Alþýðublaðið - 05.01.1961, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 05.01.1961, Blaðsíða 11
Myndarleg giöf Rétt fyrir áramóitin af- hentu þau hjón, Gísli J. Johnsen stórkaupmaður, og frú Anna, forseta Slysa varnafélagS íslands, spjari- sjóðsbók með rúmlega 11 þúsund krónum, er þau höfðu fengrð í skiptum fyrir 1500 sænskar krónur í Landsbankanum. En þeg- ar þau hjón voru í Svíþjóð fyrir skömmu afhenti for- stjóri' Jönkö^ing Motorfa- brik, hr. Gustaf Östergren, þeim þessa peninga sem erga að skiptast á milli Slysavarnafélags íslands og ,.jHraf)iistu“, Dval'iar- hcimilis aldraðra sjó-' •manna, í tilefni af mjög ánægjulegri heimsókn hrns sænska forstjóra í þessar báðar istofnanir, er hann var hér á ferð síðastliðið sumar, en það var einmitt á Sjómannadaginn og vrð það tækifæri afhenti hann iSÍgurvcgurunum í! kapp- róðrinum June Munthel bikarinn, hrnn fagra farand grip, útskorinn af Ríkarði Jónssyni, sem í meira en tvo áratugi hefur verÝð keppt um í kappróðri Sjó- mannadagsins. En það er Jönköping Motorfabrik, sem framleiðir June Mun- thel vélarnar sem bikarrnn er kenndur við, en firmað Gísli J. Johnsen h|efur selt mikið af þeim vélum í íslcnzk fiskrskip, og björg unarbáturinn Gísli J. John sen er með slíka vél. Það er ósk Gustafs Östgren, að sá hluti er Hrafnista fær renni í skemmtiferðasjóð vistmanna, sem Thor Jen- sen stofnaðr á sínum tíma mcð rausnarlegri gjöf. LÆKNINGAMIÐILL VAR HÉR Á FERÐ KVENNADEILD Sálar- rannsóknarfélags íslands fékk hingað danskan kven-miðil í sl. september og var bá meðal annars efnt trl miðilsfundar hér í Reykjavík sem um hundrað konur sóttu. Frá þessu segir í nýútkomnu hefti af Morgni, tímariti Sál- arrannsóknarfélagsins. Frá heimsókninni segir á þessa leið: „Frú Mimi Arnborg dvald- ist hér í hálfan mánuð sl. sept. • •. . Hún hefur starfað sem miðill í heimalandi sínu, Dan- mörku, um 30 ára skeið. Og nú síðustu níu árin einnig sem lækningamiðill. Hélt hún þrjá fyrirlestra og einn trance-fund þar sem 100 konur voru við- staddar. Einnig tók hún á móti rúmlega 20 sjúklingum. ..“ í Morgni segir ennfremur um heimsókn frú Arnhorgar, að koma hennar hafi verið til mik illar ánægju fyrir félagskonur kvennadeildar Sálarrannsókn- arfélagsins. Þá hafi borizt fréttir af fá- einum sjúklingum hennar, sem bentu í þá átt að árangur hafi orðið góður. SJNOBUS U M UNDIRVACNA RYÐHREINSÍIN & MÁLMHÚDUN sl. GELGJUTANQA - S/M/ 35-400 Sunnlendingur kominn út á ný SUNNLENDINGUR heitir blað, sem kjördæmaráð Al- þýðuflokksins á Suðurlandi gefur út. Er blaðið nýlega kom- ið út, fjölbreytt að efni. Á for- síðu blaðsins er grein um fyrir- hugaðar hafnarframkvæmdir í Þorlákshöfn, sagt er frá vænt- anlegum raforkuverum í Hvera gerði eða við Hvítá, símafram- svo og öðrum innanhéraðsmál- kvæmdum í Vestmannaeyjum, um á Suðurlandi. Ábyrgðarmað ur blaðsins er Unnar Stefáns- son. Blaðjð er 16 síður að stærð og er fyrirhugað, að það komi út reglulega í framtíðinni. Hverfigluggar me5 öryggi í ÞÆTTINUM „Um daginn og veginn“ mánudaginn 2. þ m. minntist dr. Gunnlaugur Þórð arson á hverfiglugga. Hann talaði um ágæti þeirra, sVo sem að snúa mætti glugganum við og þá væri hægt að hreinsa hann að utan. Jafnframt minntist hann á það, að ekki hefði hann séð þá með öryggi, þannig að börn gsetu farið sér að voða vig þá. Ég vil leyfa mér að vekja athygli hans og annarra, sem áhuga hafa á þessum glugg_ um, á því, að í résmiðju minni við Miklatorg eru framleiddir hverfigluggar með slíkum ör- yggisútbúnaði, ramminn í glúgganum stoppar þannig að á 130 cm háum glugga verður mest 13 cm rifa að neðan. Ör- yggi þetta er innbyggt í lam- ir gluggans og þarf s'.hrúakan lykil til að taka það af. Enn fremur hafa þeir sérstaka næt- uropnun. Virðingarfyllst. Gissur Símonarson. Guðlaugur Einarsson Málflutningsstofa Aðalstræti 18. Símar 19740 — 16573. f*)aiGINAL-f)oHNER SAMLAGNINGARVÉL handdrifnar og rafknúnar. MARGFÖLDUNARVÉL handdrifnar. GARÐAR GÍSLASON H.F. Reykjavík. ÁLFABRENNA Á SKEIÐVELLINUM verður haldin á þrettándanum 6. janúar og hefst klukkan 20.30. Alfakóngur: Þorsteinn Hannesson óperusöngvaríL Álfadrottning: Unnur Eyfells. Vetur konungur: Sigurðuí* Ólafsson. 4 Yfir 100 álfar koma þar fram ásamt 16 helztjj. riddurum Fáks. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur undir. Forsala verður á föstudag í Hreyfilsbúðinm og úr bíl í Austurstræti. Mætið stundvíslega. — Verið vel búin. Munið eftir íbúðarhappdrætti Fáks. Hestamannafélagið FÁKUR. Nauðungaruppboð fer fram í fiskverkunarstöð Jóns Kr. Gunn- arssonar við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirðil laugardaginn 7. jan. nk. kl. 10 f. h. Selt verður: Línubátar úr járni, netasteinar, baujur, netarullur og færibandsefni úr alu- minium. — Greiðsla við hamarshögg. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. AlþýðublaðiS — 5. janúar 1961 11

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.