Kirkjublaðið - 01.02.1893, Page 8

Kirkjublaðið - 01.02.1893, Page 8
24 eða var að glettast við þau. Hann kunni, en skildi ekk- ert, þuldi en vissi lítið; svo varð það feginsdagur að sleppa, kasta kverinu upp á hyllu og líta í það aldrei framar. Hve margir búa að þessari æskufræðslu, og eru svo enn eins og þá? Eru þeir ekki enn eins og skammdegis- börnin, sem lítið sjá fyrir myrkri, og lítið skilja fyrir íáfræði ? Þjer foreldrar, sem eigið börn á uppfræðingar-aldri — þjer fræðendur, sem falið er á hendur að uppala og mennta hina ungu — þjer fullorðnu, sem eigið að ganga á undan þeim og beina þeim leið til þess að verða menn — hugfestið þetta vel, hvað það er að eiga börn og hafa þau undir hendi; hugfestið það vel, og gætið að, að þau verði ekki skamm- degisbörn alln æfi. Sýnið þeim í tíriia stjörnuna, sem rann upp í austri, en aldrei gekk undir, svo að dagarnir lengdust, og það varð vegljóst um hraunbrautir heimsins. Þjer hafið ábvrgð á hendi, þunga ábyrgð á þessum ungu mönnum, sem nú eru ekki nema bernska og fá- kænska; framtíðin á að standa á herðurn þeirra þegar vjer erum komnir undir græna torfu. Það er yðar — það er vor ábyrgð að gera þau fær um það, að bera framtíðina; annars höfum vjer illu heilli látið þau fæðast í heiminn. En það geta þau ekki, nemaþau verði sannir menn. En sannir menn verða þau aldrei, nema þau verði líka kristnir menn. Það er: þau þurfa að verða kristin í hjarta. En þjer gerið þau aldrei kristin með því, að fá þeim kverið sitt eingöngu; þau kunna að byrja að læra með ánægju, en það hverfur fljótt. Hvað vita þau urn heiðindóm og hörmung og vonleysi hins deyjanda heiðingja — hvað botna þau í veru Guðs — hvað skilja þau í hinni heims- fræðilegu eða siðfræðilegu sönnun fyrir tilveru hans? Ekkert, æ alls ekkert, og þó að þjer færuð að reyna að útskýra það, þá fer það eins; frammi fyrir slíkum leynd- ardómi opinberunarinnar erum vjer jafn fáfróð börn og þau.

x

Kirkjublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.