Alþýðublaðið - 03.09.1960, Page 4

Alþýðublaðið - 03.09.1960, Page 4
!9. GREIN í ÞESSUM greinum hefi ég : leitast við að leiða rök að því, að áætlanir þær, sem gerðar ‘ voru, þegar ákvörðun var tek- in um hina nýju stefnu í efna- 'hagsmálum þjóðarinnar, hafa staðizt í öllum meginatriðum, ■og að áhrif stefnubreytingar- ; innar hafa orðið þau, sem gert var ráð fyrir. Ákvörðun um stefnubreytinguna var tekin af illri nauðsyn. Þjóðin var á villigötum í efnahagsmálum sínum. Ástandið var orðið svo alvarlegt, að aðeins sfórt, á- tak megnaði að lagfæra það, . sem aflaga fór. En árangur þessa átaks er að koma í ijós. ‘ Verðbólguþróunin hefur ver- ið stöðvuð. 'Verðhækkanir þær, sem orðið hafa og eiga «ftir að koma fram, eru ein- göngu óhjákvæmileg afleiðing . gengisbreytingarinnar, en eiga sér ekki verðbólguorsak- ir. Frá haustmánuðum ætti • verðlag því að geta haldizt stöðugt. Sparnaður þjóðarinn- ' ar er að vaxa og heilbrigður grundvöllur þess vegna að • íreystast undir hagnýtum framkvæmdum. Innflutnings- verzlunin er frjálsari Og hag- kvæmari en hún hefur verið. Gjaldeyrisaðstaðan er ekki einungis hætt að versna, held- ur einnig tekin að batna. Rík- isbúskapurinn er hallalaus. Stórfelld aukning hefur verið gerð á almannatryggingum og aukið réttlæti verið skapað í skattheimtu hins opinbera jneð afnámi tekjuskatts af al- ; mennum iaunum og lækkun útsvara. Að vísu eru horfur á, að sú kjaraskerðing, sem þessar óhjákvæmilegu ráð- stafanir hljóta að hafa í för með sér í bráð, reynist nokkru meiri en gert var ráð fvrir, þ. e. a. s. 5—6% f stað 4—5%. iEn ríkisstjórnin mun athuga allar færar leiðir til þess að •draga úr þessari kjaraskerð- ingu og revna að koma f veg fyrir, að hún verði meiri en npphaflega var ráð fyrir gert. Þetta hefði orðið auðveld- ara, ef íslendingar hefðu ekki orðið fvrir miklu áfalli í utan- ríkisviðskiptum sínum nú á þessu ári. Fiskimjöl hefur um langt skeið verið mikilvæg út- flutningsvara á íslandi. Fyrir alls konar fiskimjöl (þar með talið síldarmjöl) hefur verið tryggur markaður í löndum, sem greiða með frjálsum gjaldeyri. S. 1. þrjú ár hafa ís- lendingar flutt út alls konar fiskimjöl fyrir 270 millj. kr. á ári að meðaltali (miðað við núgildandi gengi), og hefur það verið 11% útflutningsins. Verðið hefur verið um það bil 60 £ á tonnið, Vegna hinnar stórauknu fiskifjölsfram- Ieiðslu Perú-manna, sem tekið hgfa að hagnýta fiskimið úti fyrir ströndum sínum á nýjan bátt og nota hinn aukna sjáv- arafla eingöngu til fiskimjöls- framleiðslu, hefur verðið stöð- ugt verið að falla síðan í Iok ársins sem leið og er nú komið niður í um það bii 33 £ á tonn ið. Verðfallið nemur með öðr- um orðum hvorki meira né minna en um 45%. Verð á lýsi hefur einnig fallið frá því á fyrra ári, urn rúmlega 20%. Þetta verðfall á fiskimjöli og lýsi veldur því, að tekjur þjóð arinnar af útflutningi verða um 175 millj. kr. lægri en þær hefðu orðið, ef verðlag hefði haldist óbreytt. Þetta svarar til 7% verðlækkunar á öllum útflutningsafurðum landsmanna. Þetta verðfall á mjöli og lýsi er allt annars eðlis en það verðfall, sem yfir ísland dundi í upphafi heimskrepp- unnar miklu fyrir þrjátíu ár- um. Þá var um að ræða al- mennan samdrátt framleiðslu og viðskipta um heim allan; og leiddi hann til almenns verðfalls, sem einmitt kom sér lega hart niður á útflutnings- afurðum íslendinga. Nú er engu slíku til að dreifa. Þvert að við högnumst á slíkum við- skiptaaðferðum. 'Við verðum því að mæta þessum erfiðleik um með því að gera framleiðsl una ódýrari með bættum rekstri og með því að fiuna nýjar leiðir til að hagnýta það hráefni, sem við ráðum yfir. Hér er um að ræða mesta áfall, sem þjóðarbúið íslenzka hefur orðið fyrir í utanríkis- viðskiptum sínum í tíu ár, eða síðan Kóreustríðið breytti við skiptakjörum landsins mjög til hins verra. Við þetta bæt- ist svo, að tekjur af síldveið- um verða í ár miklu minni en í fyrra. Söltun er um það bil helmingi minni en í fyrrasum- ar. Útflutningsverðmæti síld- arafurða verður nú í ár líklega um 120 millj. kr. minna en í fyrra vegna minni afla, og er þá engum blöðum um það að fletta, að útkoma útflutnings- atvinnuveganna hlýtur að verða mun erfiðari á þessu ári Útflutningsskatturinn, sem lagður var á með efnahags- málalöggjöfinni til þess að greiða eftirstöðvarnar af skuldbindingum útflutnings- sjóðs,. var í raun og veru eins konar varasjóður í hinu nýja efnahagskerfi. Ef afli og við- skiptakjör hefðu reynzt hag- kvæm á þessu ári, hefði af- nám hans átt að geta komið launþegum. til góða, þegar skuldbindingar útflutnings- sjóðs væru að fullu greiddar. Ef afli og viðskiptákjör reynd ust óhagstæð, var vitað, að af- nám hans yrði að koma út- flutningsatvinnuvegunum til góða. Nú hefur reynslan orðið sú, að útflutningsatvinnuveg- irnir og þar með þjóðarbúið hefur orðið fyrir miklu meira áfalli en með nokkru móti var hægt að gera ráð fyrir, fvrst og fremst vegna þess verðfalls á mjöli og lýsi, sem ég hefi rætt um hér að framan, og Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptamálaráðherra: á móti eru framleiðsla og við- skipti í örum vexti um allan heim. Hér er um að ræða breytingar á takmörkuðum sviðum, sem — að því er fiski- mjölið snertir — stafa af því, að hátt verðlag undanfarinna ára hefur örvað til mjög auk- innar framleiðslu í löndum, sem áður framleiddu lítið, og — að því er lýsið snertir — af breyttu mataræði. Það er því ekki hægt að búast við því, að verðið hækki fljótlega aft- ur. Ekki getum við heldur komizt undan verðfallinu með því að leita nýrra markaða fyrir þessar afurðir í löndum, þar sem við höfum ekki selt þær, eða selt lítið af þeirn áð- ur. Sams konar vörur eru framleiddar og seldar um all- an heim. Okkar framleiðsla er örlítið brot af heimsframleiðsl unni, og við getum engin á- hrif haft á markaðsverðið. Við getum að vísu selt þessar vör- ur til jafnkeypislanda, ann- arra en Sovétríkjanna, á verði sem að nafninu til er hærra en heimsmarkaðsverð, en að- eins með því móti, að kaupa vörur í staðinn á verði, sem er hærra en heimsmarkaðs- verð. Eins og ég hefi vikið að áður, í fyrri grein, er þó síð- ur en svo ástæða til að æíla, en ráð var fyrir gert. Afnám útflutningsskattsins, er nú nemur 2Vá%, nægir ekki til þess að mæta þessu áfalli. Til annarra ráðstafana verður að grípa af hálfu sjálfra útflutn- ingsatvinnuveganna og með tilstyrk ríkisvaldsins til þess að jafna þessi met. Tvennt verður þó að taka skýrt fram í því sambandi. Ný gengis- breyting til þess að bæta hag útflutningsatvinnuveganna kemur ekki til mála. Ekki má heldur í neinu formi halda á ný út á braut uppbótanna. Leiðin, sem fara verður til þess að vinna upp þetta tap, verður að byggjast á aukinni hagkvæmni í rekstrinum, bættri tækni, meiri sparnaði og endurskipulagningu á f jár- hagshlið rekstrarins. Ríkis- valdið getur í þessum efnum orðið útflutningsatvinnuveg- unum að verulegu liði, eink- um að því er það snertir að koma fjármálum þeirra í fast- ara og heilbrigðara horf, og er það öllum til hagsbóta að það verði gert. Þetta getur að sjálfsögðu reynzt erfitt, og það getur tekið talsverðan tíma, að árangurinn komi í Ijós. En þetta er samt eina leiðin, sem skilað getur þeim árangri, sem er nauðsynlegur. einnig hins, hve síldarvertíð- in hefur brugðizt. Það er því alveg augljóst, að launþegar geta einskis góðs notið í sam- bandi við afnám útflutnings- skattsins. Þegar þjóðai'búið verður fyrir áfalli, sem lækk- ar tekjur þess um því sem næst 300 millj, kr., er aug- ljóst, að ráðið til þess að bæta þann tekjumissi er ekki að hækka krónutölu kaupsins. Höfuðvandamálið, sem nú er við að etja að því er snert- ir kjör launþega, er að finna ráð til þess að koma í veg fyr- ir, að þetta áfall rýri kjör iaun þega, þ. e. a. s. að stuðla að því, að útflutningsatvinnuveg- irnir geti borið skakkafallið sjálfir án þess að þurfa að velta byrðunum af því yfir á launþega. Það hlýtur að verða megin verkefni ríkisstjórnar- innar í þessu sambandi, að vinna að því, og þá um leið hinu, að kjararýrnunin vegna efnahagsráðstafananna þurfi ekki að verða meiri en upphaf- lega var gert ráð fyrir, en hér er í raun og veru um eitt og hið sama að ræða. Auðséð er hins vegar, að á þessu verk- efni er ógerningur að taka með nokkurri von um skyn- samlegan árangur, ef kaup- 3. sept. 1960 — Alþýðublaðið Lokagrein gjald hækkar almennt í land- inu nú á þessu ári. Menn verða að gera sér ljósar tvær staðreyndir í sam- bandi við kaupgjaldsmálins sem nú valda því, að vanda- málin eru mjög frábrugðin því sem verið hefur um mörg undanfarin ár. í fyrsta lagi er þess að geta, að launajöfnuður er nú orðinn hér svo mikilL, að ógerningur er að hækka laun jafnvel hinna lægst laun uðu, t. d. Dagsbrúnarmanna, án þess að bilið milli þeirra og t. d. stórra iðnstétta og sjó manna minnki svo mikið, að þessar stéttir telji með réttu, að þær verði að fá nákvæm- lega sömu kauphækkun hlut- fallslega og Dagsbrúnarmenn. Þá er bilið milli kaupgjalds opinberra starfsmanna og þeirra stéttarfélaga, sem eru í Alþýðusambandinu, orðið svo lítið, að ógerningur virð- ist annað en opinberir starfs- menn fái hlutfallslega sömu kauphækkun og verkamenn, iðnaðarmenn og sjómenn. Sú kauphækkun, sem þessum launastéttum öllum fellur í skaut, kemur sjálfkrafa, lög- um samkvæmt, í hlut bænda. Þá hafa um 80% af þjóðinni fengið hlutfallslega sömu kauphækkunina og varla get ur hjá því farið, að tekjur sjálfstæðra atvinnurekenda og eigenda fyrirtækja hækki a. m. k. í sama hlutfalli og kaup gerir almennt, enda hef- ur sú orðið reynslan á undan- förnum árum. Þegar kauphækkun er svo almenn, fer auðvitað ekki hjá því, að hún hafi svo að segja alveg hlutfallsleg áhrif á verð lagið, þannig að enginn hefur í raun og veru hagnast neitt á henni. Reynsla launþega í þessu efni er og alveg ótvíræð. Það er hægt að hagnast á kaup hækkun, ef liún er bundin við fámenna stétt, og þeim mun meira sem stéttin er fámenn- ari. En eftir því sem kaup- hækkunin er víðtækari, þeim mun meir vatnast hún út og þeim mun minna er á henni að græða fyrir þá, sem hana hljóta. Þegar hún nær svo aS segja til allrar þjóðarinnar, græðir enginn á henni. En sparifjáreigendur tapa á henni, því að verðgildi króri- unnar minnkar. Og þegar til lengdar lætur, tapa allir laun- þegar á henni líka, því að hún snýr verðbólguhjólinu, ýtir undir óhagkvæma fjárfest- ingu og óheilbrigð viðskipti og skapar nýtt ranglæti í tekju- og eignaskiptingu. —< Vegna þessara staðreynda er augljóst, að eina kauphækk- unin, sem um yrði að ræða, yrði almenn kauphækkun, og hún gæti engum orðið til hags bóta. í öðru lagi er þess að geta, að um mörg undanfarin ár hafa atvinnurekendur ekki verið tregir til hækkunar á kaupgjaldi vegna þess, að ár- legar breytingar hafa verið Framháld á 14. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.