Öldin - 01.11.1895, Blaðsíða 14

Öldin - 01.11.1895, Blaðsíða 14
174 ÖLDIN. hefði alt átt heima í Vogi. Önnur stúlkan hefði vcrið dóttir bóndans. Báturinn hafði komið úr kaupstað og orðið soint fyrir. En stúlkurnar, sein voru standandi hyssa á þessum tiðindum, vildu vita hver systranna það hefði verið, hvort það hefði verið sú sem kom hérna í haus.t, svo dæmalaust falleg stúlka og góð. Ja, þeir vissu það nú ekki vel. Fyrst minnti annan, að það hefði verið sú yngri; ,j \, þámundi hinn það líka að þeim hefði varið sagt það á Spörð- um. Já, stúlkurnar vissu ekki samt, hvort það væri stúlkan sem hjerna hefði komið. Þær vissu ekki hvort hún var yngri eða eldri, svo þær leituðu til Sveins. Hann sagði þeim að Elín væri yngri en llagna. Auðvitað entust þessar fréttir handa fólk- inu alt kveldið, fram og aftur til skrafs og skýringa. Mér þóttu þessar fréttir ekki góðar. Samt vonaði ég — gat ómiigulega trúað öðru en þær vöru ósannar. Mér var ó- mögulegt að skilja í því, að Elín hefði far- ið sjóveg út í lcaupstað eða til baka um þetta leiti. Ég hafði skrifað henni fyrir nokkrum dögum, en elckert svar fengið enn þá. Ég var h&lf órólegur yfir þessu öllu. Næsta dag fréttist að það hefði verið eldri systirin frá Yogi sem druknað hefði, en alt óáreiðanlegt með hina mennina. Þriðja daginn komu nú loks áreiðanlegar fréttir um skipskaðann. Báturinn hafði verið frá Brekku, enginn á honum frá Vogi. Um leið og ég fór norður að Töngum kom ég að Vogi. Ég hitti svo á að pilt- arnir voru á sjó, og Kagna hafði farið til næsta Tbæjar. Elín kom til dyranna. Við höfðuin bezta næði að tala saman það sem eftir var af deginum. Hún hafði aldrei fengið bréfið frá mér. Hún hafði stund- um ætlað að ímynda fér, að ég væri alveg hættur að muna eftir sér, þogar ég væri orðinn eigandi að öllum Skarðsauðn- um ; en hún hafði æfirilega liætt við ímynd- unina afcur. Ég sagði henni að hún skyldi ekki trúa því, að ég væri stórt ríkari en ég hefði verið. Jú hún var á þvf. Það segðu allir, að frændi minn hcfði arfleitt ri ig eft- ir sig. Og ög kannaðist ósköp vel við það, að bæði hann og aðrir hef'ðu gefið mér gustukaskepnutililinn. En hann hefðiekki arfleitt mig að eyrisvirði, mér vitanlega. Hann mundi heldur ekki hafa getað það, karlsauðurinn, því ég væri sannfærður um að hann hefði ekki átt svo mikið sem tví- evring skuldlausann. Eg sá að þaö gekk alveg fram af henni, og liún trúði n.ér ekki. Eftir ofurlitla stund tók hún í báðar hendurnar á mér og sagði hlæjandí: “Elskan mín ! Taktu það ckki svo- leiðis að ég hafi elskað Skarðsauðinn, en ekki þig sjálfan. Nei, það ert þú sem ég sleppi aldrei nema ég hætti að vera til um leið. En fólkið var búið að koma þessari vitleysu inn í mig, og því varð ég svona hissa þegar þú sagðir mér, að þú fengir ekkert af' eigum frænda þíns. Eg trúi því af þvi þú segir mér það. En ég trúi því ekki að hann hafi ekki átt tvíeyring fyr en þú skýrir mér það betur.” “Þá skal ekki standa á því. elsku Ella mín,” svaraði ég og hélt svo áfram: “Þegar móðir mín fór til frænda sál- uga, gerðist hann íjárhaldsmaður og fj&r- ráðamaður okkar, fyrir fimm þúsundum króna. Þá var hann mjög fátækur sjilfur en eljumaður var hann samt. Þegar móð- ir mín dó bar mér alt féð. Yextir af þessu fé eru auðvitað meiri í 18 ár, en uppeldi mitt kostar og tveggja ára vera móður minnar sálugu. .~vo þegar ég var 5 ára gamall fékle ég arf sem nam sömu upphæð eftii' afa minn sáluga, séra Konráð Þor- valdsson, fyrrum prest í Hofsþingum. Svo þrem árum síðar fékk ég arf' eftir Þórarinn föðurbróður minn, sem nam 8000 krónum. Af þessum örfum mínum hcfir Skarðsauð- urinn samanstaðið, þó allir liafi ætlað að rifna og ganga af göflunum út af því óvið- jafnanlega góðverki að ég var alinn upp að Skarði. Frændi minn sjálfur barði mig

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.