Öldin - 01.10.1896, Page 12

Öldin - 01.10.1896, Page 12
156 ÖLDIN. ur ckki þannig til reiknings meir en fjöru- tíu til fimmtíu dollars af hverjum hundrað dollars innheimtum ! Afganginurh skifta embættismennirnir í bróðerni á milli sín, sem aukagetu! Tollur á varnirigi, sém keyptur er í öðrum löndum er aðal-tekju- greinin, og það er kunnugt, að stundum er ekki skráð í bækur tollheimtumatinanna nema 40% og tæplega það, af réttri upp ■ hæð varningsins, sem fluttur er til eyjar- innar. Árið 1887 keyrðu tollsvikin svo fram úr öllu hófí, að annaðhvort af því hann vildi sýnast frómur, eða af því hann hefir þóttst vera afskiftur, óð undirkonungurinn einn góðan veðurdag inn í tollhúsið í Ha- vana með herflokk sinn og lét taka fiista alla toll-þjóna og flytja burtu. En svo var samt ekki einum einasta þeirra hegnt, — enda ekki við því að báazt. Aftur árið 1891 voru tollsvik sönnuð á 350 tollþjóna, háa og Jága, en ekki einum einasta var hcgnt fyrir! Hefði þeim verið hegnt, var hætt við að þeir gerðu opinberanir, sem skaðlegar yrðu háttstandandi höfðingjum í Madrid; á meðal þeirra er:da ráðgjafar kon- ungs. Því þessir háu herrar taka sii.n hluta af þessu stolna fé. Leggi maður saman þessa tvo tölu-bálka, féð sem greitt er í sjóð stjórnarinnar, og féð sem þannig er stólið, verður útkoman að minsta kosti $50 miljónir. Þó er ekki alt talið enn. Spánarstjórn neyðir Cubamenn til að kaupa 28 milj. dollars virði af vörum að Spán- verjum á ári hverju, en sem þeir í öðrum löndum, sérstaklega í Bandaríkjum, gætu fengið fyrir alt að fjórðungi minna verð. Tollurinn á þeim vörum er sniðinn í hag verkstæðiseigendum á Spáni sem svarar 250 til 600% ! Leggi maður allar þessar upphæðir saman, auk annara smærri, sem ekki eru taldar, kemur í Ijós að Cubamenn auka tekj'ur Spánverja svo nemur að minsta kosti 55 til 60 milj. dollars á ári. En svo er stuldur spænskra embættis- manna á Cuba meiri miklu, en fyr greind málsatriði benda á. Það er ótalið enn al^ það fé, sem þeir hafa stolið af fénu, sem bækur þeirra sýna að komist hefir í hend- ur hins opinbera. Spænskur hershöfðingi, Pando að nafni, og einn af þjóðþingmönn- um, flutti ræðu, þar sem hann vék á þetta mál, á þingi 22. Marz 1890. Eftir að hafa talið upp ýmsar upphæðir, sem bækurnar sýndu, en sem hvergi voru til, íórust hon- um orð á þessa leið: “Sjóðþurðin í reikn- ingunum yfir landeignir, sem upptækar hafa verið gerðar, er 14 miljónir dollars; sjóðþurð skuldabréfa-nófndarinnar er $12 miljónir, og það þó slept sé upphæðinni, sem Oteiza hefir feðrað. Leggi maður þessar upphæðir saman við þær, sem ég hefi áður talið fram, verður útkoman alls yfir 40 miljónir dollars”, — yfir $40 milj. stolið! Þetta er lítið sýnishorn af fárra ára ó- stjórn Spánverja á Cuba! Þó var ekki all- ur þjófnaðurinn framtalinn í þessari ræðu á þingi. Það komst síðar upp að Oteiza- þjófnaðurinn skifti mörgum miljónum dollars. Framanrituð grein er ekki nema óná- kvæm höfuð-atriði í raunasögu Cubamanna. Sú saga öll er nægilegt efni í stóra bók. En það er nóg til að gefa lesaranum hug- mynd um óstjórn Spánverja. Hafa Cuba- menn ekki ástæðu til að grípa til vopna, grípa til allra meðala, sem fáanleg eru, til að reyna að slíta af sér hlekkina, — brjóta af sér þetta óbærilega harðstjórnar-ok ?

x

Öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.