Lögberg-Heimskringla - 01.08.1978, Qupperneq 1

Lögberg-Heimskringla - 01.08.1978, Qupperneq 1
LÖGBERG Sloínað 14. janúar 1888 Borgötoinn Bpx 218 Jönöson lcöland Næsta blað kemur út 15. september Siiijijigsgíiisi ' ■■ • :............... ------T-'-^nír ....... HEIMSKRINGLA Sloítutð 9. aeplomber 1886 92. árgangur WINNIPEG, JULI1978 NUMER 27 HEIÐURSGESTIR ÍSLENDINGADAGSINS FREEMAN MELSTED Freeman Melsted er annar tveggja aðalræðumanna Is- lendingadagsins í ár. Hann mun mæla fyrir minni Kan- ada. Freeman Melsted hefur starfað að skólamálum i hartnær fjóra áratugi, og hann er nú skólastjóri í St. Thomas í Norður Dakota í Bandaríkjunum. Foreldrar hans voru Benedikt og Geir fríður Sigríður Jakobsdóttir og bjuggu þau fyrstu árin í Nýja Islandi, en fluttu árið 1881 til Garðar i Norður Dakota. Benedikt var fædd- ur á íslandi og kom vestur um haf með móður sinni og fjórum bræðrum. Móðir Fre emans var hins vegar fædd hér vestan hafs. Freeman Melsted var for- maður undirbúningsnefndar þeirrar, sem skipuð var til þess að annast undirbúning fyrir nýafstaðin hátíðahöld, sem haldin voru i Mountain í tilefni af því, að hundrað ár eru liðin frá því Islend- ingar settust fyrst að í Norð ur Dakota. ÍOHN CRAIG EATON John Craig Eaton mun mæla fyrir minni Islands á 89. Is- lendingadeginum á Gimli í ár. Hann er sonur hjónanna John David og Signýjar Eat- on, en Signý er dóttir Frið- riks Stefánssonar, sem flutt- ist frá Islandi til Kanada ár- ið 1876. John Craig hefur um ára- bil starfað við hið kunna fyr irtæki fjölskyldunnar, og er ekki langt liðið frá því hann tók við embætti stjómarfor- manns aðalfyrirtækisins, en sem kunnugt er rekur Eat- on mörg dótturfyrirtæki. Fyrsta Eaton’s fyrirtækið var stofnað fyrir aldamót og allar götur síðan hefur starf semi á vegum þess farið vax andi, og er það nú meðal stærstu verslunarfyrirtækja landsins. Eatons fyrirtækin hafa um margra ára skeið stutt fé- lags- og menningarmál Is lendinga í Vesturheimi já FJALLKONA ÍSLENDINGA DAGSINS 1978 Mrs. Lára Helga Tergesen nefir verið kjörin Fjallkona Islendingadagsins að Gimli þetta ár. Hún er dóttir Júlí- usar og Helgu Sólmundson, en Júlíus var sonur Sólmund ar Símonarsonar og Guðrún ar konu hans, frumbýlinga i Mikley 1888 en síðan að Gimli. Maður hennar Sven Johan Tergesen og hún hafa um nokkura áratugi rekið elstu verslun Gimlibæjar. — Tergesensbúðina, er var stofnsett 1899. Þau eiga tvo syni, Sven Johan, lyfsala í Árborg, og Terence Pjetur Júlíus, byggingameistara i Winnipeg, og sjö barnabörn. Feðgarnir eru allir gefnir fyrir íþróttir og sköruðu sér staklega fram í íshokkey (ice hockey); var Sven Jo- han yngri í flokknum “Sud- bury Wolves” er kepti fyrir hönd Canada i Stokkhólmi 1949. Lára hefir líka áhuga fyrir iþróttum, tók þátt í “ice hockey” á yngri árum, og er ævifélagi í Gimli Curl- ing Club. Lára Tergesen var kenn- ari á fyrstu starfsárum sín- um. Hún hefir tekið mjög virkan þátt í félagsmálum Gimlibæjar, þar á meðal í kvenfélögum og sunnudaga- skóla’ Lúterska safnaðarins þar. Um eitt skeið var hún forstöðukona þess skóla. — Hún hefir lengi tilheyrt Gimli-deild “Ladies’ Auxili- ary of the Canadian Legion” og “Gimli Women’s Insti- tute”, gegnt í þeim ýmsum MRS. LARA H. TERGESEN embættum, þar á meðal for- Um nokkur ár héldu setastöðu. Er hún ævifélagi Tergesenhjónin enskt bóka- beggja, og einnig Þjóðrækn- safn frá ‘Extension Service’ isfélagsins. í búð sinni almenningi til af- 1 sex ár var hún í skóla- nota. En svo átti hún upptök nefnd Gimlibæjar og tvö af að því að Gimli Women’s þeim forseti hennar og stuðl Institute” gekkst fyrir stofn aði þá mjög að því að Ge- un eins víðtækasta héraðs- orge Johnson skólinn var . bókasafns í Manitoba, Ever- byggður innan vébanda bæj- green Regional Library, með arins. deildir í Árborg og Riverton HIRÐMEYJAR fjallkonunnar LOUISE RUTH OAKLEY Louise er dóttir Dr. Dave Oakley og konu hans frá Gimli. DENISE ANN MALIS Denise er dóttir Ron Malis og frú frá Winnipeg. en aðalsafn í Gimli. Er hún i stjórnarnefnd safnsins og er skrifari hennar. Aðalstarfsemi sína hefir Framh. á bls. S . Nýft Heimilisfang: — Union Tower 1 Building, 1400- V191 Lombard Ave., Winnipeg, Manitoba

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.