Sunnanfari - 01.04.1898, Síða 32

Sunnanfari - 01.04.1898, Síða 32
84 JÞú komst inn til að kveðja mig, við kystumst blítt og heitt; ég bað guð vernda og blessa þig, því betra’ eg vissi ei neitt; hérvistar burt af hálum stig, hvar* heillin gleður eilífLig, þig hefir líkn hans leitt. Hvarmadögg þerrar móðir mæt meður systkinum þín; ósjálfrátt líka eins eg græt, augna hvarf skemtan min og endurlífgun oft ágæt; innföll þín tít.t mér voru sæt og sneru vatni í vín. Þú varst í störfum þínum trúr, þín lund var hrein og fróm, í orðum og verkum aldrei klúr, af öllum fékst góðan dóm; hugþekkur fram að dauðans dúr, dagfarið blítt í hita’ og skúr, mitt yndis æskublóm.** Af mínum vissi’ eg þróttinn þinn, þitt var ei lyndið krankt, ókvíðið brjóst, en orka stinn, ef eitthvað bar til strangt; máske síðstur með sveitta kinn saupstu þann kalda bikarinn, er huldi þig hafið langt. Elskurik hátign, alt sem ber, ei glatar sinni smíð; andans þó bátar brotni hér ber þá í höfn um síð; lífs munu gátur þrotnar þér, þó að ókátum duld sé mér ókomin æfitíð. Bréf uin Skaptáreldimi 1783. Bréf þetta er hér tekið eftir eiginhandarriti séra Jóns Jónssonar á Mýrum í Álftaveri, föður Steingríms biskups; var hann prestur i Yeri í eld- inum og lengi fyrir og eftir, en síðast í Holti und- ir Eyjafjöllum, og lézt þar 1813; átti hann Helgu *) = þangað sem. **) Hér er eitt erindi felt úr kvæðinu. Steingrímsdóttur, systur Jóns prófasts, er bezt hefir ritað um Skaptáreldinn. En kona Björns prests í Hólmaseli, er hér getur í bréfinu, var Elín Jóns- dóttir, systir Jóns prests, sem ritar þetta bréf. Elín dó háöldruð í Laugarnesi hjá Steingrími biskupi 1826. Séra Björn hafði fengið Meðallandsþing 1761 og var þar prestur í eldinum, en flúði þá þaðan og var um stund Kaldaðarnessprestur, fékk því næst Hrepphóla, og þar lézt hann 1808, en fæddur var hann 1736. Eaðir séra Björns var Jón í Höll í Þverárhlíð (f. 1699, d. 1746) Haldórsson hins yngra í Höll (f. 1643, d. 1690) Jónssonar á Geitaskarði (f. 1609, d. 1691) Egilssonar af ætt Einars sýslu- manns Oddssonar og Gottskálks biskups Nikulás- sonar. En móðir séra Björns var Valgerður (£1711, d. 1785) dóttir Björns í Höll (f. 1688, d. 1761) Gíslasonar, Ásgrímssonar hins sterka, Björnssonar, Jónssonar, Arnfinnssonar i Bjarnastaðahlíð. Séra Björn var ákafiega stór vexti, mikilleitur og ramm- ur að afli, skapstór og stórgerður í öllum háttum; söngmaður var hann góður og kallaður var hann stórríkur; manna var hann drambsainastur. Skarð hafði lengi verið prestssetur í Meðallandi, en um miðja 18. öld fór það af fyrir sandi og uppblæstri*. Yarð þá Hólmasel prestsetur; var það í útnorður frá Steinsmýri, fyrir ofan Steinsmýrarfljót. Tún var stórt í Hólmaseli, girt görðum og fagurt land um- hverfis; húsabær var og reisulegur hjá séra Birni, með 8—10 þilhúsum, og fluttir voru þaðan fjárhlut- ir á 30 hestum undan eldinum 20. Júní 1783. En búi séra Björns í Hólmaseli lýsir séra Jón Jónsson á Lyngum svo í skýrslu frá 12. Ág. 1786: „skal hann hafa haft þar oftast heima vetur og sumar 12 kýr, 3 naut og ungkindur í viðkomu; frá 50 til 90 ær í kvíum og gelda sauði vel sem því svaraði, en lömbin flest á heytollum, er þá voru oftast við 70, c. 20 hesta klifbæra, fyrir utan 2 reiðhesta og stóð- hross, en 14 til 15 menn“. Séra Björn hafði haft það til að vera stórveitull, þegar svo bar undir, en *) 1705, 2. Júní vísiteraði Jón biskup Vidalin Skarðs- kirkju; hafði kirkjan þáverið hygð fyrir einu ári (1704), 7 stafgólf á lengd (kór 2 stafg., framkirkja 5 stafg.), fóðraðir bekkir beggja megin um kór og karl- manna megin um framkirkju, og að nokkru kvenna megin lika; kór alþiljaður og viða súð á rapti um fram- kirkju; gamall járnhringur i hurð; kirkjan sterk og köll- uð mjög vönduð. í visitaziu 1721 er sagt, að „gólfið i kirkjunni sé alt sandi kafið og sýnist þurfa hreinsunar“, „veggirnir mjög sandi kafnir“, „mjög trosnaðir og mold- irnar, þar þeir sjást“. Er þá skipað að endurbyggja kirkjuna enn (1721) á sama stað og fyrri (Skarði).

x

Sunnanfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.