Alþýðublaðið - 05.01.1961, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 05.01.1961, Blaðsíða 15
sammála um að ekki sé til neins að leita hjálpar hjá ung írú Fawley og verðum að finna upp á einhverju öðru. Hefurðu nokkuð á móti því að þér verði rænt?“ „Eg hef ekki á móti neinu sem stuðlar að því að ég geti gifst Roland,“ sagði Jenny ör væntingarfull. „En hvernig eigum við að koma því í kring — ? Mamma ætlar bara að hafa mig í Westbridge þang- að til rétt fyrir brúðkaupið, þá heldur hún, að það sé orð- ið of seint fyrir mig að gera nokkuð og að ég neyðist til að gfitast herra Ravenshaw. En ég vil það ekki! Mér er al- veg sama hvað fólk hneyksl- ast, Roland getur numið mig brott af kirkjutröppunum, ef hann vill!“ Caroline hló. „Það er róm- antísk hugmynd Jenny, en varla heppileg. Nei, við verð- um að finna eitthvað annað. Ferðu ein til Westbridge?“ „Eg er búin að hugsa um það,“ skaut Jenny inn í. „En þó að Roland hitti okkur á þú konan með slörið fyrir and litinu, en ég fel andlit mitt einhverra hluta vegna og held áfram til Westingbridge. Það er heppilegt að við erum á- líka háar.“ „E-n ég skil ekki hvað er gott við þetta Caroline, því það verður uppgötvað um leið og þú kemur til Westbridge.11 „Það held ég ekki. Eg fer hágrátandi út í vagninn og held vasaklút fyrir andlitinu, neita að tala við nokkurn mann og loka mig inni í her- bergi mínu. Ungfrú Fawley finnst það aðeins eðhlegt, hún veit hvers vegna þú átt að dveljast þar. Og það verður ekki uppgötvað fyrr en um hádegi, ef ég sef fram úr. Þá er eftir að senda boð til liOn- don og þið Roland fáið sólar- hrings forskot. Það verður á- g né títiansrautt bara hreint og S og beint raut og hvorki þykkt — þess né blær og eðlilegir lið- — ir gátu breytt [þeirri stað- reynd. Caroline Cresswell var cills ^ ekki lagleg. Andlit hennar j. var of grannt, hakan of stiór j og þegar hún brosti, en það j gerði hún oft var munnur hennar skakkur. Hún hafði að vísu þá fallegu húð sem c rauðhært fólk hefur oft og þó £ augu hennar væru stór og 5 undarlega grágræn voru í dökk augníhárin og brúnirnar L, aðeins slík sakir dökks lit- x ar. Sú staðreynd að hún var háfætt og .grönn orsakaði að [ hún virtist enn hærri en hún var. — Smekkur hennar í f fatavali var óvenjulega góð- i ur og hefði hún haft efni á 5 hefði hún verið mjög glæsi- r lega búin. En hún tók sig i ekki vel út í gömlu og upp- i gerðum fötum af frænku sinni. Stöku sinnum tók hún við kápu eða hjól frá frú Wilde en hún benti henni leiðinni er það ekki til neins. Þjónninn segir mömmu allt.“ „Þetta er aðeins tímaspurs mál,“ sagði CaroKne hugs- andi. „Ef við getum hindrað að Lady Linley viti um flótt- ann gengur allt vel.“ Jenny tók til máls, en Caroline þagg aði niður í henni. „Bíddu, — Jenny! Eg held að ég sjái færa leið. Eg hugsa .... “ hún þagn aði og sat niðursokkin í hugs anir sínar. Loks hló 'hún hátt og leit glaðlega á vinkonu sína. „Eg veit það!“ sagði hún sigri hrósandi. „Jenny, getur þú treyst herbergisþernu þinni?“ „Ó, já,“ fullvissaði Jenny hana alvarleg. ,,Hún gerir hvað sem er til að hjálpa okkur Roland. Faðir hennar er landliði herra Wilde og Agnesi þykir vænt um okkur bæði. Auk þess óttast hún að hún verði rekin, ef ég giftist herra Ravenshaw.11 „Hlustaðu þá á mig,“ Ca- roline tók um hönd Jenny og þrýsti fast. „Þú átt að fara inn á veit- ingarhús einhvers staðar milli London og Westbridge. Um svipað leyti kemur Ro- land þangað og hefur með sér konu með slæðu fyrir andlit- inu.“ Jennifer leit áköf á hana, augu hennar Ijómuðu að geðs hræringu. „Þú Caroline?“ — spurði hún og hélt niðri í sér andanum. „Já, ég,“ svaraði Caroline alvarleg. „En þegar hann fer frá veitingahúsinu verður litið tilgangslaust að elta ykkur.“ Jenny tók um báðar hend- ur Caroline og leit ljómandi augum á vinkonu sína.“ „Þetta er stórkostleg hug- mynd,“ sagði hún hrifin. — „Þegar þú segir hver þú ert, Caroline, verður þú að segja öllum hvert og hvers vegna ég strauk. Það er ekki til neins að reyna að leyna mömmu einhverju og hún neyðist hvort eð er til að viðurkenna hjónaband mitt og Rolands. Annars er mannorð mitt eyði- lagt og hvorki herra Raven- shaw né nokkur annar maður vill mig.“ „Þú ert óforbetranleg Jenny,“ sagði Caroline hlæj- andi. „En þetta er rétt. Þér er óhætt að treysta því, að ég skal algjörlega eyðileggja mannorð þitt.“ Jenny þreifaði um eftir vasaklút og sagði niðurbældri röddu: „En hvað ég er lieimsk að fara að gráta núna! — Ó, Caroline, þú ert svo góð við okkur, ég get aldrei fullþakk- að þér það!“ Caroline þrýsti henni að sér og sagði rólega: „'Viljirðu sýna þakklæti þitt Jenny, þá skaltu hvorki vera rauðklædd né í bleiku. Mér þykir að vísu vænt um þig, en jafnvel þín vegna fer ég ekki í þá liti.“ Jenny hló og lofaði að muna það enda var það auðskiljan- legt. Hár Carolinu vakti milda athygli því eftir þeii’ra tíma venjum var það óeðlilega rautt. Hvorki kastaníubrúnt um leið á að það gerði hún aðeins til að geta sýnt sig hjá vinum sínum. „Og meðan við erum að tala um föt“, hélt hún á- fram. „Verðurðu að muna að vera í einhverju sem hylur hárið. Slá með hettu eða ein- hverju álíka“. „Ég á eina þó ég hafi ekki notað hana síðan ég kom til borgarinnar11, svaraði Jenny. „Hún er dökkblá svo hún klæðir þig vel. Hvar finnst þér að þetta ætti að ske?“ „Hvar skiptið þið venjulega um hesta á þessari leið?“ „Alltaf í Barnet. í Rauða Ljóninu“. Caroline hristi höfuðið. „Það er ekki hægt. Þar þekkja þig allir og ef til vill Roland líka. Við megum ekki hætta á neitt“. Hún hik aði um stund og virtist velta einhverju fyrir sér, svo sagði ihún: „Það er smá krá fáeina kílómetra frá Rinehley Common. Ég var þar einu sinni yfir nótt með pabba. Póstvagninn kemur ekki við þar en það er ljómandi við- kunnanlegur staður. Ég held að það heiti: „The Cap and Bells“. „Ég kannast við það“, sagði Jenny áköf. „Ég hef ekið þar margoft framhjá. Ég get lát ið sem mér líði illa þegar þangað kemur og þá nemum við staðar“. „Gott“, sagði Caroline á- nægjulega. „Geturðu kallað á Agnes svo við getum sagt henni frá öUu?“ Agnes var fús til að að- stoða þser en leit áhyggju- full á þær þegar CaroKne hafði sagt henni allt. Car- oline spurði þá hvort hún sæi einhvern vankant á þess ari ráðagerð þeirra en Agnes hristi höfuðið“. „Nei, það er ekki það“, sagði hún dræmt. „En mér þætti gaman að vita hvað skeður þegar ungfrú Fawley kemst að því að við höfum gabbað hana, Ég hugsa að hún reki okkur umsvifalaust á dyr og geri hún það ekki langar mig ekki til að tala við Hennar Náð!“ Hvorug hinna hafði hug- leitt þetta en Caroline hafði svar á reiðum hönd- um: „Það er auðvelt! Ég fer til frú Wilde í Brightstone Pai’k og þú ferð annaðhvort með mér Anges eða þá þú ferð til föður þíns. Brigth- stone er aðeins í fáeinna kíló- metrá fjarlægð frá West- bridge og við getum gengið þangað". Herbergisþernan lét í ljós ánægju sína með þetta, full vissaði þær um eilíft tryggð sína og fór svo, til að Jenny og Caroline gætu rætt málið í smáatriðum. Það hefði ekki verið ráðlegt að Caroline kæmi oftar í heimsókn þar eð það gæti vakið grun hjá Lady Linley, svo Caroline kvaddi vinkonu sína og hrað aði sér heim til frú Fenton til að segja Roland frá á- ætlun þeirra. Roland og systir hans biðu hennar. Þau hlustuðu á ráða gerð þeirra Jennyjar með undrun. Roland samþykkti hana strax en Letitia var tor tryggnari. „Ég viðurkenni að allir þín ir erfiðleikar eru yfirstignir ef Caroline getur leikið Jenny nægilega lengi Ro- land“, sagði hún. „En hvað um Caroline. Þegar þetta fréttist sem það hlýtur að gera verður það slæmt fyrir hana“. „Þú gleymir því að ég um gengst fína fólkið ekki leng ur Letty“, sagði CaroKne. „Það skiptir ekki minnsta máli fyrir mig, hvað „Heim urinn“ segir“. „Ég held að frænka þín sé þér ekki sammála þar“, sagði frú Feriton þurr á mann inn. „Ég verð að aðvara þig Caroline, ég geri ekki ráð fyrir að þú getir verið þar eftir að þetta fréttist". Caroline yppti öxlum“. Þá fer ég bara eitthvað annað. Ég get séð um mig.“ „Áreiðanlega", sagði Ro- land blíðlega. „Og þú veizt jafnvel og ég og móðir mín hefur margfullvissað þig um að heimili hennar stendur þér opið hvenær sem þér þóknast“. Caroline brosti og hristi höfuðið. „Mér þykir mjög vænt um Esther, en ég get ekki tekið við boði hennar. Ég veit að ég geri mitt gagn þar sem ég er núna, frænka mín yrði að ráða kennslu- konu ef hún hefði mig ekki“. „Og herbergisþernu Kka, því ég er viss um að þú vinn- ur á við þrjár,“ skaut Letty inn í. „Ég vildi að þú gerðir það, sem mamma er alltaf að biðja þig um.“ Caroline hristi höfuðið og Letty bætti móðg- ub við: „Allt í lagi, en svar- aðu mér nú Hvernig ætlarðu að útskýra fyrir frænku þinni að þú verður marga daga á brott?“ „Ég veit að ég verð að finna einhvíerja afsökun fyrir Lizzie frænku,“ viðurkenndi Caroline. „Ég var einmitt að hugsa um það á leiðinni og mér þykir leitt að tjá þér að bæði mamma þín og Amalía frænka eru veikar. Pabbi þirua bað þig um að koma. Því mið- ur ert þú ekki í bænum og Roland er utan við sig af ör- væntingu og bað mig uxn að fara í staðinn fyrir þig. Hann kemur Kka með til Bright- stone og það skýrir hvers vegna ég ferðast með honuiri.“ „Éri ég er í bænum,“ sagði Letty utan við sig. „Já, en Lizzie frænka veit það ekki,“ svaraði Caroline. „Hafðu engar áhyggjur af því, Letty! Þú hefur um annað að hugsa, því þú átt að dulbúa mig. Ég held að bezt sé að ég ferðist Sem gömul kona. Já. það geri ég! Ég get verið amma þín, Roland, reyndu að vera hæfilega kurteis við mig!“ Svo ræddu þau um stund dulfoúning Caroline. Caroline og Roland litu á þetta allt sem grín, en Letitia var hálf skelk uð. Þegar Caroline reis á fæt- ur sagði hún taugaóstyrk: „Viltu lofa mér einu, Caro- line? Ef frænka þín reiðist við þig eins og ég óttast, viltu þá koma og búa hjá mömmu?” Caroline hristi höiuðið. „Nei, Letty, ég vil ekki lofa því, en þú þarft ekki að óttast um mig. Ég hef ekki minnzt á það fyrr, því ég hef ekki ðekið endanlega ákvörðun, en það er ekkert líklegra en að ég fari fljótlega frá frænda mín- um á mitt eigið heimili.“ Hún hikaði ögn og bætti svo við: „Herra Horace Firkin hefur Eftír Sylvia Thorpe Alþýðublaðið — 5. jánúar 1961

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.