Alþýðublaðið - 03.09.1960, Qupperneq 16
MYNDIN sýnir Armin Ha-
ry, Þýzkalandi, sem sigr-
aði í 100 m hlaupinu. —
Hann varð 'annar í sínum
riðli á eftir Kenyamannin-
um Antao á sjöttu braut.
Hary er á innstu braut-
inni. Hary neitaði að taka
þátt í 200 m hlaupinu á
þeim forscndum, að hann
ætlaði að hvíla sig fyrir
boðhlaupið.
Róm, 2. sept. (NTB).
Aðeins einn sentimeter skildi
ag fyrsta og annan mann í
langstökkskeppni olympíuleik
anna, heimsmethafinn Boston
USA, vann, stökk 8,12 m. sem
er 6 sentimetrum betra en hið
gamla olympíumet Jesse Ow-
ens, sem staðið hefur frá 1936.
Robertson, USA, varð annar
með 8,11. Þriðji var Rússinn
Ter-Ovanessjan á nýju Evr-
ópumeti 8,04 og þriðji Stein-
ð
bach, Þýzlcalandi með 8,00 m«
í firnmta sæti var Valkama,
Finnlandi, 7,69 og sjötti Coll-
ondo, Frakkl. 7,68 m.
Ovanessjan tók forustu í
fyrstu umferð með 7,90. Bost-
an stökk 7,82 og Steinbach
7,81. í þriðju umferð kom 8,12
hjá Boston. í síðustu umferð
fóru að gerast merkilegir hlut
ir. Ovanessjan vandaði sig og
náði 8,04, Robertson stökk 8,11
og Steinback 8 metra slétta.
Þetta er ö fyrsta sinn í sögu
langstökksins, að átta metra
stökk nægir ekki til verðlauna.
Aðeins 12 keppendur náðu
lágmarkinu, 740 og féllu marg
ir frægir langstökkvarar úr.
Róm, 2. sept. (NTB).
ÓVÆNT úrslit urðu í 800 ,m.
hlaupinu í dag, þar sem Peter
Vilhjálmur og
s
VILHJÁLMUR EINARSSON
tók bátt í Iangstökkskeppninni í
dag, ntest til þess að reyna at-
xennuna. Hann hljóp á fullii
ferð að plankanum, en reyridi
«kki á sig -og stökk aðein^ 6,76
m. Eins gerðist £ næstu aírenn-
unum, Vilhjálmur htjóp að og
hitti vel plankann, en stökk að-
eins rúmlega hálfan sjöunda
metra. !' "-i d
Hilmar Þorbjörnsson ætlaði
áð keppa í 200 m hlaupi, en
vegna magakvilla gat hann það
ckki.
Snell, frá Nýja Sjálandi, sigr-
aði á nýju olympíumeti 1.46,3.
Silfrið vann Moens, Belgíu,
1:46,5, en bronsið hlaut Kerr,
Vestur-Indíum, 1:47,1 mín.
Fjórði maður varð Schmidt,
Þýzkalandi, á 1.47,6, þá Waeg-
li, Sviss, á 1.48,1 og sjötti Ma-
tuschevski, Þýzkal., á 1.52,0.
Það kom mjög á óvart að
Ný-Sjálendingurinn skyldi
fara með sigur. af hólmi í þessu
hlaupi. Honum tókst að pressa
sig fram fyrir Moens á síðustu
15—20 metrunum. Auðséð var
að Belgíumanninum féll mið-
ur að tapa hlaupinu. Hann var
fyrstur á miðri upphlaupsbraut
inni, en þá kom Kerr frá V,-
Indíum og fór fram úr hon-
um. Moens herti á sér og komst
aftur fram úr, en hann hafði
ekki tekið eftir að Snell var
líka kominn með í spilið og
þá var of seint að gera nokkuð.
Wilma á II sek.
AMERÍSKA stúdínan Wilma
Rudolph stigraði £ 100 m.
Sfláupi kvenna á hinum ótrú-
lega tíma, 11,0, sem er betri
tími en nokkurn tíma hefur
wáðst á þessari vegalengd í
kvaiT.nahlaupi. Afrekið verður
þó tæplega staðfest sem heims
met, þar sem nokkur vindur
Btóð beint í bak keppendum
einmitt í viðbragðinu. í und-
anúrslitum hafði hún hlaupið
á 11,3, sem er nýtt olympíu-
met og sami tími og viður-
kennt heimsmet.
Silfrið hlaut Ryman, Bret-
landi, á 11,3 sek. og bronsið
Leone, Ítalíu, á sama tíma. 4.
var Itkina, Sovétríkjunum,
11,4. 5. Capedieville, Frakkl.
11.5 og . Smart, Bretlandi, á
11.6 sek.
Svisslendingurinn Weagli,
tók strax forustuna. Kerr í 2.
sæti. Eftir fyrri hringinn, semj
hlaupinn var á 52,2 náði
Schmidt öðru sæti, en Moens
var í fimmta sæti. Á næst síð-
ustu langhliðinni þeyttist Mo-
ens fram úr og komst í annað
sæti er kom út á beygjuna og
er kom út úr beygjunni var
hann fyrstur og bjuggust nú
allir við að hann mundi sigra
á hinum fræga endaspretti sín
um. En hinn ævintýralegi enda
sprettur Snells var of mikið |
fyrir hann.
Tími Snell er nýtt olympíu
met, fyrra metið átti Kerr, —
sett í milliriðli, 1:47,1, en
hann íór á nákvæmlega sama
tíma í úrslitunum.
SPENNANDI 5000 M.
HLAUP.
5000 metra hlaupið var eins og
svo oft áður æsispennandi. —
Sigurvegari varð Murry Hal-
berg frá Nýja-Sjálandi á 13:-
43,4. Halberg hné meðvitund-
arlaus niður er hann hafði
komist yfir marklínuna. Ann-
ar varð Crodotski, Þýzkalandi,
13:44,6 og þriðji Zimny, Pól-
landi, 13:44,8 mín, 4. Janke
Þýzkalandi, 13:46,8. 5. Powia,
Rstralíu 13:51,8. 6. Nyake, Ke-
nya, 13:52,8 mín.
Keppnin var geysihörð eins
og tímarnir sýna. Halberg
þafði lengi forystuna, en á síð-
asta hring var hann aðfram-
kominn og munaði minnstu að
Grodotzki næði honum. Hinir
sex fyrstu voru í sérflokki. —
Sjöundi maður var Frakkinn
Bernhard á 14:04,0 og síðan
hver af öðrum. Síðastur varð
Luigicenti, Ítalíu á 14:34,0.
Davis vann
400 metra
grind
RÓM, 2. sept. (NTB )
Bandaríkjamenn unnu þre
faldan sigur í 400 m grinda
hlaupi, Glenn Davis end-
urtók sigur sinn frá Mel-
bourne og setti nýtt Ól-
ympíumet á 49,3, annar
varð Otis Davis, 49,6 og
þriðji Cusliman 49,6 sek.
4) Jantz, Þýzkalandi. 5)
Rintamáki, Finnlandi og
sjötti Galliker, Sviss.
Keppnin var geysihörð
eins oe tímarnir gcfa til
kynna.
’A' ÞETTA er ekk; íþrótt, held-
ur pyntingar, sagð; einn af
keppeudunum £ nýtízku fimmt-
arþraut, þegar síðasta greinin
í þrautinni, 4000 :n. víðavangs-
hlaup, var hlaupjn Enda lágu
keppendur eins og hráviði eftir
hlaupið, örmagna eftir lang-
hlaup £ steikjandi sólarhitan-
um„ Súrefnistæki voru £ stöð-
ugri notkun til að dæla lífi í
næstum meðvitundarlausa
hlauparana, er þeir stauluðust
yfir marklínuna.
Svavar og Pétu
keppa í dag
Róm, 2. sept. (Örn).
43 keppendur eru í 1500 metr.
hlaupinu. Svavar hleypur í 2.
riðli ásamt stjörnum eins og
Dan Maern, Svíþjóð, Moens,
Belgíu, Hammarsland, Noregi,
Warnhad, Frakklandi, Valen-
tin, Þýzkalandi og Thomas.
Aðeins þi’ír fyrstu fara í úr-
slit.
Pétur Rögnvaldsson keppir í
110 m. grindahlaupi ásamt 37
öðrum. Pétur er í 4. riðli með
Calhoun, USA, Mildreth, Bret-<
landi, Boudnitska, Frakklandi,
Marsellos, Grikklandi, Rasiq,
Pakistan og Eli, Súdan. Fjórir
fyrstu fara í milliriðil.
í fréttum frá NTB er vakini
athygli á því, að sigurvegarinni
frá Melbourne, írinn Delany,
er ekki meðal keppenda í 1500
metra hlaupinu. Hann ein-
beitti sér að 800 metrunum en
var sleginn út í undanúrslit-
um.