Lögberg-Heimskringla - 31.01.1963, Blaðsíða 12

Lögberg-Heimskringla - 31.01.1963, Blaðsíða 12
12 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 31. JANÚAR 1963 ísland og Ameríka Framhald af bls. 11. að hver maður elskar sitt föð- urland heitast og innilegast, iþegar hann á því á bak að sjá. „Enginn veit, hvað átt hefur, fyrr en misst hefur“, segir fornkveðið orð. Hver sem hefur reynt það að vera barn og fara úr föðurgarði, hefur sjálfsagt orðið þess var, að þegar hann skilur við for- eldrana, þá finnur hann fyrst full-ljóst til þess, hve kærir þeir eru honum. Og það sem merkilegast er: Vér, sem höfum yfirgefið ís- land, trúum ef til vill lang- sterkast á framtíð þess.“ Skylt er að fara nokkrum orðum um skrif hinna fyrstu Lögbergsmanna um það, hvaða afstöðu fslendingum beri að taka gagnvart norður- amerísku þjóðlífi. Það ætla ég, að þau skrif beri yfirleitt vott um víðsýni. Fólk er ósjaldan hvatt til þess að leggja alúð við enskunámið, en jafnframt varað við því að hirða ávallt það, sem sé hendi næst, og því bent á vandaðar enskunáms- bækur. Sjálft móðurmálið verður mönnum og snemma nokkurt áhyggjuefni. f þriðja blaði fyrsta árgangs er grein- in „íslenzkan má ekki deyja út“. Þar er látið að því liggja, að hún sé sums staðar að verða heldur svipljót og að málleys- ur vaði upi. í fjórða tölublaði sama árgangs segir svo um þessi efni: „. . . íslenzkan má ekki deyja meðal vor eða af- bakast og verða að hrogna- máli. Eins og vér höfum tekið fram, eru engin líkindi til, að vér fáum löggjafarvaldið til að vernda hana að neinu leyti. Og hverjir eiga þá að vernda hana? íslendingar eiga að vernda hana sjálfir. Og þeir geta það með ýmsu móti. f al- íslenzkum byggðarlögum er ekkert á móti því, að hún sé kennd í skólunum. En byggð- arlögin eiga sjálf að bera kostnaðinn af þeirri kennslu. Og menn geta það á margan hátt. Menn geta það með því að koma virðingu fyrir móður- málinu inn hjá börnum sín- um. Menn geta það með því að lesa íslenzkar bækur; menn geta það með því að hlynna að öllum menntafyrirtækjum vor á meðal“. f annarri grein, sem birtist um svipað leyti, eru íslenzkir foreldrar mjög hvattir til þess að senda böm sín í hérlenda skóla, því að „það ætti ekkert íslenzkt bam að þurfa að fara á mis við þá fræðslu, sem óhjákvæmileg er til þess að verða sjálfum sér og öðrum til sóma og gagns í þessu landi.“ Áður er stuttlega vikið að skrifum um íslenzka menntastofnun. Merk grein um það efni birtist í Lögbergi 27. maí árið 1890 undir yfirskriftinni „Akadem- íið íslenzka". Þar er námsefni greint niður og tillögugerð þess efnis, að skipta beri „aka- demíinu“ í tvær höfuðdeildir, latnesku deild og gagnfræða- deild. Naumast þarf að geta þess hér, hversu langa sögu skólamálið átti fyrir sér á þessum árum. Varla verður þó bent rækilegar á sameig- inlegt hagsmuna- og velferð- armál hins unga þjóðarbrots en gert er í Lögbergi þann 30. apríl árið 1890, en þar eru spurningar og svör sem hér segir: „Og hvert er annars, þegar vel er að gætt, vort sameiginlegasta mál? Vort sameiginlegasta mál er auð- vitað ekki trúarbrögðin, ekki bindindisfélagsskapurinn, ekki pólitíkin, ekki bókmenntir hérlendar né íslenzkar — það er að segja ekkert eitt af þessu, tekið út af fyrir sig. En í öllu þessu felst meira og minna af því, sem oss er sam- eiginlegast. Vort sameigin- legasta mál er það að afla kröftum vorum þroska og æf- ingar, enda stefnir og að því öll vor félagsskapar-viðleitni. En eins og vér höfum tekið fram, þá getum vér ekki fylli- lega greint krafta vora frá voru íslenzka þjóðerni, svo lengi sem vér sjálfir á annað borð erum í raun og veru ís- lenzkir menn“ (íslendingar í Ameríku, Lögb. 30. apríl 1890). Torfærurnar eru margar, og get ég ekki stillt mig um að taka eftirfarandi kafla úr Lögbergi 9. apríl 1890. Þar er rætt um vandamálin á þessa leið: „Því miður mun aðal- örðugleikinn ótalinn, og hann er sá, hvernig sambandi voru við ísland er varið. Hugsum oSs, að ættjörð vor væri í tölu hinna fremri menningarþjóða heimsins og að þar ættu sér stað um þessar mundir fjör- ugar bókmenntir og frjósamt andans líf. Hve mikill væri þá ekki munurinn á aðstöðu vorri í þessu landi með vor þjóð- ernismál? Þá hefði maður hér fastan andlegan grundvöll á ,að standa og fyrirmynd, sem tiltölulega auðvelt væri að gera mönnum skiljanlega. Andlega lífið hjá þjóð vorri heima fyrir væri þá höfuðstóll, sem fyrirhafnarlaust af vorri hálfu væri lagður upp í hend- urnar á oss, og vort hlutskipti yrði þá að geyma hans vel og ávaxta hann á markaði hins unga og fjöruga þjóðlífs í Ameríku. En nú er því ein- mitt svo kynlega og sorglega varið, að miklu af þeim and- lega höfuðstól, sem vér Vest- ur-íslendingar höfum fengið í arf, hafna vorir vitrustu menn sem allsendis ógjaldgengu skrani. Vér minnumst ekki á þetta í því skyni að ympa á því að slík höfnun sé um skör fram. En vér minnumst á þetta í þessu sambandi af því að vér hyggjum, að í þessu at- riði sé aðal-örðugleikinn fólg- inn.“ Einhverjum myndi finn- ast nú sem hér hefði verið fulldjúpt í árinni tekið og heldur lítið gert úr ýmsum þáttum íslenzkrar menningar- sögu. En á því herrans ári 1890 er skiljanlegt, að leið- andi mönnum væri hallæri á íslandi, sem vildi kyrkja flestar andlegar og jafnvel líkamlegar hræringar, hug- stæðara en liðnar gullaldir sögu og bókmennta. Fyrstu árgangar Lögbergs bera því ljósan vott, að framsýnustu menn hefir aldrei greint á um það hversu framtíð Islendinga í Vesturheimi hljóti að verða bezt borgið. í fyrir- lestri Einars Hjörleifssonar „Hverfum vér í sjóinn“?, sem hann flutti hér í Winnipeg öndverðan vetur 1889 og síðar birtíst í Lögbergi er margt það að finna, sem skynsamir innflytjendur í hvaða landi sem er hljóta að hugleiða, en lokaorðin í lestri Einars voru þessi: „En ef vér höfum þrek og þol til að veita viðnám, þangað til frelsið og öll hin dýrðlegu gæði þessa lands hafa gert oss að nýjum og betri mönnum án þess að svipta oss neinu því, sem ekki mátti úr okkur týnast og oss var eiginlegast — þá fer líka svo, að þar sem Englendingur- inn og íslendingurinn mætast í þjóðlífi þessa lands, þar mætast tveir jafn-dugandi drengir. Það hneigir sig þá ekki annar fyrir hinum, held- ur hneigja þeir sig hvor fyrir öðrum. Það verður þá ekki annar, sem tekur hinn og stingur honum í deigluna og bræðir hann upp, heldur verka þar tveir jafnfrjálsborn- ir menn hvor á annan. Við hverfum þá ekki inn í hér- lent þjóðlíf að neinu leyti fremur en hérlendir menn inn í okkar þjóðlíf — öðru en því, að þeir verða flei'ri. Og fari svo að við hverfum inn í hérlent þjóðlíf — ef menn nú endilega vilja kalla það svo — á þann hátt, að við leggjum til þess það bezta, sem er og verður í okkur sjálfum, og fáum aftur í staðinn það bezta, sem er og verður í hérlendum mönnum, þá höfum við heldur ekki horfið eins og dropi í sjóinn, nema ef eitthvað er skilið við það allt annað en það sem ég skil við það.“ í fyrstu árgöngum Lögbergs var töluverðu rúmi varið í deilur. Deilurnar voru málefni líðandi stundar, eins og deilur jafnan hljóta að vera. Þær kunna að hafa haft nokkurt gildi, og vissulega eru þær forvitnilegar eftirkomendun- um, hvers konar lærdóma sem þeir annars kunna að draga af þeim. Fjarri fer því samt, að téðir árgangar verði bezt auð- kenndir með því að nefna þá deilurit. Lögberg varð í önd- verðu leiðarvísir fyrir íslend- inga í menningarlegum efnum báðum megin hafs. Það lagði undir sig bæði ísland og Ame- ríku. Rödd þess varð slík í upphafi. að hún stjakaði við fólki í tveimur heimsálfum. Þessi rödd hefir nú hljómað í Framhald á bls. 13. DR. RICHARD BECK: Ætfjarðarljóð Einars Póls Jónssonar Blöð þau og tímarit, sem út hafa komið á íslenzku vestan hafs, eiga, meðal annars, bókmenntalegt og bókmenntasögu- legt gildi. Verður það sérstaklega sagt um ýmis tímarit vor, eins og Tímarii Þjóðræknisfélagsins, og um vikublöð vor Heimskringlu og Lögberg, er langlífust hafa orðið vestur- íslenzkra blaða og átt hafa yfir mestu rúmi að ráða; þar hafa einnig haslað sér völl þau íslenzk ljóðskáld og rithöf- undar í óbundnu máli hér í álfu, sem drýgstan og varanleg- astan skerf hafa lagt til íslenzkra bókmennta, að öðrum ógleymdum, sem birt hafa kvæði sín, sögur eða ritgerðir í þessum blöðum vorum. Hvað Lögberg snertir, vék ég nokkuru frekar að þessari hlið málsins í yfirlitsgrein minni um sögu blaðsins í fimmtíu ára minningarblaði þess (22. des. 1937). Þótt verðugt væri, verður sá þáttur í sögu þess eigi ræddur hér, enda brestur mig til þess handbær gögn, og eigi heldur rúm fyrir hendi, ef gera ætti því efni æskileg skil. Hefi ég því tekið þann kostinn, og sýnist fara mjög vel á því á þessum merkistíma- mótum í löngum ferli Lögbergs, að draga athygli lesenda nokkuru ítarlegar en áður hefir verið gert að meginþætti í skáldskap Einars Páls Jónssonar, ættjarðarljóðum hans, en hann skipaði, eins og alkunnugt er, ritstjórnarsess Lögbergs lengur en nokkur annar maður, um meir en 40 ára skeið, lengstum sem aðal-eða eini ritstjórinn. Setti hann því öllum öðrum fremur svip sinn á blaðið, bæði um efni þess og þann anda, sem þar sveif yfir vötnum á hinni löngu og farsælu ritstjórnartíð hans. Vitanlega átti skáldharpa Einars Páls Jónssonar fleiri strengi en ættjarðarstrenginn, eins og ég hefi leitast við að gera nokkur skil í greinum mínum um hann og skáldskap hans í blöðum og tímaritum vestan hafs og austan, svo sem í Eimreiðinni (júlí-september 1942), og aðrir hafa einnig gert. Hitt er engum vafa bundið, að fögur og snjöll ættjarðarljóð hans áttu sér djúpar rætur í innsta eðli hans, svo nánum og sterkum böndum var hann tengdur móðurmoldinni, og sam- bærileg var eldheit og einlæg ást hans á íslandi, íslenzkri tungu, sögu vorri og íslenzkum bókmenntum, í fáum orðum sagt, á öllu því, sem fegurst er, göfugast og lífrænast, í vorum íslenzka menningararfi. Það fer því fjarri að vera nokkur tilviljun, að upphafs- kvæðið í fyrri ljóðabók Einars, öræfaljóðum (Winnipeg, 1915), er Islandsminni, sonarlegur og ómþýður óður til móður- jarðarinnar; má svipað segja um lokakvæðið í bókinni, sem einnig er drengilegt íslandsminni. Mjög í sama anda er einnig næst fyrsta kvæði bókarinnar „Ættjarðarvinurinn“, er lof- syngur þann son lands síns, sem fórnar öllu fyrir hag þess og heill; og þá sætir það engri furðu, að skáldið hellir úr skál fyrirlitningar sinnar yfir föðurlandssvikarann í sam- nefndri vísu. Miklu víðar er, beint og óbeint, slegið á streng ættjarðar- ástarinnar í þessari bók Einars, en þó að margt sé vel um þau kvæði hans og önnur, bæði um málfar, efni og meðferð þess, átti hann, er árin liðu, drjúgum eftir að sækja í sig veðrið í skáldskapnum, um meitlað og hreimmikið mál, þrótt- mikla hugsun og myndagnótt. Þetta duldist engum, sem fylgd- ist með skáldskaparferli Einars, og kom það ljósast á daginn, þegar út kom á vegum Isafoldarprentsmiðju í Reykjavík (1944) nýtt safn kvæða hans, Sólheimar, og jafnframt að miklu leyti heildarsafn þeirra fram að þeim tíma. „Er þetta myndarlegur skerfur, sem Einar Páll hefir lagt hér til ís- lenzkrar ljóðagerðar,“ sagði séra Benjamín Kristjánsson réttilega í prýðilegri grein um Einar í tímaritinu Eddu (Akur- eyri, 15. apríl 1946). í þessu kvæðasafni Einars skipa Islandskvæði hans að verðugu mikið rúm, því að þau eru hvert öðru fegurra og snjallara, og er það þeim mun eftirtektarverðara og fágætara, þar sem hér er um tækifæriskvæði að ræða; en öll eru þessi kvæði óvenjulega vönduð að máli, hugsun hlaðin, og þrungin heitri og innilegri tilfinningu, sem bera því vitni, að þessi ættjarðarljóð eru ort af innri þörf og eiga sér djúpar rætur í hjarta og hugarheimi skáldsins. í þessum kvæðum sínum bregður Einar, að vonum, upp faguryrtum og glöggum myndum af íslandi, landinu sjálfu í svipmikilli náttúrufegurð þess og trgn: Prýðir norðrið máttug móðir, mikilúðug, tindaglæst; hafa þar við hraun og glóðir hjartans stærstu vonir rætzt. Þar á sál vor sínar rætur, sína draumlífs messugjörð, — þar sem himinn heiðrar nætur hvolfist yfir nýrri jörð.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.