Lögberg-Heimskringla - 31.01.1963, Blaðsíða 9

Lögberg-Heimskringla - 31.01.1963, Blaðsíða 9
Högberg - Jtetmsfertngla Stofnað 14. jan., 1888 Stofnuð 9. sept., 1886 11. ARGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 31. JANÚAR 1963 9 Ingibjörg Jónsson: Útgefendi Það er enginn leikur að gefa út blöð á erlendum tungu- málum í Norður-Ameríku þar sem öll dagleg viðskipti í verzlun, stjórnmálum, skólum og öðru fara fram á ensku; það er ekki sízt erfitt fyrir ís- Sigtryggur Jonasson lendinga, sem eru fámennastir allra þeirra mörgu þjóðar- brota sem byggja þetta meg- inland. Þó hefir þeim tekist að halda uppi útgáfu íslenzkra blaða svo að segja óslitið frá því að Framfari var stofnaður 1877 og fram á þennan dag, en oft var barist í bökkum. Fyrstu blöðin, Framfari og Leifur féllu, og oft lá við að sömu örlög biðu Heimskringlu og Lögbergs, en þegar mest hallaðist á urðu' ávalt ein- hverjir til þess að hlaupa und- ir bagga og reisa við útgáfuna, ekki vegna þess að þeir byggj- ust við persónulegum hagnaði — þeir vissu fyrirfram að þess var ekki að vænta — þeir lögðu á sig áhyggjur, fjár- framlög og óteljandi fundar- höld vegna þess að útgáfa ís- lenzks blaðs var þeim hug- sjónamál. Þess má og minnast, ir Löbergs að margir ritstjóranna studdu útgáfuna fjárhagslega árum saman með því að sætta sig við lægra kaup en almennt gerist við slík störf. — Stofnendur Lögbergs voru Sigtryggur Jónasson, Einar Árni Friðriksson Hjörleifsson Kvaran, Bergvin Jónsson, Ólafur S. Þorgeirs- íon, Árni Friðriksson og Sig- irður J. Jóhannesson, og kom fyrsta tölublað Lögbergs út 14. 'anúar 1888. Var þess getið að Lögberg væri framhald af Framfara og Leifi, að útgef- ^ndur Lögbergs hefðu keypt orentáhöld og útgáfurétt þess- ara beggja blaða. Auk þess hefðu þrír þeirra verið hlut- eigendur í Framfara, þeir Sig- tryggur Jónasson, Árni Frið- riksson og Bergvin Jónsson. Sigtryggur Jónasson mun sá eini, sem nokkurt fé lagði af mörkum til að hleypa fyrir- tækinu af stað, en ritstjórinn, Einar Hjörleifsson Kvaran og fyrsti prentari blaðsins, Ólafur S. Þorgeirsson styrktu fyrir- fækið með því að leggja til bess meira eða minna af kaupi því, er þeim var ætlað. Vorið 1890 bættust fleiri í HON. TH08. H. JOHNSON. hóp útgefandanna og var þá stofnað hlutafélag með $10.000 höfuðstól, er nefndist Lögberg Publishing Co. Ltd. Þessir voru skipaðir í stjórnarnefnd: Sigtryggur Jónasson, forseti. Árni Friðriksson, vara-forseti. Jón Ólafsson, skrifari, féhirðir og ráðs- maður. Páll S. Bardal. Andrés Freeman. Lögberg var upphaflega 4 blaðsíður, 5 dálka á breidd og 18 þumlungar á lengd, en nú í byrjun þriðja árgangs síns var það stækkað um helming, í 8 blaðsíður í sama broti. Aftur var það stækkað árið 1904 í 6 dálka að breidd og 19 þuml. að lengd, og voru nú ráðnir að- stoðar ritstjórar. Útgáfufélag þetta gaf út blaðið í 20 ár. Árið 1911 var stofnað nýtt hlutafélag með $50,000 höfuð- stól. Hluthafar voru þeir sömu og áður en nokkrir nýir bætt- ust við og var félagið nefnt The Columbia Press Limited. Ýmsar breitingar höfðu orðið Ólafur S. Þorgeirsson á stjórn gamla félagsins á undanfarandi 20 árum, og tók þáverandi stjórnarnefnd gamla félagsins við stjórn í nýja félaginu, en í henni áttu sæti: Jón J. Vopni, forseti. Andrés Freeman, vara-forseti. J. A. Blondal, ráðsmaður. Thomas H. Johnson. Chr. Ólafsson. Þetta hefir auðsjáanlega verið blómaskeið í sögu út- gefanda Lögbergs. Hið nýja félag reisti nú fjölhýsi á suð- austur horninu á William Ave. og Sherbrook Street, þar sem gamla prentsmiðjan stóð. Hin nýja og endurbætta prent- smiðja var á neðstu hæð en skrifstofur og íbúðir leigðar á efri hæðum. Og enn var blaðið stækkað. Um leið og þessar breytingar urðu 1911 var það stækkað í 7 dálka á breidd og 2\Vz þumlung á lengd. Varð það þá langstærsta fréttablað á ís- lenzku. Engin vafi er á því að þeir menn sem hér áttu hlut að máli voru stórhuga en fyr- irhyggjan ekki að sama skapi. I stað þess að auka kostnað- inn með útgáfu óiþarflega stórs blaðs hefði farið betur á Hjálmar Bergman dómari því að mynda tryggingarsjóð fyrir Lögberg. Árið 1923 seldi félagið byggingu sína á Sherbrook og William strætum og reisti sér aðra á norðaustur horni Sargent Ave. og Toronto St. og átti nú Lögberg þar bú- stað í fjöldamörg ár. Árið 1932 var blaðið aftur minkað niður í 6 dálka blaðsíður, og gefur það til kynna að blaðið hafi ekki farið varhluta af kreppunni sem ríkti í öllu við- skiptalífi á þeim árum. Auk þeirra manna er nú hafa verið nefndir, áttu sæti í útgáfunefnd Lögbergs um lengra og skemmra skeið, Magnús Paulson, B. T. Björn- son og Jón J. Bildfell; var hinn síðastnefndi á mismun- andi tímum, forseti, ritari og ráðsmaður. Árið 1934 varð Friðrik Stephenson aðaleigandi Col- umbia Press, en hann hafði Friðrik Stephenson verið ritari og gjaldkeri þess síðan 1927. Og var nú útgáfu- nefndin þannig skipuð: Hjálmar A. Bergman, K.C., forseti (síðan 1920). Dr. B. J. Brandson, vara-forseti. Friðrik Stephenson, f ramkvæmdast j ór i. Edwin F. Stephenson. H. J. Stephenson. Dr. B. J. Brandson Sökum hnignandi heilsu lét Friðrik Stephenson af stjórn fyrirtækisins 1937 og fékk það í hendur Edwin syni sínum. Columbia Press hafði ekki náð sér á strik síðan á kreppu- árunum, enda hafði nú prent- kostnaður og kaupgjald hækk- að að miklum mun. f nóvem- ber 1938 var tekið það ráð að minka Lögberg niður í þá stærð sem Lögberg-Heims kringla er nú, en það bætti lítið fjárhaginn vegna mikilla skulda er hlaðist höfðu á félagið. Útgáfunefndin lagði á sig fórnfúst starf í þágu félagsins, en þeir, sem átt höfðu sæti í nefndinni árum saman voru orðnir þreyttir, sem vonlegt var. Þeir sáu ekki annað fram- undan en að selja yrði prent- smiðjuna til að ljúka skuldun- um og leggja niður útgáfu blaðsins. Framhald á bls. 10. Jón J. Vopni Edwin F. Stephenson

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.