Alþýðublaðið - 13.11.1960, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 13.11.1960, Blaðsíða 15
andlit á botninum og hann harSneitaði að drekka úr öðr- um bolla. Ég fór me'ð hann út til hans .. En ÞETTA var bolli Phil- ips! Og hann hafði verið úti í garðinum daginn voðalega. En hann hafði ekki mölbrotnað í fallinu eins og allir virtust hafa álitið. Og átti ekki brot úr honum að hafa fundizt með eiturleifum á. Jenny var sér hvorki þá né síðar þess meðvitandi, að hún hefði haft neina ákveðna á- ætlun. Hún reis aðeins rólega á fætur og sagði; „Bíðið þér augnablik ég held að einhver sé að koma“. Og áður en gamla konan gat komið einu orði upp hafði hún gengið til dyra og horfið út og tekið lykilinn með sér og læst dyrunum. Hún bar bollann enn í hendinni. Hún hélt með báðum hönd- um Um bollann meðan hún hljóp niður stigann og að sím- anum. Þar Iagði hún hann var- lega frá sér og hringdi: „Lækningastofa Deans lækn is“. stundarfjórðungi seinna bar Jenny bollann inn á litla efna- fánnsóknarstofu sjúkrahúss- ins. Á eftir fylgdi Roger henni inn í biðstofuna. Hún faldi höfuðið í höndum sér og réri sér fram og- aftur við- þolslaus af örvæntingu. Roger Dean gekk fram og aftur um gólfið. Svo nam hann staðar frammi fyrir henni. „Ætlarðu ekkert að segja mér?“ Hann urraði þessi orð að henni. „Eg get það ekki. Treystu mér. Eg get það ekki. Ef til vill er ekkert að segja.“ „Segðu mér þá eitt ■ • • • er einhver veikur?“ „Nei.“ Hann bandaði frá sér hend- inni og hóf aftur að ganga um gólf. Svo opnuðust dyrnar og litla gráhærða konan kom fram með niðurstöðu rann- sóknarinnar. Hún var alvar- leg og föl. „Dean læknir . . ungfrú Thorne,“ sagði hún. „Þessi tebolli innihélt nægilegt magn af blásýru til að drepa heila tylft manna.“ þjónarnir, Adam litli, Felicia, Philip og Roger Dean MINN!‘ Vig Mary Ryan vorum þær einu, sem vissu hvernig hún var og hötuðu hana. Þegar Philip sagði mér, að Enid hefði tjáð sér bréflega, að hún hefði í hyggju að segja Felieiu allt, að hann hefði verið elsk- hugi Mary Ryan, að við hefð- um tekið til okkar hluta pen- inganna, sem Felicia lagði til heimilisins —• og því skyldum við ekki hafa gert það — á- kvað ég mig. Hún skyldi hverfa af sjónarsviðinu áður en hún hefði eyðilagt okkur. Philip hafði sagt mér, að hann yrði í New York alla vikuna og Enid var vön að drekka te í garðinum á hveri- um degi — ein. Þegar þjón- ustufólkið var farið — allir nema Anna, sem var með hálsbólgu — fór ég niður og tók allan sykurinn úr sykur- karinu nema ögn sem ég bland aði með eitri. Eitri, sem ég hafði átt í margar vikur, Ég fékk það hiá Elliot lækni, vit- anlega án hans vilja og vitund ar. Ég ætlaði einnig að taka bekknum vegna þess að garð- yrkjumaðurinn var að njósna urrí.^hana. Hann var nær en hann sagði fyrir réttinum. — Hann heyrði síðustu orð ves- lings Philips míns. En ég var svo nálægt að ég heyrði vein Enidar og sá hana hlaupa- heim að húsinu og garðyrkjumanninn á eftir henni. Og þegar ég kom fram á klettabrúnina... sá ég son minn, Philip, látinn. Bollinn hans var hálffullur en hennar tómur. Ég skildi strax hvað skeð hafði. Hún hafði gefið honum allan sykurinn af því það hafði verið svo lítið eftir. Ég tók bollann hennar og braut hann í smátt, setti hluta af tei Philips í stærsta brotið en tók bollann hans með mér, því hann hafði alltaf elskað þennan bolla og ég hef geymt hann öll þessi ár. Svo tók ég sönnunargagnið og fór með það til lögreglunnar. Ég hataði Enid áður en þetta skeði, hver getur skilið hve mjög ég hataði hana eftir það? Hefði heimska Feliciu ekki hjálpað henni hefði hún „Get ég fengið að tala við Dean læknir!“ „Því miður ungfrú Thorne. Hann er á. sjúkrahúsinu“. „Vitanlega!11 Jenny lagði símann aftur á og valdi nýtt númer. „Dean læknir? Dean lækn- ir?“ „Já, ungfr.ú Thorne, hann er hér? Er þag áríðandi? Ég skal ná í hann augnablik“. Mínútan var jafn löng og heil öld. Svo heyrði hún: ,,Er- uð það þér ungfrú Thorne?“ „Já, Dean læknir! Getið þér komið strax til Castaníu, —• Fljótt! Fljótt! Þér getið ekki kcmið nægilega fijótt! Það er um líf eða dauga að ‘tefla, Dean læknir . . . Roger, ég get ekki sagt meira en komið strax í guðanna bænum“. —- Hún leit yfir öxl sér og fann að hún var vot af svita. „Ég kem!“ Hún.beið ekki eftir honum inni heldur gekk út fyrir og eftir veginum móts við hann. Hún bar enn bollann með tær- um vökvanum milli haríd- anna. Bíll Deans læknis nam stað ar og hún settist inn. „Spurðu rnig einskis. Aktu' mér bara til sjúkraliússins." „Hvað ertu með þarna Jen- ny?“ Hann var fölur og hörku legur, „Eg vil láta frú Graham efnagreina það fyrir mig. Nú þegar. En aktu varlega. . . Eg held að það sé eitthvað hræði legt!“ Roger Dean sagði ekki fleira •en andlit hans var hart og grátt og granítsteinn og um Jenny tók skýrsluna sem hún rétti henni og þau Roger litu á hana. „Frú Graham,“ sagði hann. ,.Eg varð að biðja yður Um að þegja yfir þessu um stund.“ „Já, læknir.“ „Jenny, . . í guðanna bæn- um segðu mér. • . . . “ Jenny sagði honum allt af létta og hann hlustaði þegj- andi. Loks sagði hann: „Við skulum aka eins hratt og við getum ti'l 'Castaniu. Eg veit ekki hvað er að finna í þessu bölvaða herbergi. Bíddu • • • • ég sendi eftir sjúkrabíl.“ Þau óku eftir veginum milli trjánna, . . hátt húsið var ó- breytt. „Ekki brotna núna,“ hvísl- aði Jenny að sjálfri sér. „Ekki hverfa. Bíddu þangað til þú veizt allt, minnstu Énidar Am- brose. Þetta er hennar dagur, nú er hennar tími kominn.“ Þau gengu inn án þess að hringja, yfir forsalinn, upp’ stigann og að dyrum turnher-' bergisins. .Jenny snéri lyklin- um í skránni og opnaði dyrn- ar. Gamla frú Grise hálf lá í stólnum. Hún var eins og kona sem er að kveðja martröðina fyrir indælan draum. Á rúmi Jennyjar lágu tvær þéttskrif- aðar arkir sem sögðu sögu hennar; „Enid Ambrose myrti son minn Philip“, stóð þar með fíngerðri rithönd gömlu kon- unnar. „Hún gaf honum eitr- ið sem ég hafði aétlað henni. Hún átti að deyja, ekki Philip. Hún hafði eyðilagt þetta heim ili, allir féllu' fyrir henni.., kvittun fyrir eitrinu en það var komið að mér og ég neyddist til að fela hana í gömlum kolaofni, kannske er hún þar enn. Ég hafði hatað stúlkuna lengi! Nokkrum dögum áður hafði legið við að ég félli niður af klettabrúninni og það var þá sem ég sá að undirstaða bekkj arins og girðingin fyrir fram- an hann var farin að rotna. Þá fékk ég hugmyndina. — Mary Ryan hataði Enid. Ves- lings flónið hélt að Philip hefði elskað hana og Enid hefði rænt honura frá enni. Þessvegna tók ég skóflu Adams og sög og sagði henni að nú skildum við leika ilH- lega á ungfrú Ambrose. Hún átti að saga sundur girðing- una og grafa undirstöðuna undir bekknUm í sundur þann ig að Enid félli niður. Hún hataðj Enid. Hver sem sæti þar og það var venjulega Enid, hver sem fengi smá áfall og riðaði, hlyti að falla niður af brúninni. Ef hún félli ekki gat ég alltaf ýtt við henni. Ég sá að Enid fór með teið sitt út í garðinn en ég sá ekki að hún var með tvo bolla á bakkan- um ég elti hana út í garðinn en komst ekki alla leið að verið dæmd til dauða. En hún slapp við refsinguna, Svo sendi hún dóttur sína hingað til að vinna gegn okk- ur, því ég gætti Adams sífellt, hann mátti ekki gruna neitt, ákvað ég að taka til minna ráða. Ég vissi ekki hver Jenny Thorne var en mig grunaði það og þegar hún sendi John með bréf til Barent náði ég í bréfið og las það. Hún hafði náð í bréfið með ásökunum um okkur Philip. Hún ætlaði að láta taka máHð upp á uý. Minn tími var kominn! Ég átti nægilegt eitur eftir. Ég lagði á bakka og bar hann upp. — Eftir að hún hefði drukkið eitrið hefði ég afmáð öll um- merki um komu mína . . . Það vita allir að ég fer aldrei upp í turnherbergið! Svo hefði ég ýtt henni út um gluggann -— sjálfsmorð — hvað annað? Ég veit ekki, hvernig á því stóð, að hana fór að gruna mig, en ég veit, að eitthvað er að, því hún tók bollann með sér, lokaði hurðinni og hvarf. Og hún er ekki komin aftur. Ég get ef til vill komið mínu fram ef hún kemur ein til baka, En ef einhver er með henni.. . tek ég eitrið sjálf, það er fljótvirkt! Framhaldssaga eftir KATHRINE N. BURT Bókaverilui! ísafoldar. mmúm Líklega eru fáar konur eins nafntogaðar — eða alræmd ar — og Messalína. Hún var ein hinna fyrstu af keisaradrottningum Róma- veldis. Hún var orðlögð fyrir fegurð. En Messalína hsfur ekki orðið fræg fyr- ir fegurð sína, heldur er hennar fyrst og fremt minnzt fyri'r taumlaust lif erni hennar og botnlausa spillingu á öllum sviðtím. :Svo langt gekk Messalína í losta sínum, að hún sótti fróun í pútnahús heimsbore arinnar og lét loksins gifta sig — drottninguna — friðli sínum. Þetta er fróðleg bók um óvenjulega konu á tímum, sem aldrei koma aftur. Frægar ungiingabækur •Hér í Alþbl. var í_sumar sagt frá danska rithöfiind- inum Flemming B. Muus og Bjössa (Bo) bókumun hans. Tveim þessara bóka hefur Hersteinn Pálsson snarað á íslenzku, Bjössi á Islandi og Bjössi í Ameríku. Báðar þessar bækur eru af hurða spennandi. Þær eru algerlega sjálfstæðar hvor um sig, þótt aðalpersónurn ar séu hinar sömu í þeirn toáðum. Bækurnar eru vandaðar að frágangi og kosta þó ekki nema kr. 45.—. Alþýðtiiláðið 13. ríóv. 1960-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.