Öldin - 01.10.1896, Blaðsíða 11

Öldin - 01.10.1896, Blaðsíða 11
ÖLDIN. 155 kona eða barn, raátti stíga út fyrir hús- dyrnar, nema hann hefði í höndum leyfis- bréf, er kostaði frá 25 cents til 50 dollars. Yrði einhverjum á að koma út úr húsi án þessa leyfisbrófs, var hann óðara hneptur í fangelsi. Enda beiningamennirnir voru ekki undanþcgnir þessu gjaldi, þessum lögum. Það gat enginn maður verið óhultur um sjálfan sig. Þó alstaðar ríkti friður, og allir andvaralausir að gegna 'nversdags- störfum sínum, voru Cubamenn teknir fast- ir og hneptir í fangelsi eða reknir úr landi, Sn þess nokkur kæra væri framborin eða rannsókn gerð. I Desember 1880 lét Pa- iavieja hershöfðingi taka fasta 265 menn, í ýmsum héruðum á éyjunni, og senda til glæpamanna-bygðar Spánverja á Afríku, eyjunni á Fernando Po. Þar var ekkert rit- eða ræðu-frelsi. Blaðamennirnir Cepeda og Lopes Brinas, voru gerðir landrækir, af því þeir leyfðu sér að gera tilraunir til að finna að gerðum stjórnarinrar. Og Senor Manvel A. Bal- maseda var dreginn fyrir hershöfðingja- rétt og dóm í Nóvember 1891, af því hann í blaði sínu, ,,E1 Criterio Popular”, hafði í fáum orðum minst á aðfarir sjálfboða-her- mannanna, er þeir skutu læknaskólastú- denta í Havana 1871. Ef Cubamann langaði til að hafa heim- boð í hú-i sínu, varð hann að fá sérstakt leyfisbréf, er hann auðvitað þurfti að borga. Gerði hann það ekki, voru vandræði vís. Af öllum valdsmannaskaranum á eyj- unni, fengu Cubamenn ekki að kjósa einn einasta. Frá hinum æðsta, undirkonung- inum, niður til hins lægsta, voru þeir allir kvaddir til starfa af Spánarstjórn og vitan- lega voru þeir allir vinveittir Spánverjum, enda Spánverjar allir. Cubamenn komust það hæzt að verða skrifstofuþjónar og það ekki nema fáir. Cubamenn höfðu engin áhrif, ekki málfrelsi og þá því síður atkvæði, þegar rætt var um niðurjöfnun skatta, eða um það, hvernig verja skyldi fénu í sjóði hins opinbera á eyjunni. 011 þesskyns mál voru afgreidd á Spáni, — það ómak tekið af Cubamönnum. Þeir guldu í skatt á ári liverju frá 20 til 30 miljónir dollars og af þeirri uppbæð allri fengu þeir einar $700 þúsundir til umbóta á eyjunni, þ. e., til vegavinnu, fróttaþráðarlagninga, opinberra bygginga, hafnabóta, vita-bygginga og viðhalds, heilbrigðis-þarfa, o. s. frv. Það var satt sagt venjulegast að minna en helmingi þessarar upphæðar væri varið til upptaldra starfa og eyjarbúum til gagns. Og sú litla upphæð fór þá venjulega mest- megnis í laun hinna ýmsu umsjónarmanna og nefndarmanna, er þessi störf höfðu á hendi. Hinu fénu öllu, skatti eyjarmanna, var varið þannig : Til að borga vöxtu af stjórnarskuldum Spánverja gengu $12 milj.; til viðhalds og aukningar sjóflota og landher Spánverja gengu um $7 miij. á ári hverju; og til að launa undirkonunginn og allan embættismannaskarann á Cuba Og annarsstaðar gengu um $8 milj. á ári. Af þessum $30 milj. skatti á ári fengu Cuba- menn ekki einn eyri til almennrai- upp- fræðslu. Hinum sérstöku sveita-félögum var ætlað að sjá um mentamálin að öllu- leyti. En þar sem Spánarstjórn tæmdi allar æðar með sínum álögum, leiddi það af sjálfu sér að sveitafélögin gátu ekkert að gert. Þau höfðu engin ráð á að launa kennurum, og alþýðumentun þar af leið- andi sat á hakanum algerlega. Það voru jafnvel ekki til skólahús fyrir fjórða hvert barn á skólaaldri. Fyrgreind upphæð skattanna er mikil, en þó sýnir hún ekki nándarnærri alt það fé, er Cubamenn máttu láta af hendi rakna við Spánverja á ári hverju. Hin framtalda upphæð sýnir að eins það fé, er embættis- mönnum stjórnarinnar þóknaðist að sýna innheimt í bókum sínum. En það er á vitorði manna, að í sumum tilfellum kem-

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.