Alþýðublaðið - 04.08.1960, Side 7

Alþýðublaðið - 04.08.1960, Side 7
VAXANDISKREIÐ ARFRAMLEIÐSLA í FYRKADAG bauð Landhelgisgæzlan blaða- mönnutn og fleiri gestum í ferð um hið nýopnaða dragnótaveiðisvæði á Faxaflóa. Með í ferðinni voru m. a. Davíð Ólafsson veiðimálastjóri og Pétur Sigurðsson, forstj. Land- helgisgæzlunnar. Ferðin var farin með hinu nýja og glæsilega varðskipi, Óðni, og var fyrst farið 7—8 sjómílur vestur frá Reykjavík. Þar var stöðvað við vélbátinn Guðrúnu, sem var að drag nótaveiðum, lá við bauju, og var nýbúinn að draga nótina inn. Gestirnir fóru í gúmbát yfir í Guðrúnu, og dvöldust þar nokkra stund og töluðu við skip- stjórann, Hjörleif Jóns- son. Hjörleifur lét vel yfir aflanum sem var mesí- megnis stór og falieg rauð- spretta. Eftir þessa heimsókn, var haldið yfir í Maríu Júlíu, sem var á þessu svæði við fiskirannsóknir. Meðan þessum heimsókn- um fór fram voru nokkr- ir gestanna á skaki frá Óðni. Veiði var heldur í lakara lagi, en aflakóng- urinn veiddi þó 7 ýsur við mikla öfund annarra gesta. María Júlía var að veið- um með botnvörpu fullrar stærðar, og voru skips- merni að draga inn trollið. ÖHum fiski, sem skipið veiðir þarna, er fleygt í sjóinn aftur. Um borð í skipinu er fiskifræðingur, sem tekur allan kolann og festir lítið númer við hann, og hendir honum í sjóinn aftur. Þessar að- gerðir eru liður í rann- sóknarstarfi, sem þarna fer fram. • Síðasta skipið, sem far- ið var um borð í, var Að- albjörg frá Reykjavík. — Einar skipstjóri tók á móti gestunum, og bauð þeim með sinni alkunnu kank- vísi, að ganga í bæinn. Þegar um borð kom, blasti við augum eitt hólf, hálf- fullt.af feitum kola, sem þeir höfðu fengið á stutt- um tíma. Einar var að draga inn trollið, þegar komið var tim borð, og bíða nú allir nokkra stund í ofvæni eftir því, að sjá pokana koma upp. Þegar pokinn birtist, aðeins 37,6 þús. lestum og sést af tölum þessum, að um mikla aukningu er að ræða í ár. Af afla þeim, er fór f herzlu. voru 39,1 þús. lestir bátafiskurr en. 8,3 þús. lestir togaraíiskur í ár, en í fyrra 26,4 þús. lestir bátafiskur og 11,1 þús. lestir togarafiskur. MEST í FRYSTINGU Mest af íiskaflanum, hefur farið í frystingu eða 113,6 þús. lestir. Á sama tíma í fyrra fóm 136,6 þús. lestir í frystingu. t söltun 'hafa farið í ár 55 þús. lestir en á sama tíma í fyrra. 51 þús lest. sást að hann var hálffull- ur af lcola. Nokkrar ýsur og þorskar voru þó einnig með. Þegar pokinn kom upp sagði Einar: „Sjáið þið strákar, bvað þetta er hreint, þetta er næstum eingöngu koli. Það er mun ur að vera að þessu nú, heldur en ’52, þá fékk mað ur ekki nema 1—2 körfur úr halinu. En nú fær mað- ur þetta 7—8 körfur.“ Eftir að hafa verið háif tíma hjá Einari, þá var haldið aftur í Óðin, og lagt af stað til lands. Að þessari ferð lokinni, koma fram margar spurn- ingar í huga manns. Eins oe allir vita, þá hefur staðið mikill styrr um allt land í sambandi við opn- un dragnótasvæða. Sitt sýnist hverjum um þessi mál, en afli bátanna sýn- ir, að þetta er vel reyo- andi, þó ekki sé um lengri tíma að ræða en tvo mán- uði. Svo er annað mál, hvort miðin hljóta skaða af þcssum veiðum eða ekki. Það kemur í ljós scinna. FUJá þjóðhátíð SAMKVÆMT yfirliti Fiskifé- Iags íslands nam skreiðarfram- leiðslan 47,4 þús. lestum í lok maí þessa árs. A sama tíma í fyrra nam skreiðarframleiðislan WWWWWWMWMMWMMMWWIMMWWMWMWWMMMWnMWMMW^WWmWWWWI Undirrituð ósltar eftir að taka þátt í síldarstúlknahapp- drætti Alþýðublaðsins, sem dregið verður í 15. september næstkomandi, (Vinningur: 2000 krónur.) Ég heiti:................................................. Heimilisfiang mitt er: ................................. Ég vinn núna á söltunarstöðinni:.......................... Söltunamúmer mitt er: .................................... (undirskrift) Athugið: Með heimilisfangi á blaðið við þann stað þar sem Hægt verður að ná til eiganda seðilsins eftir 15. september. Merkið umslagið: Síldlarstúlknahappdrætti. Þeir eru iðnir við kolann í Faxaflóa og þótt nokkuð af þorski og ýsu slæðist með, er það hverfandi Iítið, miðað við magníð áf kolanum. Sjómenn teljá að kolaaflinn hafi allt að sjöfald- ast frá því árið 1952. Myndin er af gestom Landhelgisgæzl- unnar um borð í einum bátnum í fyrradag. eBænffiBMBBHBBaBaHBBaBrananBBBnaBBnn FUJ í ÁKNESSÝSLU efnir|tilT hóptoroar á þjóðhátíðina í Vbst mannaeyjinn os verður falið með Herjólfi' frá Þorlákshöfnfkl, 9 í fyrramálið, föstudagsmoig- un og komið þangað aftuj á sunnudag, Lagt verður af stað til Por- lákshafnar frá Eyrarbakka kþ 7 frá Stokkseyri kl. 7.15, frá fossi kl. 8 og frá Hveragerði (ld. 8.15. • Fyrir þá, sem hyggjast fara frá Reykjavík til Þorlákshafnar verður ferð frá Bifreiðastöð ís- lands kl. 7 árdegis með Krist- jáni Jónssyni sérleyfishafa. Enn munu nokkrir geta kom- izt í þessa för. Þeir, sem hefðu hug á því sjái' götuauglýsingar á Eyranbakka, Stokkseyri, Sel- fossi og Hveragerði eða snúi sér til skrifstoíhi Alþýðuflokksins í Reykjavík. Albýðuhlaðið — 4. ágúst 1960 ^

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.