Kirkjublaðið - 01.09.1896, Blaðsíða 1
mánaðarrit
handa íslenzkri alþýðu.
VI.
RVÍK, SEPT., 1896.
10.
Kveldsálmur.
Eptir Kingo.
Hvíldarstund er hjer í vændum,
hnigin er í djúpið sól.
Enn vjer, Guð, þig rjettri rændum
rentu’ af þínum höfuðstól.
Líf og heilsu, lán og kæti
lagðir þú við sjóð vorn hjer.
Illsku, vantraust, óþakklæti
enn í rentu guldum vjer.
Beygjum knje og beygjum hjarta,
biðjum vægðar skuidum á.
Lítum upp til ljóssins bjarta,
likn og vægð er þar að fá.
Litum upp í aptanroða,
á hann minnir Jesú blóð;
það mun dag oss betri boða,
borgun það er skulda góð.
Samvizkunnar góða gleði
göngum nú til sængur með.
Hatur, stríð og hryggð í geði
hrekjum nú sem lengst írá beð.