Kirkjublaðið - 01.11.1896, Page 3

Kirkjublaðið - 01.11.1896, Page 3
195 af því að hið siðlega vald er hjá heilögum lifandi Guði, sem með miskunnandi föðurkærleik friðar hina órólegu samvizku og huggar hina hrelldu sál eins og móðir hugg- ar barn sitt. Hver sá, er getur trúað á hann, leysist frá fargi sektarinnar, hann er rjettlættur af trúnni. En á hverju getur þessi trú byggt, hvað getur hún borið fyrir sig? Vjer störum á stjörnuljómann; óteljandi heimar rekja þar sínar þöglu, föstu brautir um endalaus ár, og ótta- blandin lotning hrífur oss fyrir þeim almættiskrapti, sem öllu þessu stýrir, en í hinu ómælanlega djúpi finnum vjer ekkert líknarhjarta, sem þekkir neyð vora. Vjer horf- um á hinn kvika straum náttúrunnar, þennan leik lífs og dauða, fæðingar og eyðingar i óendanlegri margbreytni, og fagnandi dáumst vjer að sköpunarkraptinum, sem eys af ótæmandi lífsbrunnum, en árangurslaust leitum vjer þar að kærleika, sem lætur sjer annt um oss. Vjerrekj. um viðburði veraldarsögunnar, voldug ríki fara í mola og lítilsvirtar smáþjóðir hefjast til hárra valda, og með ótta og fögnuði miklum vjer Guð, sem steypir voldugum af stóli, en hefur lítilmagnann til vegs, en vjer fáum eng- an vitnisburð um það, að til sje rjettlæti, sem jafnan læt- ur hið góða málefni fá sigur, og að til sje miskunnsemi, sem í hafróti þjóðanna hirðir um einstaklinginn. Allt þetta leiðir að eins fram óljósa skuggamynd af hinum almáttuga lifandi Guði, mynd sem eigi vekur síður ótta en fögnuð í mannssálunni. Þetta hugboð verður fyrst að styrkri trú á heilag- an og almáttugan Guð, þegar sál vor verður fyrir áhrif- um frá lifandi persónum; sem vjer sjáum, að eru helgað- ar af slíkri trú. Vjer höfum um eitt skeið allir staðið á því þroskastigi, að trú vor á miskunnsemi og kærleika hins heilaga Guðs byggðist aðallega á trú slíkra manna. I lífi þeirra sáum vjer með djúpri lotningu endurskin af heilagleika Guðs, og þegar þeir bróðurlega tóku oss í sitt samfjelag, þrátt fyrir ávirðingar vorar og breyskleika, þá ljetti af oss byrði sektarinnar. Ef til vill eru það margir og enda jafnvel meiri hlutinn, sem alla sína æfi byggir eigi trú sína á öðru, eru slíkir menn þá ósjálf-

x

Kirkjublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.