Lögberg - 20.12.1945, Qupperneq 14

Lögberg - 20.12.1945, Qupperneq 14
14 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 20. DESEMBER, 1945 HUGLEIÐINGAR UM DRAUM Ejtir Magnús Gíslason Það ber sjaldan við, að mig dreymi merkilega drauma. Þeir eru oftast óljósir og ruglingsleg- ir, og vekja litla eða enga eftir- tekt hjá sjálfum mér- Einhver gleggsti draumur, sem eg minnist að mig hafi dreymt, dreymdi mig um páskaleytið síðastliðið vor. Sagði eg frá hon- um daginn eftir, og skrifaði hann einnig upp. Ráðninguna fannst mér eg svo finna síðar út, þó að hún sé nokk uð tíningsleg. Nú ætla eg að segja frá draumnum hér og þeim fyrirbærum, sem mér þótti svipa til þess að gæti verið ráðn- ing á honum. Eg þóttist vera staddur ein- hvers staðar erlendis. Hélt eg helzt, að það væri í Jerúsalem. En þó fannst mér bærinn vera líkari þorpi en stórri borg. Eg þóttist vera þarna við einhverja vinnu ásamt fleiri mönnum. Mér þótti vera kirkja inni í bænum, og sáum við hana frá vinnu- stað okkar, sem mér þótti vera í útjaðri bæjarins að sunnan- verðu. ^ Eg hugsaði með mér, að það gæti verið gaman að koma ein- hvern tíma í þessa kirkju- Og svo var eg kominn í kirkjuna, án þess að mig dreymdi nokkuð um undirbúning að því. Þótti mér haga þarna að ýmsu leyti líkt til og hér í Dómkirkjunni, en þó var sitthvað fráburgðið því, sem þar er. Eg þóttist vera kominn í sæti uppi á lofti að sunnanverðu, fast inni við biskupsstúkuna. Engan prest sá eg, né neina kirkjulega athöfn um hönd hafða, og ekki man eg eftir neinu altari eða prédikunarstóí, svona var nú margt ókirkjulegt þarna innan um og saman við. Eg þóttist gægjast fram af loftsvölunum til að sjá inn í kórinn, og þá bar fyrir augu mér mjög dýrlega mynd. Mér þótti allur kórgaflinn vera einn mynd- flötur. Og myndin, sem birtist þar, var af upprisu Krists. Þótti mér Kristur vera kominn upp á myndflötinn og stefna skáhallt upp frá hægri til vinstri. Þótti mér hann vera í svipuðum stell- ingum og á altaristöflunni í þjóð- kirkjunni í Hafnarfirði. En þarna sáust engir grafarverðir eða sortaský eins og þar sjást. Loft- ið var allt jafn bjart, en þó sáust létt ský með sólroðalit, og voru þau eins og á ferð undan vindi. Sums staðar sást í bláa heiðríkju á milli. Gerði eg mér ekki grein fyrir öðru en að þetta væri eðlilegur veruleiki. Nú vék draumurinn að öðru, en þetta hvarf. Þóttist eg þá vera kominn að stiga, sem lá nið- ur af loftinu bak við biskups- stúkuna. En hann var ólíkur stig- anum hérna í Dómkirkjunni. Þessi stigi lá beint niður. Hann var ekki með neinum palli og það var handrið á honum til hægri handar. Var það vafið með svörtum slæðum. Er eg kom að stiganum, stóð systir mín — sem Þóra heitir — hjá mér og maður hennar- Fóru þau á undan mér niður í stig- ann. Komst Þóra niður á gólfið og stanzaði þar. Maður hennar komst neðarlega í stigann en eg var einu þrepi ofar. Þarna stönz- uðum við til að horfa á fólk, sem var á leið inn kirkjugólfið. Þeir fremstu voru komnir innst í ganginn, móts við innstu stólana. Nú tók eg eftir því, að þarna var boghvelfing yfir, sem hvíldi á steinsúlum beggja vegna. Þótti mér vera þarna eins konar skil- rúm milli kórs og forkirkju. Svo fór eg að veita eftirtekt fólkinu, sem kom framan gang- inn. Þeir, sem fremstir gengu, voru í litklæðum og með eins konar krónur á höfði. Tók eg eftir þremur slíkum persónum. Eitt þeirra var kona. Þótti mér þetta vera útlent fólk, þarna komið til að skoða kirkjuna. Nú þótti mér eiga að sýna fólk- inu upprisumyndina, sem eg var búinn að sjá sjálfur. Þótti mér eiga að gera það með einhverj- um vélaútbúnaði í sambandi við rafmagnið. En þá kom einhver truflun í þennan vélaútbúnað, og sá eg þá eins og leiftri bregða fyrir. Því var þá lýst yfir, að ekki væri hægt að sýna upprisu- myndina. Þarna neðan við stig- ann sáum við nokkrar smápjötl- ur á gólfinu, eins og það væru afgangar af því sem stigahandrið ið var klætt með. Þótti mér Þóra taka upp eina af þessum pjötlum og segja, að sig langaði til að eiga hana til minningar um þetta. Nú héldum við upp stigann aftur, og komum við þá í her- bergi, alleinkennilegt. Var þar lágt undir loft, og voru eins og smáhvelfingar í loftinu- Var eins og þetta væri nýmúrað, og var allt með sementslitum. Þarna voru nokkrar ljósmyndir á veggj- um, eins og kvartarkar stærð. Virtist mér þær allar af konum. Var hvítum klút brugðið fyrir munn og nef, og hnýtt að aftan- verðu. Þótti mér þetta vera ein- kennilegt myndasafn, og hugði eg helzt að það væru myndir af hjúkrunarkonum. Þarna endaði draumurinn. Hugsaði eg þetta vera þýðingar- lítinn draum. En þó þótti mér vænt um upprisusýnina í draumn um. Hún var svo fögur og eðli- leg. Mun eg lengi minnast þess. Mánudaginn 17. maí, kl. 10 f. h., fór eg í kirkju. Þá átti að halda minningarguðsþjónustu í Dóm- kirkjunni í tilefni af þjóðhátíð- ardegi Norðmanna. Eg fór upp á loft norðanmegin og fékk sæti í neðsta bekk á miðju lofti. Séra Bjarni var kominn í stólinn, þeg- ar eg kom og byrjaður á ræðu sinni. Hann mælti á norsku og sagðist prýðisvel. Niðri í kirkju- unni var allmargt af norsku fólki- Norskur fáni var reistur á stöng í kórdyrum að norðan- verðu, móts við skírnarfontinn. Undir prédikunarstólnum sátu þrír menn í hermannabúningi. Voru það fánaverðirnir. Meðan presturinn flutti ræð- una, kom maður inn á söngpall- inn og hélt á myndavél. Tók hann að leita sér að hæfilegri aðstöðu til að taka mynd inn eftir kirkjr unni. Allt í einu brá upp sterku leiftri frá myndavél hans, og hann hafði lokið við að taka mynd. Síðan fór myndatökumað- urinn inn eftir loftinu að sunnan- verðu, og var auðsjáanlega að hugsa um að taka mynd af prest- inum í stólnum. Við þessa pré- dikun geisluðu oft hinir fallegu brosdrættir á ásjónu séra Bjarna, og datt mér í hug að mynda- smiðurinn yrði heppinn, ef hann næði góðri mynd af honum í stólnum með þessum sérkenn- um hans. Myndasmiðnum fannst af- staða sín gagnvart prestinum auðsjáanlega aldrei nógu góð, því hann var altaf að færa sig til. Síðast fór hann niður að loft- grindunum utan við biskupsstúk- una, nákvæmlega á sama stað og eg þóttist vera á í kirkju þeirri, sem um getur í draumnum, þeg- ar eg sá hina dýrlegu altaris- mynd. — Þegar hann virtist vera kominn þarna í viðunandi af- stöðustellingar, hóf presturinn að lesa faðirvorið, og virtist mér myndasmiðurinn hika við að stilla á hann myndavélinni á meðan. Svo vék presturinn strax úr stólnum, og myndasmiður- inn missti þar með af þessu við- fangsefni. Síðan kom hann aftur á söngpallinn, og tók mynd inn til kórsins, og brá fyrir sterku leiftri er hann smellti af. Dómkirkjukórinn söng norska sálma og ættjarðarkvæði undir stjórn Páls ísólfssonar. Eitt kvæði var sungið í einsöng af Gunnari Pálssyni. Tókst það prýðisvel. Allt í einu var eins og eitthvað óvænt bæri við niðri í kirkjunni. Það heyrðist skær og falleg konurödd taka að mæla á norska tungu. Þeir, sem gátu, fóru að teygja sig fram á grindurnar, til að gæta að hvað þetta væri, og var eg einn af þeim, sem var svo heppinn að sjá hvaðan rödd þessi kom. Fremst í næst innsta bekk, að sunnánverðu í kirkjunni, stóð upp lagleg kona, fremur ung, og sneri sér utan eftir kirkjunni og mælti fram kvæði af mikilli snilld- Það var baráttukvæði, mælt frá hjartarótum norsku þjóðarinnar undir yfirstandandi hörmungar-ástandi hennar. Hygg eg, að þetta hafi snortið flesta, sem á hlýddu. Sú, sem las, var norska leik- konan Gerd Grieg, og var kvæð- ið eftir mann hennar, Nordahl Grieg, ort í tilefni af þjóðhátíð- ardegi Norðmanna undir yfir- standandi kringumstæðum. Síðan var sunginn þjóðsöngur Norðmanna: “Ja vi elsker dette Landet.” Að lokum blessaði svo presturinn yfir söfnuðinn. Fánaverðirnir gengu að fánan- § » » g I v SARGENT FLORIST D. OSBORNE, eigandi :teteteteic<c>c« 1 Gefið blóm um jólin. Blómaplöntur og Skrautblóm við ýmsu verði. Pantanir afgreiddar með litlum fyrirvara. Gleðileg jól og farsælt nýár! 739 SARGENT AVENUE (við Beverley Street) SIMI 26 575 1 3 1 1 McDONALD DURE 1 LUMBER CO. LTD. EM' 1 LUMBER & FUEL “One Piece or a Carload Office and Plant, 812 Mall Slreet % <Seaóxut'd. Q'ieeíúUfA THANK YOU! IT'S A LITTLE THING TO SAY — BUT WE SINCERELY APPRECIATE YOUR PATRON- AGE . . . WE SHALL CONTINUE TO MAKE EVERY EFFORT TO MERIT YOUR GOODWILL. PERTH’S CLEANERS — LAUNDERERS — FURRIERS % I 1 I 1 % I I um, hylltu hann, og gengu svo í fararbroddi með fánann á lofti utan eftir kirkjunni, og lutu Norð menn í þögn á meðan. Síðan var gengið úr kirkjunni. Séra Bjarni stanzaði fyrir neðan kórtröppurnar. Gengu nokkrir Norðmenn til hans og tóku í hönd honum. Þar á meðal Gerd Grieg. Datt mér þá í hug, að hún væri konan með kórón- una, sem eg sá í draumnum. Þegar eg gekk heim frá þessari kirkjuathöfn, fannst mér margt af því, sem eg sá og heyrði, minna mikið á sumt af því, sem bar fyrir mig í draumnum. Fátt eða ekkert var þó alveg eins, en mér fannst mega lesa út úr því tákn- ræna líkingu. Þetta var minn- ingarathöfn fyrir þjóð, sem var í sorg og þrengingum. Gátu blöðin, sem dreift var um bekk- ina, með norska fánanum á for- síðu, og andlegum sálmum og ljóðum þessarar þjóðar, bent á sorgarslæðurnar í stiganum. ^(Framh. á bls. 15) »ictctete)c!cic)e)ctcicicic<c!ctctete«e!cieteteic« HÁTÍÐARKVEÐJUR § lil viðskiptavina vorra beautq u-bop Formerly: Matthews Hairdressing 802 ELLICE AVENUE (Corner Arlington St.) PHONE 3G731 Lillian Eyolfson i INNILEGAR JÓLA- OG NÝARSÓSKIR! ------------------------------------- I | ROBERTS & WHYTE LTD. § 2 /1 y Sargeni og Sherbrook Sími 27 057 ^ » 6 I &»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»<@ Við óskum öllum íslendingum gleðilegra jóla og farsæls nýárs! ASGEIC/CN’I I s Paint and Wallpaper Verzlum með allar tegundir af málningarvörum og veggpappír. 698 SARGENT AVENUE SÍMI 34 322 ’tetoctctctctctoetetctctctctctetetctetctetctctctetetctetctetetctctctoetetctctctctetctoetetetetctetc* TILVALDAR JOLAGJAFIR KARLMANNASKÓR OG LEIKFANGAVARNINGUR Hússloppar frá $5-95 til $16.95 Bolhlýfar Hálsbindi frá $5.95 til $16.95 1 I g Thomson & Pope L/TB. The Man‘s Shop % I 1 A 379V2 PORTAGE AVENUE, WINNIPEG i»»»»»»»a

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.