Alþýðublaðið - 27.01.1961, Blaðsíða 5
’ leib
VERKAMENN hafa
reynt það á liðnum árum,
að leið beinna kauphækk
ana hefur ekki fært þeim
varanlegar kjarabætur,
sa'gði Jón Hjálmarsson,
formannsefni B-listans í
Dagsbrún á kcsningafund
inum í gærkveldi. Þess
vegna ber okkur að reyna
nýjar leiðir, leiðir, er fært
geti verkamönnum raun-
verulegar kjarabætur.
Edvarð Sigurðsson formanns
efni A-listans flutti framsögu-
ræðu fyrir A-listann. Ræddi
ibann einkum kjaramálin og
gagði, að Dagsbrúnarstjórnin
teldi, að nauðsynlegt væri að
fara fram á grunnkaupshækk-
un. Að vísu sagði Eðvarð, að
fiann teldi verðlækkunarleiðina
Hjarta-
klúbburinn
Um nokkurt skeið hef-
ur starfað í Reykjavík
skemmtiklúbbur æsku-
fólks. Hjartaklúbburinn
svonefndi. Var klúbbur-
inn upphaflega stofnaður
af ungu fólkr á aldrinum
16—25 ára, sem vildi efna
til heilbrigðra skemmt-
ana. En síðan óskaði
klúbburinn eftir samstarfr
við Æskulýðsráð Rvíkur
og hefur það orðið að ráði,
að klúbburinn starfi fram
vegis rnnan vébanda
Æskulýðsráðs. Mun klúbb
urinn koma saman á
hverju miðvikudagskvöidi
í Breiðfirðingabúð og
verður alltaf byrjað með
tómstundarðju en síðan
leikir og dans. Formaður
Hjartaklúbbsins er Magn-
ús Jónsson. Forráðamenn
Æskulýðsráðs eru mjög á-
nægðir með frumkvæði
unga fólksins í klúbbnum
og vilja taka það fram, að
þeir mundu fagna því, að
fleiri slíkir klúbbar yrðu
stofnaðir í bænum. Mynd-
in á baksíðu var tekin er
Hjartaklúbburinn kom
saman í Breiðfirðingabúð
s. I. miðvikudagskvöld.
þá beztu en hún hefði reynzt ó-
fær. Fulltrúar Dagsbrúnar
hefðu átt EINN fund með full-
trúum ríkisstjórnarinnar um
það mál og ljóst væri eftir
þann viðræðufund að verðlækk
unaleiðin væri ófær. Því væri
ekki um annað að gera en að
knýja fram grunnkaupshækk-
anir. Eðvarð skýrði einnig frá
því að vegna veikinda Hannes-
ar Stephensen gæti hami ekki
gegnt formennsku í félaginu á-
fram.
ÞURFUM VARANLEGAR
KJARABÆTUR’
Þegar Eðvarð Sigurðsson
hafði lokið máli sínu tók Jón
Hjálmarsson, formannsefni B-
listans til máls. Hann sagði, að
allir gætu verið sammála um
það, að kjör verkamanna nú
væru Iág. Hins vegar kvaðst
Jón ekki sammála stjórn Ðags-
brúnar um það, að kauphækk-
unarleið mundi bæta þar úr.
Reynsla undanfarinna ára hef-
ur kennt okkur, sagði Jón, að
kauphækkanirnar hafa fljót-
lega verið teknar af okkur aft-
ur í hækkuðu vöruverði og ekk
ert gagn er í kauphækkun, sem
þannig verður fljótlega að engu.
Jón sagði, að Eðvarð hefði ekki
fært nein rök fyrir því, að
neitt hefði breytzt, sem gerði
það líklegra, að jákvæður ár-
angur fengist að kauphækkun-
arleiðinni nú fremur en áður.
Það er þvert á mót allt útlit fyr-
ir, að nákvæmlega eins færi nú,
sagði Jón, ef kauphækkunar-
leið væri farin, að sú verð-
skrúfa gerði kauphækkunina að
engu. Við getum ekki valið
slíka leið, sem ekki færi okkur
jákvæðan árangur, hélt Jón á-
fram. Við verður að velja þá
leið, sem einhver skynsamleg
ástæða er til að ætla að færa
launþegum varanlegan árang-
ur.
VERÐLÆKKUN OG
ÁKVÆÐISVINNU
Jón kvaðst vilja benda á
tvær leiðir, sem hann taldi væn
legri til árangurs fyrir verka-
menn en kauphækkunarleið-
ina. í fyrsta lagi sagði Jón, að
sjálfsagt væri fyrir stjórn Dags
brúnar að kanna til hlýtar
hvort ekki væri unnt að fá fram
einhverjar verðlækkanir og í
öðru lagi bæri að koma á á-
kæðisvinnufyrirkomulagi, þar
eð á þann hátt væri unnt að
stórauka tekjur verkamanna,
Jón sagði, að einn viðræðu-
i fundur fulltrúa Dagsbrúnar
með fulltrúum ríkisstjórnar-
innar um verðlækkun hefði
enga úrslitaþýðingu um það
mál. Kvaðst Jón vilja lýsa
furðu sinni yfir því, að stjórn
Dagsbrúnar eða Alþýðusam-
bandsins skyldi ekki hafa ósk-
að eftir fleiri fundum með rík
isstjórninni um verðlækkunar-
leiðina úr því, að stjórn Dags-
brúnar teldi þá leið æskileg-
asta. Varðandi ákvæðisvinnu-
fyrirkomulag sagði Jón að með
því vinnufyrirkomulagi væri
unnt að stórauka tekjur verka
manna enda hefði reynslan
sýnt það hér í ýmsum iðnaðar-
mannagreinum svo og meðai
verkamanna erlendis. Sagði
Jón, að kostir verðlækkunar-
leiðarinnar og ákvæðisvinnu-
fyrirkomulags fram ýfir kaup-
hækkunarleiðina væru þeir, að
árangur, er næðist fram með
þeim leiðum mundi verða var-
anlegar og færa verkamönnum
raunhæfar kjarabætur.
BETRA samband við
VINNUSTAÐ:
Þá sagði: Jón, að núver-
andi stjórn Dagsbrúnar hefði
hvergi nærri rækt það sem
skyldi að hafa gott samband
við vinnustaði verkafólks.
Sagði Jón, að ekki væri nóg
að starfsmenn Dag'sbrúnar
hefðu einstaka sinnum sam-
band við einn og einn verka
manna í vinnuflokki, heldur
þyrfti að ræða við vinnu-
flok'kana í heilu lagi', af og
til t. d. i lok vinnu. Á þann
htt mætti fá fram úr hverju
þjrrfti að bæta oct bétra sara
band við verkamennina
mundi komast á.
VALDANÍÐSLA DAGS-
BRÚNAR. I
í lok iæðu sinnar ræddi Jó;>
um valdndðslu Dagsbrúnar-
stjórnarinnar. Sagði hann, að
stjórn Dagsbrúnar hefði ena
einu sinni neitað B-listaura
um kjörskrána með tilskyld-
um fyrirvara, þ. e. tveim sólar
hringum áður en kosning ætti'
fað hefjast. Einnig hefði stjóra
in neiað að afhenda lista yfir
skulduga félagsmenn enáa
þótt slíkir listar væru í raunt
inni hluti kjörskráinnar. Me?>
þessu atíerli væri stjórn Dags
Framhald á 12. síðu.
tWWMWWWWWVWMWWWWWWVVtWIWWMMMWWUVWiWHWWWWWW
r HAB
AÐEINS
5000
NÚMER
SA FY
Dregið í kvöld. - Umboðib í Alþýðu- |
húsinu opið til kl. 10 - I
i
Þetta er síðasta aðvörun! |
mvwwwtwtwwwwwwwvwww wwwwwwwwwwwwwwwwww
Alþýðublaðið — 27. jan. 1961 g