Sunnanfari - 01.04.1898, Side 12

Sunnanfari - 01.04.1898, Side 12
60 Sé farið vel útbúinn í heimskauts-rannsóknar- för, og með valda menn, held ég að ekki sé lagt meira á hættu við slíka ferð en við mörg önnur fyrirtæki, er menn taka sér fyrir hendur. Á þennan hátt mætti rannsaka mikið af heim- skautshafi því, sem enn þá er ókannað, en norður af Ameríku yrði þó stórt svæði, sem ekki væri hægt að ransaka á þennan hátt. Hygg ég að þar mætti koinast lengst með hundum og sleðum. Það sýndi sig í ferð okkar, að mögulegt er að fara að tiltölu yfir viðáttumikið svæði á ísnum á þennan hátt, og ég held að kanna mæti allt þetta ókunna svæði, væri að eins séð um að allur útbúuaður væri svo sem vera bæri, og nægilega margir og vel æfðir sleðahundar væru í ferðinni. Þessi könnun- araðferð hefir það sér til ágætis fram yfir ina fyrri, að hún útheimtir miklu minni tima, og hæg- ara er að ráða yfir ferð sinni; hún er vafalaust bezt og auðveldust sé um landkönnun að ræða, en sá galli fylgir henni, að ekki er hægt að dvelja lengi á sama stað, og ekki er tækifæri til að gera svo nákvæinar vísindalegar rannsóknir, sem nauð- synlegar eru, til þess að þekkja þetta svæði ná- kvæmlega. Vér skulum því vona, að báðar þessar rannsókn- arferðir verði notaðar á ókomnum tíma. I þriðja lagi má komast uin ið ókannaða svæði í loftfarinu. Var það fyrst notað til þess í fyrra, en ókunnugt er enn, hvernig sú tilraun hefir hepnast. I loftfarinu má einkum komast að því, hvernig skift er höfum og löndum, en það erundir því komið að veðrið sé heiðskírt og ekki liggi þoka yfir jörðinni. Eg hygg að loftfarið verði að mestum notum við heimskautakannanir með því, að loftfarið væri látið fljúga norður með hunda og sleða og allt sem til sleðaferðar heyrir. Mæti þá yfirgefa loftfarið og brjótast áfram suðureftir aftur á sleðum. Þá þyrfti ekki að fara sömu leið aftur heim í leið, og mögu- legt yrði að rannsaka það svæði nákvæmlega, er farið hefði verið yfir. Að hverju takmarki stefnir öll heimskautakönn- un framvegis? Að eins að vísindalegri rannsókn, og því betur sem kannendur búa sig út i þessu skyni, því betri mun líka verða árangurinn. Vér þurfum fyrst að vita með vissu um að- greining láðs og lagar á þessu svæði. Þetta er ekki að eins nauðsynlegt í landfræðislegu tilliti, heldur einnig af þvi, að án þess er ómögulegt að reikna, hvað mikið sævarmagn er á jörð vorri, eða nákvæmt lilutfall milli sævar og þurlendis, en það hlutfall hefir mikla þýðingu í því skyni, að ákvarða skilyrðin fyrir breytingum í gufuhvolfinu, straum- um í hafinu og margt annað. Vér þurfum einnig að vita nákvæmlega um alt dýpið í heimskautshafinu, um sævarhitann á ýmsri dýpt, alt frá yfirborði og niður að botni; enn fremur þurfum vér að afla oss nákvæmari þekk- ingar á þvi, hvernig ísnum er varið í hafi þessu; hvaða skilyði eru fyrir ísmynduninni, hvernig ísinn rekur, hvað þykkur hann getur orðið o. s. frv. Ef vér viturn alt þetta nákvæmlega, verður ekki að eins hægra fyrir oss að skilja i veðráttunni í norðurhöfum og jafnvel á öllu yfirborði jarðarinnar nú á döguin, heldur hjálpar það, ef tilvill, líka til þess, að skýra lítið eitt inar mörgu og markverðu veðráttubreytingar, sem hafa átt sér stað á ýmsum tímabilum í sögu jarðarinnar. Þegar vér vorum í ferðinni á „Eram“, gerðum vér uppgötvun, er ég ætla að nefna hér, því að hún sýnir ljóslega hversu þýðingarmikið er, að þekkja alt þetta. Þegar vér rannsökuðum saltmegin og hita hafs- ins á mismunandi dýpi, fundum vér að íshafið er þakið lagi af tiltölulega fersku og mjög köldu vatni (4- l„o til -í- 1,00° C.), en álika saltlítill sjór er kom- inn rétt að frostmarkinu. En þegar kom undir þetta lag á nálægt 100 faðma dýpi, varð alt í einu fyrir oss saltari sjór, er var 0,50 til 0,80°heiturá C. Þetta var töluvert meiri hiti, en vér bjuggumst við að finna innan um ísinn í norðurhöfnm. Á miklu dýpi var hitinn nokkuð mismunandi, en varð svo aftur jafn niður á 220—270 faðma dýpi; þaðan af kólnaði sjórinn hægt og hægt eftir því, sem dýpk- aði, en varð þó hvergi svo kaldur sem á yfirborð- inu; vanalega var hann ekki kaldari en -=- 0,75° C. og var það á nál. 1,600 faðma dýpi. Þegar dró að botni, fór hitinn að auliast örlitið hægt og hægt. Hygg ég það komi af hitanum í iðrum jarðar- innar. Það er nokkuð óvænt, að slíkur sævarhiti skuli vera þarna norður frá, þar sem særinn er ískaldur í djúpi Atlantshafsins milli Skotlands, Færeyja og íslands (-f- 0,50" C.). Hafið er þannig kaldara á miklu dýpi suður i Atlantshafi en í grend við heimskautið. Er auð- sætt, að það er sökum þess, að Golfstraumurinn ber hlýja salta sjóinn af yíirborði Atlantshafsins norður í heimskautshafið. Þar mætir þessi salti sjór selt-uminni og léttai’i sjó, sem kemur af því, að særinn blandast þar vatni úr fljótunum í Síberíu og Norður-Ameríku, er renna í heimskaustsskálina.

x

Sunnanfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.