Lögberg-Heimskringla - 31.01.1963, Page 14

Lögberg-Heimskringla - 31.01.1963, Page 14
14 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMT UDAGINN 24. JANÚAR 1963 Valdimar J. Lindal dómari: Stjórnarlög Nýja-íslands sögurík menningarskró Hið ritaða orð er varanlegt og túlkar hugsunarhátt og at- hafnir þeirrar þjóðar eða þess þjóðarbrots, sem hefir fært það í letur. Hér getur verið um að ræða bækur, blöð, rit- gjörðir eða frásagnir, djúp- hugsuð ljóð eða tækifæris- kvæði. Hér ber að telja lög og grundvallarreglur félaga eða stofnana. Valdimar J. Lindal Úr mörgu er að velja, ef ræða á ritmennsku Vestur-ís- lendinga. Hér skal þó einkum vikið að einu atriði — atriði, sem á alveg sérstakan hátt felur í sér alda-langa sögu einnar þjóðar. Þetta atriði varðar og líf og starf hinna fyrstu íslenzku innflytjenda, sem settust að á vesturströnd Winnipegvatns og litu þar 1 kringum sig eyðiskóga, fen og óbyggða grasbletti. Hér er átt við stjórnarlög Nýja íslands, sem öðluðust lagagildi, er þau komu á prent í Framfara 14. janúar, 1878. Þar sem þessi lög og reglur eru aðeins eitt atriði í þróun menningarsögu Vestur-íslend- inga, fer vel á að benda á tvö eða þrjú önnur dæmi, sem sýna, hversu óslitin framþró- unin var. Fyrsti íslenzki hópurinn, sem kom til Winnipeg, fluttist til Willow Point á vestur- strönd Winnipegvatns í októ- ber 1875. Snemma á árinu 1876 kom út skrifað blað í byggð- inni, sem ritstjórinn sjálfur, Jón Guðmundsson, samdi og bar út meðal byggðarbúa. Hann kallaði blaðið Nýja Þjóðólf, en Þjóðólfur var merkt vikublað, sem gefið var út á íslandi á þessum árum. Alls komu út fimm eintök af Nýja Þjóðólfi, en næsta ár, 1877, tók Framfari við, en það blað var prentað og því útbýtt með pósti á vanalegan hátt. Hér er um að ræða algjört einsdæmi í landnámssögu Ameríku, en þó var þetta engin tilviljun. Um tveimur áratugum síðar eða einu ári eftir að íslendingabyggð hófst í Tantallon í Saskatchewan (þá North-West Territories) kom Jón Hjaltalín, hæfileika- maður mikill, blaði af stað, sem hann nefndi Frumbýling. Hann las það á samkomum og fór oft með það fótgangandi frá einu húsi til annars. Varla er hægt að benda á betri sýn- ishorn íslenzkrar menningar- viðleitni en þau tvö skrifuðu blöð, sem nú hefir verið minnzt á. Á r i ð 1 9 5 9 sameinuðust j Heimskringla og Lögberg. Þá var öllum orðið ljóst, að hlut- verk vikublaðs á íslenzku var aðallega í því fólgið að varð- veita íslenzka tungu og ís- lenzkar erfðir hér vestra og stuðla að því, að íslenzkir menningarstraumar h é r vestra væru sýnilegir og settu blæ á hina nýju menningu í Vesturheimi. Á ársfundi Þjóðræknisfé- lagsins í febrúar 1962 var samþykkt með næstum því samhljóða atkvæðum, að menningarritgerðir á enskri tungu mætti prenta í Tíma- ritinu. Sjórnarlög Nýja íslands Eins og áður getur, steig fyrsti íslenzki hópurinn á land á vesturströnd Winnipeg- vatns í október árið 1875. Þann 8. sama mánaðar hafði sam- bandsstjórnin í Ottawa veitt íslenzkum innflytjendum viss- an einkarétt. í stjórnartil- skipuninni er landsvæðið ná- kvæmlega tiltekið, útmælt samkvæmt hérlendum venj- um og nefnt „Icelandic Re- serve“. Á íslenzku mætti kalla það „einka-hérað“ eða „einka-þing“. Nauðsynlegt er að gera sér fulla grein fyrir því, hvaða merking felst í orðinu „Re- serve“. Þegar það orð er rétt skilið, þá er einnig unnt að skilja sambandið milli „Ice- landic Reserve“ og Stjórnar- laga Nýja-íslands. Orðið „reserve“ eða „re- servation“ var algengt í Kan- ada á þeim árum, sem hér um ræðir. Það var notað um byggðir, sem verið var að koma á fót og landsvæði, sem sambandsstjórnin hafði tekið frá handa íbúum eða innflytj- endum, sem allir voru af sama stofni. Slíkir hópar fengu ekki einungis eignarrétt, held- ur og heimilisrétt, sem hver einstaklingur hópsins gat not- ið. Hópar þessir fengu stjórn- arvald yfir sjálfum sér, en það vald var langt frá því að vera takmarkað eða tilgreint í lög- gjöfinni. Sambandsstjórnin hafði í huga að afhenda áður greindum hópum bæði fast- eignarrétt og sjálfstjórnar- heimildir. Stjórnarvaldið var takmarkað aðeins að því leyti, að ekkert yrði gert, sem væri í ósamræmi við kanadísk lög og reglur. Það er ekki einungis fróð- legt að athuga í sambandi við þessi hérréttindi, hve mikið frelsi eða löggjafarvald fólkið fékk, heldur einnig hitt, hversu það fór með það vald, sem því hafði verið veitt. 1 því sambandi ber að athuga það, hvaða mál það voru, sem hver þjóðflokkur taldi brýn- ust. Á þann hátt er hægt að skyggnast nokkuð inn í hug- skot einstakra þjóðarbrota. Til þess að sjá sem bezt, hvernig athafnir lýsa hugs- unarhætti og séreinkennum, er nauðsynlegt að gefa gaum að því, hvað aðrir þjóðflokkar hafa gert, og hafa það til hlið- sjónar, þegar á Islendinga er ritið. Hér skal nefna aðeins tvö þjóðarbrot, Mennóníta og Indíána í sléttufylkjunum. Árið 1873 var Mennónítum afhent landsvæði í suður- Manitóba, sem hefir verið kallað „The East Mennonite Reserve“. Nokkru síðar var þeim gefið annað landsvæði, dálítið vestar, sem nefnt var „The Western Mennonite Re- serve“. Mennónítar höfðu sérstaka kristna trú, sem þeir fluttu með sér frá Mið-Evrópu, og hafa þeir að miklu leyti haldið henni við. Þeir voru Anabap- tistar, hinir ströngu mótmæl- endur, sem mótmæltu ekki að- eins stefnuskrá kaþólsku kirkjunnar, heldur og öllum þjóðkirkjum og trúarsam- böndum. Ef undan er skilin nauð- synin á því að eignast lönd og sjá fyrir sér og sínum, þá var það aðeins eitt, sem Mennón- ítar skipuðu í öndvegi, en það var viðhald hinnar sérstöku trúar og viðleitni að sjá svo til, að afkomendurnir glötuðu ekki þessari trú. í bók, sem E. K. Francis ritaði árið 1955 og nefnist „In Search og Utopia“ og sem D. W. Friesen & Sons í Altona gáfu út, farast höfundi orð á þessa leið: „Mennónítar líta svo á, að frelsi einstaklingsins í lýð- ræðiskenningunni megi sín lítils og létu sig það frelsi litlu skipta, en var mjög annt um, að hópurinn sem heild hefði ótakmarkaðan rétt til þess að útheimta stranga trú- arhlýðni af hverjum einstakl- ingi. Þeir vildu vera óháðir öllu æðra valdi til þess að geta því betur varðveitt það, sem heildin áleit nauðsynlegast og var samkvæmt þeirra trúar- og velferðarstefnu“ (lauslega þýtt). Indíána Reserves hafa verið mynduð víða í Kanada og þarf lítið um þau að ræða. Aðal lögin um sérréttindi Indíána er að finna í Indíána-lögunum, sem Kanadalþingið samdi árið 1876. „Enginn, jafnvel ekki Indíáni, sem tilheyrir öðrum flokki (band), má setjast að eða veiða á einka-landsvæði Indíána, jafnvel ekki á braut- arsvæðum innan hins tak- marka svæðis.“ (lauslega þýtt). Það, sem Indíánum var þá og er enn einkar annt um, var að mega veiða og halda áfram hinum sömu lifnaðarháttum, sem hafa viðgengizt meðal þeirra frá alda öðli. í sléttu- fylkjunum hafa Indíánar yf- irleitt sýnt lítinn vilja til sjálfstjórnar. Auðvitað áttu þeir sér enga reynslu að baki og lítið hafði verið ýtt undir með þeim af stjórnarvöldun- um, en framfarir hefðu verið meiri meðal þeirra, hefði hugarfar þeirra sjálfra leyft það. Nú skal vikið að þeirri nýju löggjöf, sem íslenzka hópnum var veitt 8. október árið 1875. Hvað var þeim veitt? mætti spyrja. Ef aðeins er litið á bók- stafinn, þá er ekki erfitt að svara þeirri spurningu, því að Islendingar fengu sömu fast- eignarréttindi og svipað lög- gjafarvald og aðrir hópar, sem sambandsstjórnin veitti einkaréttindi. Eitt verða menn að hafa í huga. Landsvæði það, sem Mennónítar fengu, var í Mani- tóba fylki. Réttur þeirra og ^/r- / 'y> j l v *--'------------- •4+ T /? -//--f ^----r- c * o . jtoesnc^ / f ° j // y ^/1 / </ / i /■» '1 ow/ '//frPw//*/ gjá „• íL^cA^yí'V/^ fe. - ' J/c* 'i/ ’yí/j, i-£ - ; . / / f- V /(Vt-i-uA, t rcH-o-yi JL.... ■>' <£. 'i- V S- PáU- y./: yy X' - 7 . , J/Vy jftL. f rj/f-j. -— f O-t' //t-- j/ /**-*'**+/'' J< Kí~~ l f V- .' • -< • ■ v Vy J<ST! o/--zk JLt-t-c-J) O-U-mk ■ /í- JLl/Jpu, /pj/jjs Fyrsla blaðsíðan aí siðasta uppkastinu af Stjórnarlögum Nýja-ísla

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.