Alþýðublaðið - 22.09.1960, Blaðsíða 13
MMWWtWWWWWmwWWWWWWMWWWIwwwwww
— NÚ liefur Krústjov ennþá einu sinni gagnrýnt
uíanríkisstefnu Kínverja. — — Já, Jiað lítur út
fyrir að við séum þeir einu, sem hann vill ekki lifa
í friðsamlegri sambúð við.
SÚ málamiðlun, sem náðist
á þingi rúmenska kommún-
istaflokksins í sumar, milli
Rússa og Kínverja, gat ekki
staðist lengi. Eins og öllum
er kunnugt standa deilurnar
um það, að hve miklu leyti
styrjöld sé óumflýjanleg —
Kínverskir kommúnistar
telja, að styrjöld sé óumflýj-
anleg á meðan heimsvalda-
stefnan er til, en Krústjov
segir að friðsamleg sambúð
þjóða með mýsmunandi
stjórnskipulag og efnahags-
kerfi sé möguleg. En í raun
og veru er deilt um að hve
miklu leyti hin sósíalistisku
ríki eigi að hætta sér út í
^MðStamlega • samkeppni“
við auðvaldsríkin, eða hvort
þau eigi að leggja höfuðá-
herzlu á, að skaðn öau með
skemmdarstarfsemi, upp-
reisnum og alls kyns íhlut-
un, sem er moguleg vegna
fimmtuherdeildarstarfsemi
kommún': staf lokkanna.
1 sameiginlegri yfirlýs-
iffgu, sem gefin var út eftir
fundinn í Búkarest, var ekk-
ert á það minnst hvort styrj-
öld væri óumflýjanleg, en lát
ið nægja að slá föstu, að með
an heimsvaldastefnan væri
til væri hætta á styrjöid,
Það hefur komið í ]jós, að
hvorki Krústjov né kommún
istarnir í Kína voru á því að
slíðra sverðin Þvert á mót.i
hafa hinir skriftlærðu meðal
komúnista sjaldan haft eins
mikið að gera og í sumar við
að finna ummæli Lenins máii
•sínu til stuðnings.
Hinir kínversku fræðmenn
kommúnista hafa ekki fariö
dult með, að þeir ætia sér
ekki að láta undan í. rck-
ræðunum, enda þótt það
. kynni að kosta land þeirra
efnahagsaðstoð Sovétríkj-
anna. Og blöð í Lettlandi og
Azerbadjan hafa ekki að-
eins kallað Kínverja sínurn
réttu nöfnum (en það hefur
sovétpressan annars látið
vera) heldur einnig krafizt
þess að efnahagsaðstoð við
þá verði hætt. Kínverjar svör
uðu í blaðinu Rauði fáninn
me því að hvetja þjéðina til
að framleiða allt sem hún
I EFTIRFARANDI
grein, sem er lauslega
þýdd úr Aktuelt, gerir
danski blaðamaðurinn
Peter Dalhoff grein fyr
ir ágreiningi Rússa og
Kínverja varðandi af-
stöðuna til auðvaldsríkj
anna.
þarfnast sjálf og hvetja borg
arana til -sparsemi og nægju-
semi og auka smáiðnað.
Nýlega skrifaði E. Zjulkov
grein í Pravda, þar sem hann
andmælir þeirri skoðun kin-
verskra kommúnista, að kom
múnistum ber| að hvetja til
byltinga í þeim löndum, sem
eru að losna undan nýier.du-
veldunum, Zjulkov telur að
þessi kenning sé hættuieg, og
han segir það xangt frá hug-
myndafrseðilegu sjónarmiði
kommúnista að vanmeta þjóð
legar sjálfstæðishreyfingar
fyrir það eitt, að þær falli
ekki inn í hið venjulega
skema kommúnista.
Skoðun Zjulkovs hefur af
Kínverjum verið talin rang-
túlkun á Leninismanum, en
hún er mikilsvirði í mörgum
KASTUOS
iöndum Asíu og Afríku. Það
eru mörg fleiri dæmi þess
hvernig afstaða Rússa og
Kínverja er mismunandi.
í Suður Viet Nam og Laos
hafa kínverskir kommúnist-
ar skipulagt skemmdarverka
sveitip og skæruliðaheri og
þeir hafa lagt undir sig ind-
versk landsvæði og rænt ind-
verskum landamæravörðum.
Rússar grípa ekki lengur til
opinberra skemmdarverka
eða skæruliðastarfsemi heid-
ur nota þeir efnaliagsaðstöð
eins og t. d. í Ghana, Guinea
og Kongó, Þegar Fidel Castro
þjóðnýtti bandarísku olíu-
hreinsunarstöðvarnar á
Kúbu, buðust Rússar þegar
í stað til þess að senda hon-
um olíu. Á Indlandi byggir
Sovétstjórnin stáliðjuver og
önnur stóriðjufyrirtæki.
Deilurnar inuan hins kom-
MWMWWWMWWWMMMWIWW
múnistiska heims eru ekki
aðeins milli Rússa og Kín-
verja heldur e:nnig innan
Sovétríkjanna. Stalinistarnir
í Sovétríkjuum eru óánægðir
með kenningar Krústjovs um
fríðsamlega sambúð. Krúst-
jov er sagður hafa sent flokks
foringjunum í Sovétríkjun-
um og leppríkjunum í Aust-
ur-Evrópu bréf þar, sem
hann gerir grein fyrir hinni
opinberu stefnu stjórnar sinn
ar í þessum málum.
Albanskir kommúnistar
eru í þessu máli eins og öðr-
um tvílráðir og óákveðnir. —
Enhver Hoxa, foringi al-
banskra kommúnista hefur
áður fyrr varið kenningar
Krústjovs, undanfarið heíur
það vakið athygli, að aibönsk
blöð hafa ekki, þótt tilefni
hafi gefist, minnst á friðsam-
lega sambúð.
SAMKVÆMT ',,'Demo-
graphic Yearbook 1959“, sem
Sameinuðu þjóðirnar hafa ný-
lega sent á markaðinn, er
heildartala jarðarbúa nú
kringum 2.900 milljónir.
Yfiriitið í bókinni tekur
til allra landa og byggðra
svæða. Fjölmennasta ríki
heims, Kím, er talið 669
milljónir íbf -.. Þar næst kem
ur Indland -rð 403 milljón-
ir. Sovétríkin með 209 millj,
og Bandaríi::n (ag meðtöld-
um hinum r ' iu fylkjum, Al-
aska og Ha —aii) 178 millj-
ónir. Þessi "gur ríki hafa
alls um hé' annan millj-
arð íbúa, < bað rúmur
helmingur allra jarðarbúa.
Næst í röðinni er Japan
með 92 milifóriSr íbúa, en
síðan koma Pakistan, Indó-
nesía, Brazilía, Vestur-Þýzka
land og Bretland, hvert með
yfir 50 mill.iónir íbúa.
„Demographic Yearbook
1959“ er 719 blaðsíður og
og hefur að geyma geysimik-
ið magn af upplýsingum og
töflum um stærð landa og
landsvæða, íbúatölu. fæð-
ingar, dauðsföll, giftingar,
skilnaði og fólksflutninga frá
einu landi til annars. í
fyrsta sinn síðan 1954 er gef
ið sundurliðað yfirlit yfir
fæðingar um heim allan. Ár-
bókin er samin af hagfræði-
deild Sameinuðu þjóðanna.
Yfirlit yfír fæðingar og
dauðsföll.
Hlutfallsleg fólksfjölgun í
heiminum árið 1958 var hin
sama og á undangengnum 7
árum, þ.e.a.s. 1,7 af hundr-
aði eða 48 milljónir manna á
ári. Þetta merkir að á hverju
ári bætist við tölu jarðarbúa
mannfjöldi sem svarar til íbúa
tölu Ítalíu.
Þessi tala fæst með því að
díraga tölu dauO'í'aíla- (sem
er 18 af þúsundii eða rúmlega
51 milljón á ári) frá tölu fæð
inga (sem er 35 af þúsundi
eða kringum 100 milljónir ár
lega). Fólksaukningin verð-
ur þá rúmlega 48 milljónir á
ári. Það merkir að á hverri
klukkustund fæðist rúmlega
5000 xnanns og á hverri mín-
útu ’kringum 85 manns.
Rúmur helmingur allra
jarðarbúa býr nú í Asíu, og
árið 2000 verður hlutfalls-
tala Asíubúa í heiminum eft-
ir öllu að dæma orðin 60 af
hundraði. Eins og stendur
búa aðeins 14 af hundraði
jarðarbúa í Evrópu, og með
syipaðri þróun og verið hef-
ur verður sú tala komin nið-
ur í 10 af hundraði um næstti
aldamót.
Evrópa er þéttbýlasta
álfan.
Sé hins vegar litið á þétt-
býlið hefur Evrópa vinning-
inn. Sé gerður samanburður
á heimsálfum að því er þétt-
býlið snertir kemur Evrópa
fyrst með að meðaltali 85 í-
búa á hvern ferkílómetra. Sé
litið á Mið-Evrópu út af fyrir
sig (136 millj. íbúar), er bétt
býhð enn meira eða 134 á fer
kílómetra. Hún er þannig
meira en tvöfalt þéttbýlli en
Norður- og Vestur-Evrópa
(alls 140 millj. íbúar) þar sem
meðaltalið á hvern ferkíló-
metra er „aðeins“ 62.
Asía, tekin sem heild, er
næstþéttbýlasta álfan með að
meðaltali 59 manns á ferkíló
metra. í sunnanverðri er þéít
býlið mun meira eða 105
manns á ferkílómetra.
Hagfræðingar Sameinuðu
þjóðanna hafa líka reiknað
það út, að á sama tíma og í-
búum Asíu fjölgar um 1,8 af
hundraði árlega er fólksfjölg-
unin í Evrópu aðeins 0,7 af
hundraði. 'Við það bætist að
þéttbýlið í Asíu mun aukast
en í Evrópu stendur það
nokkurn veginn í stað.
Alþýðúblaðið — 22. sept. 198Q 13