Lögberg-Heimskringla - 14.09.1961, Síða 3

Lögberg-Heimskringla - 14.09.1961, Síða 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 14. SEPTEMBER 1961 3 Mr. og Mrs. S. A. Thorarinson 227 Handsart Blvd., Winnipeg, Man. Mr. og Mrs. Oliver G. Björnson 329 Cordova St., Winnipeg, Man. Mr. og Mrs. Jón K. Laxaal Man. Teachers College, Tuxedo, Man. Mr. og Mrs. J. M. Gilchrist 101 Park Blvd., Tuxedo, Manitoba Mr. og Mrs. Hugh L. Hannesson 604 Elm St., Winnipeg, Man. Mr. og Mrs. James H. Page 10 Roslyn Crescent, Winnipeg, Man. Mr. og Mrs. Ólafur Hallson Eriksdale, Manitoba Mr. og Mrs. Björn Eggertsson Vogar, Manitoba Mr. og Mrs. L. H. Thorlaksson 4051 Cypress St., Vancouver, B.C. Consul og Mrs. John F. Sigurdson 1305 W. 48th Ave., Vancouver, B.C. Mr. og Mrs. Paul Hallson 714 Ellice Ave., Winnipeg, Man. Mrs. R. Pétursson 742 Waterloo St., Winnipeg, Man. Miss Margrét Pétursson 742 Waterloo St., Winnipeg, Man. Mr. og Mrs. Cecil Anderson 409 Beverley St., Winnipeg, Man. Mr. og Mrs. Guðmundur J. Johnson 109 Garfield St., Winnipeg, Man. Mr. Marino Briem Riverton, Manitoba Mr. og Mrs. Grettir Eggertson 78 Ash St., Winnipeg, Man. Mr. og Mrs. Björn Björnsson Box 147, Lundar, Manitoba Dr. og Mrs. Percy Johnson Flin Flon, Manitoba Mr. og Mrs. Kári Byron Lundar, Manitoba Dr. og Mrs. P. H. T. Thorlakson 114 Grenfell Blvd., Winnipeg, Man. Dr. og Mrs. B. T. H. Marteinsson 925 W. Georgia, Vancouver, B.C. Mr. og Mrs. Leo E. Johnson 20 Burning Bush, Winnipeg, Man. Rev. og Mrs. V. J. Eylands 686 Banning St., Winnipeg, Man. Mrs. Thora Valgardsson 1045 Second Ave., Moose Jaw, Sask. Mrs. Ingibjörg Jónsson 29 Queens Apts., Winnipeg, Man. Próf. og Mrs. H. Bessason Ste. 14B Garry Manor, Ft. Garry, Man. Mr. og Mrs. V. J. Guttormson Lundar, Manitoba Mr. og Mrs. John Guttormson Lundar, Manitoba Mr. og Mrs. Elman K. Guttormson 156 Marshall Cres., Winnipeg, Man. Mr. og Mrs. Björn Johnson 395 Alexander Ave., Winnipeg, Man. Senator og Mrs. G. S. Thorvaldson Ottawa, Ontario Mr. og Mrs. A. G. Eggertson 109 Lamont Blvd., Tuxedo, Man. Mr. og Mrs. Halldór Sigurdson 526 Arlington St., Winnipeg, Man. Mr. og Mrs. J. B. Johnson Gimli, Manitoba Mrs. Ella Sigurdson Gimli, Manitoba Mr. og Mrs. Eric Stefanson Gimli, Manitoba Mrs. Kristín Thorsteinsson 74 First Ave., Gimli, Manitoba Mr. og Mrs. Th. Gíslason Oak Point, Manitoba Mr. og Mrs. L. Danielson Lundar, Manitoba Dr. og Mrs. L. A. Sigurdson 1246 Wolseley Ave., Winnipeg, Man. Mr. og Mrs. J. M. Ingimundson 632 Simcoe St., Winnipeg, Man. Mr. og Mrs. E. I. Swanbergson Box 608, Atikokan, Ontario Mr. og Mrs. A. F. Kristjánsson 1824 Assiniboine Ave. Winnipeg ,Man. Dr. og Mrs. H. F. Thorlakson 5143 Latimer Place, Seattle, Wash. The Bardals of Vancouver Vancouver, B.C. Mr. og Mrs. J. W. Árnason Gimli, Manitoba Mr. og Mrs. T. K. Árnason Gimli, Manitoba Mr. og Mrs. S. O. Bjerring 322 Borebank St., Winnipeg, Man. Dr. George Johnson 299 Waverley St., Winnipeg, Man. First Lutheran Church Victor and Sargent, Winnipeg, Man. Mr. og Mrs. Erling Bjarnason 2780 E. Broadway, Vancouver, B.C. Dr. og Mrs. T. Kenneth Thorlakson 309 Montrose St., Winnipeg, Man. Mr. og Mrs. W. Kristjánson 499 Camden Place, Winnipeg, Man. Mr. og Mrs. S. O. Bjerring 322 Borebank St., Winnipeg, Man. Mrs. Steinunn Inge Foam Lake, Saskatchewan Söguleg og kærkomin heimsókn Eftir Dr. RICHARD BECK, forseta Þjóðræknisfélags Islendinga í Vesturheimi. Stór og glæsileg er fylking hinna mætu og mikilhæfu fulltrúa heiman um haf, er ferðast hafa á vegum Þjóð- ræknisfélagsins um byggðir vorar beggja megin landa- mæranna, til fyrirlestrahalds eða annarra samkomuhalda. Yrði það langt mál, ef farið væri út í það að nefna þá alla með nafni, þótt meir en verð- ugt væri, en um þá eiga við orð Þorsteins Erlingssonar: Það þýðir ekki að þylja nöfnin tóm, og þjóðin mun þau annars staðar finna. Nöfn þessara góðu og kær- komnu gesta eru skráð var- anlega á söguspjöld félags vors, og í þakklátum hugum hinna mörgu, sem minnast enn heimsókna þeirra. Vakn- ingar þeirra í þjóðræknismál- unum og annarra hollra áhrifa af heimsóknum þeirra hefir og gætt og gætir enn með mörgum hætti í starf- semi félagsins og í menning- arlegum samskiptum íslend- inga yfir hafið, þótt það verði eigi nánar rakið að sinni. Þessari grein er sérstaklega það hlutverk ætlað að bjóða innilega velkomin herra Ás- geir Ásgeirsson, forseta ís- lands, og virðulega frú hans, ásamt ágætu föruneyti þeirra, á slóðir vorar íslendinga hér í Vesturheimi. Er þetta fyrsta heimsókn ís- lenzks þjóðhöfðingja í byggð- ir vorar, og því að sama skapi sögulegur viðburður. Hins vegar er Ásgeir forseti oss ís- lendingum vestan hafs löngu að miklu góðu kunnur, bæði af afspurn og persónulega. Vil ég í því sambandi taka upp eftirfarandi ummæli mín um hann úr grein minni í Almanaki Ólafs S. Thorgeirs- sonar (1953), er rituð var í tilefni af fyrstu kosningu hans í forsetaembættið: Forseti Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesiurheimi „Mörgum íslendingum hér vestan hafs, er sóttu Alþingis- hátíðina, mun í fersku minni virðuleg stjórn hans á því sögulega hátíðarhaldi og fram- koma hans öll, er vakti að- dáun erlendra manna eigi síð- ur en landa hans. Ýmsir í hópi Vestur - Islendinga minnast einnig þakklátlega komu hans vestur um haf og fyrir- lestrahalda hans á ýmsum stöðum árið 1935. Er þeim, er þetta ritar, einkum minnis- stætt erindi það um ísland, sem Ásgeir Ásgeirsson flutti í Bismarck, Norður-Dakota, á fjölsóttu ársþingi Kennarafé- lags ríkisins, og hinar ágætu viðtökur, sem hann átti þar að fagna.“ Hefir Ásgeir forseti einnig margsýnt það, að hann ber hinn hlýjasta hug til vor ís- lendinga vestur hér, og kann vel að meta þjóðræknisbar- áttu vora og menningarfram- lag íslendinga hér í álfu. Gild- ir hið sama um hina ágætu konu hans. Og margir eru þeir orðnir Islendingarnir héðan vestan um hafið, sem notið hafa fangvíðrar og hjarta- hlýrrar gestrisni á forseta- setrinu að Bessastöðum, og eiga þaðan hlýjar minningar. Djúpstæður góðhugur Ás- geirs forseta til vor Vestur- Islendinga og sambærilegur skilningur á högum vorum, sögu og baráttu, kemur einn- ig víða fram í ræðu og riti. Vil ég leyfa mér að minna á ný á eftirfarandi ummæli úr ávarpi hans til vor, er önd- vegi skipaði í hinu efnismikla bindi Eddu Árna Bjarnarson- ar (1958), er helgað var sér- staklega oss Islendingum vestan hafs: „Fjörðurinn á milli frænda var lengi fullbreiður til kynn- isfara, en nú eru mikil um- skipti orðin, og vart lengra í tíma að brúa þetta mikla rúm en áður tók að fara milli Reykjavíkur og Skálholts. Þessar nýju aðstæður ættum vér að notfæra til fulls. Fá- menn þjóð má ekki við því að missa neitt sinna barna. Þó sumir þræðirnir kubbist, má hinn vígði þáttur ætternis og menningar ekki slitna.“ Þetta er vel mælt og vitur- lega, og lýsir ágætlega hugar- fari þjóðhöfðingja ættlands vors í vorn garð. Það er þá einnig fullvst, að heimsókn Ásgeirs forseta og forsetafrúarinnar hingað vest- ur um haf, og sérstaklega koma þeirra í byggðir vorar, er eigi aðeins einstæður at- burður í sögu vorri, heldur mun sú heimsókn jafnframt stórum efla ættar- og menn- ingartengslin milli vor Islend- inga yfir hafið; glæða oss ís- lendingum hérlendis ' hollan þjóðarmetnað í barmi, gleggri skilning á þjóðernislegum verðmætum vorum og menn- ingarlegum, þá væntanlega einnig vekja oss nýjan áhuga- eld í þeim efnum og fastan ásetning í þá átt, að „láta aldrei fánann falla“, því „fram til heiðurs stigið er“ þegar um er að ræða varðveizlu þess, sem vér höfum fegurst og bezt að erfðum fengið frá feðrum vorum og mæðrum. I þeim anda vil ég, í nafni Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi, bjóða forseta Is- lands, Á s g e i r Ásgeirsson, heiðursverndara félags vors, og virðulega frú hans, ásamt með fríðu föruneyti þeirra, hjartanlega velkomin. Ekki hafa aðrir kærkomnari gestir gist byggðir vorar.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.