Kirkjublaðið - 01.05.1892, Blaðsíða 4
84
þeír áttu að gjöra, og sem þú óskaðir ög hafðir ástæðu
til.að vonast eptir; en þegar þú i kirkjunni tilbaðst hinn
líknsama Guð, þegar þú heyrðir lærdóminn um kærleika
Guðs í Jesú Kristi bæði við þig og aðra, þegar þjer var
sett fyrir sjónir dæmi frelsara þíns, eða þegar þú í auð-
mýkt kraupst fram að altari Drottins og meðtókst þar
boðskapinn um fyrirgefningu syndanna; var það þá ekki
svo, að hjarta þitt blíðkaðist, að óvildin og biturleikinn
hvarf úr sálu þinni, svo að þú gazt fyrirgefið og sagt:
Faðir, fyrirgef þeim! Skeð getur að þú hafir stundum
komið í kirkjuna mæddur og þreyttur af andstreymi og
ýmislegu mótlæti lífsins, eða með hjartað fullt af þreyt-
andi áhyggjum; en þegar þú í kirkjunni lyptir sálu þinni
til Drottins, þegar þú snerir hjarta þinu að hinu himn-
eska og eilifa og meðtókst hina ríku huggun Guðs orða,
þegar þú ljezt óskir þínar koma fram fyrir Guð í bæn
og áköllun, þegar þú lyptir þjer upp yfir hinar tímanlegu
og jarðnesku áhyggjur og gladdir þig í Drottni, þegar
þú fannst, að Guð var þjer nálægur og sá friður Guðs í
Jesú Kristi, sem yfirgengur allan skilning, svalaði hjarta
þínu, þegar þú kannaðist við Guðs náð og miskunn og
ljós hinnar himnesku vonar tendraðist í hjarta þínu; var
það þá ekki svo, að óánægjan yfir mæðu jarðlífsins, yfir
skorti þínum og andstreymi hyrfi úr brjósti þjer; var það
þá ekki sem þung byrði væri tekin af brjósti þínu, sem
þú andaðir frjálslegar og ljettar og gengir glaðari í burt
aptur! Hafðir þú þá ekki fundið læknisdóm við sárum þín-
um, hafðir þú ekki öðlast nýja krapta til að stilla skap
þitt, til að bera sorgir þínar og þrautir, til að taka á þig
krossinn og bera hann eptir Jesú og til að bíða vonglað-
ur eptir fyrirheitum Guðs eilífu náðar og miskunnar! Já
sannlega hefir það verið þannig; því fyrir alla sanntrú-
aða og sannkristna menn er kirkjan blessunarríkur stað-
ur; hún er nokkurskonar forgarður guðsríkis á himnum,
þar sem Guð fremur en annarstaðar tekur börn sín sjer
i faðm og veitir þeim forsmekk þess friðar og þeirrar
gleði, sem þau eiga í vændum í hinni himnesku Jerú-
salem.
Á þessum stað vil jeg frið gefa, segir Drottinn alls-