Alþýðublaðið - 27.01.1961, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 27.01.1961, Blaðsíða 16
HAB er í umfer.ðinni í dag. Það er dregið um fyrsta HAB-bílinn í kvöld (Volks- ■vvagen af nýjustu gerð). Umboðið á blaðinu er op- ið til kl. 10. Sami miði gildir 7. marz. Og það eru aðeins 5,000 númer! BÓKHALD Kaupfélags Skag firðinga liefur verið í rannsókn undanfarið samkvæmt ósk nið- urjöfnunarnefndar á Sauðár- króki. Hafði niðurjöfnunar- nefndin lagt kr. 430.000 kr. út- svar á kaupfélagið en taldi síð- an, að framtal kaupfélagsins liefði ekki verið rétt og hækk- aði útsvarið á kaupfélaginu um 290 þús. kr. Kaupfélag Skagfirðinga kærði hið upphaflega útsvar til niðurjöfnunarnefndar. Fór niðurjöfnunarnefnd þá að at- huga betur framtal kaupfélags ins og fjárreiður og varð árang urinn af þeirri athugun sá, að nefndin taldi fremur ástæða til þess að hækka útsvarið en að lækka það. Var útsvarið hækk- að um 290 þús. eins og fyrr segir. Kaupfélagið kærði þá á- lagninguna til yfirskattanefnd- ar. 'Niðurjöfnunarnefnd fékk end urskoðanda frá Reykjavík til þess að athuga bókhald kaup- félagsins og mun sú athugun standa yfir ennþá. — Stjórn kaupfélagsins mun hafa bent á það til samanburðar, að álagt útsvar á Kaupfélag Þingeyinga hafi í upphafi verið 316.000 kr. en síðan hafi það fengið lækkun niður í 220.000 kr. Árshátíð Kven- félagsins ÁRSHÁTÍÐ Kvenfélags Alþýðuflokksins í Reykj- vík verður haldin n. k. þriðjudag 31. janúar í Alþýðuhúsinu við Hverfis götu. Til skemmtunar verður: Leikþáttur, sem þær Emi'lia Jónasdóttir og Áróra Halldórsdóttir ann ast, kvikmyndasýning og dans. Allt Alþýðuflokks- fólk er velkomið. Vélin í Óðni enn biluð í FYRRADAG kom varðskip ið Óðinn til Akureyrar. — Skömmu eftir komu þess þang- að komst sú frétt á kreik og skipið værr með bilaða vél. Al- jþýðublaðið reyndi að afla sér ^upplýsinga í gær um þetta mál, 'því eins og menn muna varð vart við einhverjar brlanir á vélum skipsins skömmu eftir komu þess hingað til landsins. Blaðið átti tal við Pétur Sig urðsson, forstjóra Landhelgis- gæzlunnar 0g sagði hann að ekki væri um að ræða bilun, hialdur hefðu verið teknir upp tveir til þrír stimplar í vél sldpsins til athugunar. Hefur þessi athugun farið fram nokkuð oft síðan skipið kom frá Álaborg fyrir nokkru, en þar fór fram rannsókn á þeim bilunum, sem talið var að hefðu komið fram í vél þess. 1 í fyrradag mun svo skipið í hafa verið á einskonar reynslu- siglingu, og var þá reyndur gangur skipsins, og einhverjar athuganir farið fram. Síðan voru stimplar skipsins teknir UPP, og mun það hafa verið gert til að athuga hvort þessi reynslusigling hefði haft nokk- ur áhrif á þá. Mun því orðrómurinn um vél jbilun vera úr lausu lofti grip- inn, og koman til Akureyrar, og athugunin á vélum aðeins lið- ur í rannsókn á vélum skipsins. Hjartaklubburinn skemmtix sér í Breiðfirðingabúð — Sjá 5. síðu,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.