPEG, MANITOBA
PORTAGE AVE. aí EDMONTON ST
$»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»<