Öldin - 01.10.1896, Page 15

Öldin - 01.10.1896, Page 15
ÖLDIN. 159 áram og stór verðlaun verið boðin þeim, sem kæmi með fullkomnastan, ferðmest- an og undireins einfaldastan vagn. Hefir þetta leitt til þess að uppfinnendur og véla- smiðir hafa lagt alt kapp á að breyta vél- um og vagni og endurbæta á allan h'.tt. Sem sagt er það rétt nýlega að menn fóru að gefa sig við þessari uppflndingu, en þó svo sé, gengur þegar í upphafl svo vel að hagnýta vagnana, að margir hafa spið því, að innan skamms muni þeir útrýma hest- unum af þjóðbrautum landsins, einkum í þéttbygðum héruðum og þar sem akvegir eru góðir. Sú tilgáta er nokkuð gífurleg, enda eru það ekki nema ákafamennirnir, sem ekki ráða við huganu, sem bera hana fram. Það sem þeir byggja þá tilgátu á, er aðal-lega þetta: Hesturinn eldist, þreyt- ist, þarf endalausa umönnun, hey og hafra ög hlýtt og gott húsnæði. Brautfarandi þessi þarf ekki neitt þvílíkt. Sé hann lít- ill, á borð við lítinn einhestis-vagn, þarf hann ekki annað eldsneyti en dálítið af steinolíu og nokkra potta af vatni. Hann þreytist ekki og sé hann vel smíðaður eld- ist hann ekki — lætur, ekki ásjá — eins fijótt eins og hesturinn, og hann er æfinlega til taks. Ekki þarf annað en kveikja upp, koma vatninu í suðu-hita og — hann er ferðbúinn. En svo athuga þcssir ákaflyndu menn það ekki eins vel, að enn sem komið er, kosta þessir vagnar svo mikið, að það er ekki fítæklinga meðfæri að kaupa. Meðal-verðið er óhætt að segja að sé ekki fjarri 1,500 dollars, eða ígildi 6—7 hesta með aktýgjum og vagni, og enn sem kom- ið er, er þessi smíð ekki komin lengra á veg en það, að si sem kaupir einn þennan vagn fyrir 1,000—2,000 dollars, á ekki víst að hann endist nokkurn tíraa, en miklu vísara að eitthvað í honum bili, ef til vill á fyrstu ferðinni. Það er þess vegna lítil hætta á að þessi uppfinding útboli hestum úr ílokki ómissandi vinnudýra. En víst er það skoðun allra, að innan skamms muni þessi uppfinding takmarka brúkun hesta í öllum þéttbygðum héruðum, svo framarlega sem hún reynist eins vel eins og menn nú ætla, þegar til þrautar skal reynt og sem lítill efl virðist á. I tilefni af því að nú nýlega voru þess- ir gufuknúðu vagnar reyndir á spretti frá London á Englandi til sjóstaðarins nafn- kunna: Brighton, á suðurströnd landsins, flytur “Scientiflc American” stutta ritgerð um þessa gufuknúðu reið, og er úttdráttur úr henni á þessa leið: “Hvað England snertir liefir það ver- ið gömlum og leiðum lögum að kenna, — lögum, sem bönnuðu sjálf-knúða vagna á brautum, nema með þyngsla æki og und- ur hægri ferð — að Frakkar hafa verið sem næst einir um að fullkomna þessa vagna. En nú þegar þau lög eru úr gildi numin má vænta þess, að þjóð sem gaf heiminum gufuvagninn og sem heflr átt svo mikinn þátt í að fullkomna hann, taki nú einnig sinn fulla þátt í að fullkomna þessa uppfindingu. “Þegar vér segjum að þessi tilraun við sjálf-knúinn vagn sé svo þýðingarmik- ið atriði í samgöngufæra-sögu Breta, að næst gangi gufuvagns-uppfindingunni, þá segjum vér það vitandi að starfsvið sjálf- knúinna vagna verður takmarkað ogbund- ið föstum skorðum, ekki síður en er starf- svið gufuvagnsins. Þar sem starfsvið gufuvagna endar, þar byrjar starfsvið sjálf- knúinna vagna. í héruðum þar sem lítil eða engin von er til-að járnbraut verði lögð, þar taka þessir vagnar við af járn- brautalestunum. Við þennan flutning og til flutninga rnilli smá-þorpa í sveitum, verður þessi vagn, þegar hann er fenginn fullkominn, að sumu leyti eins nauðsyn- legur þáttur í samgöngufærunum eins og eru járnbrautirnar sjálfar. “A.ð frádregnu banni laganna, um sjálfknúinn vagn á þjóðbrautum, er ekki ólíklegt að uppfinding járnteinanna hafl

x

Öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.