Kirkjublaðið - 01.10.1893, Blaðsíða 4
180
um og lampa fóta sinna, eða þeim verði ljúft að hafa
umgengni sína við himnaföðurinn, ef þau sjaldan sem al-
drei hafa heyrt yður hafa Guðs orð um hönd, og þjer
haflð vanrækt að beina hug þeirra til himínsins, með
því að kenna þeim á unga aldri að biðja föðurinn á
himnum ? Þótt þjer komið einhverju nafni á kristindóms-
fræðslu þeirra, þá er ekkert liklegra, en að sú uppfræð-
ing verði eintómt minnisverk, sem hin ungu hjörtun alls
elcki tileinka sjer, ef andi kristindómsins hefir fyrir orð
yðar og eptirdæmi aldrei snortið þau, eða þau hafa í
breytni yðar ekki sjeð þá ávexti, er kristindómurinn
heimtar af játendum sínum. Þótt þau að þekkingunni til
sjeu hæf til að staðfesta skírnarsáttmála sinn, þá er mjög
hætt við, að hin guðdómlegu orð kristindómsins sjeu ekki
orðin þeirra hjartans eign, hafi þau ekki sjeð yður hafa
þessi sáluhjálplegu sannindi fyrir Ijós yðar og leiðarstjörnu
á lífsleiðinni. En meðan börnin yðar hafa ekki í barns-
legri trú opnað hjörtu sín fyrir Jesú Kristi, og tileinkað
sjer alla hans velgjörninga, þá eru þau ekki hæf til að
staðfesta skírnarsáttmála sinn. A liverjum hvílir ábyrgð-
in fyrir sliku? 0, á engum nema yður, hirðulausu for-
eldrar, sem vanræktuð yðar helgustu skyldu, sera að vísu
færðu Jesú börn yðar í heilagri skírn, en tóku þau aptur
frá honum með því, að vanrækja uppeldi þeirra. —
Kristnu foreldrar, gætið þess vel, að hin ungu hjört-
un, sem yður er trúað fyrir, er gljúpur jarðvegur, sem
auðveldlega tekur á móti hvers konar áhrifum, og það
því fremur, sem áhrifin koma frá foreldrunum, sem líf
þeirra og tilfinning er svo nátengt. Byrjið því i tíma
að sá hinu góða sæði í björtu barna yðar, vakið yfir
þeim, að óvinurinn sái þar ekki illgresinu; biðjið Guð að
styrkja yður í hinu góða verki, og kappkostið að vera
jou börnum yðþr fyrirmynd i öllu góðu og fögru. Viðleitni
yðar mun optast hafa góðan árangur, og börn yðar verða
sjálfum yður til ánægju og Guði til dýrðar, og þótt þau
kunni að villast af hinum rjetta vegi, er þjer hafið sleppt
af þeim hendinni, þá getið þjer huggað yður við þá með-
vitund, að þjer gjörðuð, það sem í yðar valdi stóð, til að
leiða þau til Guðs rikis.