Alþýðublaðið - 05.01.1961, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 05.01.1961, Blaðsíða 9
íroSSÍiBfw áttir ;ðis- Hún við vrns auk æra aðir tiars lega ellu „dal rkju IIu í tyrj mni é og 1. — ið á ium. loga sem rists Ilt í VIK num rrar gist- tcos) fóta >n á ynd- 'ndi- tóla- íann 'irða >: 12 Marilyn stríðir Rússum Rússneska dagblaðig Iz- vestia“, málgagn rúss- nesku stjórnarinnar, álas- aði Marilyn Monroe nýlega fyrir að reyna að hagnast á Arthur Miller. Ávítaði blaðið hana harðlega fyrir áð eiga sökina á þvi að hjónaband hennar og Mil- lers fór út um þúfur. — Hefði hún komið fram af algeru miskunnarleysi, en það væri reyndar eitt helzta einkennið á amer- ísku kvenfólki að tyggi- gúmmí frátöldu. Marilyn Monroe er æst í að gifta sig og skilja síðan við menn sína til þess að hafa eitthvað upp úr því. Miller gerði úr henni leik konu, sagði blaðið, og þetta launar hún nú með því að hlaupast frá honum. Sjá má af þessu, að Marilyn Monroe á ekki upp á pallborðið hjá Rúss- um um þessar mundir. anna mest dáðir '60 FJÓRTÁN ár eru liðin síðan Gallupstofnunin am- eríska byrjaði að gera könnun á því, hvaða menn Bandaríkjamenn dáðu. mest Síðan 1952 hefur Eisenhower forseti skipað efsta sætið. — Hefur hann verið einn í hópi tíu efstu frá upphafi. Niðurstöður skoðana- könnunar Gallups um að- dáunarverðustu menn árs- ins 1960 voru nýlega gerð- ar heyrum kunnar. Sjá má af þeim, að kosningarnar í Bandaríkjunum í nóvem- ber hafa haft mikil áhrif á val manna, því að 7 af 10 efstu hafa einhvern tím- ann um ævina látið af sér kveða í stjórnmálalífi Bandaríkjanna. Fæstum kom á óvart að Eisenhower skipaði efsta sætið níunda árið í röð. At- hyglisvert er, að þrír efstu menn eru þeir sömu og ár- ið áður, en það eru auk Eisenhowers þeir Winston Churchill og dr. Albert Schweitzer. i 4. til 10. sæti voru þessir (sæti þeirra 1959 í sviga): 4. Kennedy 5. Nixon (9) 6. Billy Graham (6) 7. Stevenson 8. Truman (4) 9. Henry Cabot Lodge. 10. Mac Arthur hershöfð- ingi (10). arét SOFFIA Lóren grét fögrum tárum í vor þegar einhver ósvíf- inn dóni gerðist svo djarfur að stela öll- um hennar dýru og fallegu gimsteinum í vor síðastliðrð. Ilefur hún verið í heldur döpru skapi síðan, því að ofan á ránið hafa bætzt von- brigði hennar út af því, að ennþá hefur henni ekkr orðið að þeirri ósk sinni að eignast barn. En hann Ponti hennar hefur þó reynzt henni góð- ur eiginmaður. Færði hann henni gUJl og gýmsteina í jólagjöf til þess að bæta henni tjónið, sem hún varð fyrir í vor. Þótt þeir séu metnir á hálfa milljón dollara segir hann, að það sé langt frá því að þerr bæti tjónið fyllilega. SKÓ-ÚTSALA Þessa viku seljum við KVENSKÓ af ýmsum gerðum, mjög ódýrt. Einnig annan skófatnað með miklum afslætti. ÞÚRBAR PÉTURSSONAR SKÓVERZLUN Aðalstræti 18. Hómersþyðingar Sveinbjarnar Egilssonar DoktorSrit Finnboga Guðmundssonar þurfa bóka- menn að eignast. . Doktorsvörnin mun fara fram laugardaginn 7. janú- ar. Rit Finnboga er í sama broti og bundið í sams konar band og hin glæsilega útgáfa dr. Jóns Gísla- sonar og Kristins Ármannssonar rektors á Kviðum Hómers. Upiplag þeirra er á þrotum hjá forlagi. Eru því síðustu forvög að eignast kviðurnar. BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓDS. AugEýslngasíml Aljyý ð n h l a ðsiiíá er Alþýðublaðið — 5. janúar 1961

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.