Alþýðublaðið - 27.01.1961, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 27.01.1961, Blaðsíða 13
„Hvað er starf hennar - Hvað getur hún?" VEGNA umræðnanna um bjórinn í útvarpinu sunnudag inn 8. þ. m. segir svo í leið- ara Alþýðublaðsins þriðj u- daginn næsta á eftir: „Allir vita, að hún (Góðtemplara- reglan) fær mörg hundruð þúsund krónur árlega frá rík- inu. En hvað er starf hennar? Hvað gerir hún? Hekur hún hæli fyrir drykkjusjúklinga? Heldur hún uppi gagnlegri unglingastarfsemi, eða elur hún eingöngu slíka ofstækis- menn, sem fram komu í út- varpinu?“ Það var næstum furða, að ritstjórn blaðsins skyldi ekki bæta við róginum og lyginni um prósentumar af áfengis- sölunni, sem algengt er að fá fróð illkvitni haldi fram að Góðtemplarareglan hafi í tekjur og lifi jafnvel á. Því tel ég rétt að birta hér fjárhagsáætlun Stórstúkunn- ar fyrir þetta nýbyrjaða ár (1961), en hún er svo til al- veg samhljóða reikningum Stórstúkunnar sl. ár, — enda um sama og engar bréýting- ar að ræða frá ári tíí árs. Tekjur eru þessai': A. Fastur styrkur samkv. fjárl. Alþingis B. Framlag frá undirstúkunum C. ýmsar aðrar tekjur Kr. 240.000,00 Kr. 30_:;000,00 Kr. 6.000,00 Kr. 276.000,00 Þessu er varið þannig: 1. Til þinghalds, útgáfu þingtíðinda og margvíslegs annars kostnaðar í sam- bandi við Stórstúlcuþingið ár hvert og útbreiðslu bindindis í sambandi við það kr. 30.000,00 2. Skrifstoíukostnaður Stórstúkunnar, — húsaleiga, þóknun til skrifstofumanns o. fl. .............................. kr. 37,000,00 3. Kostnaður við aðalútbreiðslustarfsemi Reglunnar, ferðalög erindreka hennar um landið, stofnun nýrra Reglu-deilda, einnig útgáfu bóka og bæklinga í þágu reglustarfsins o. fl. o. fl. og eru þetta naumast árslaun tveggja verkamanna kr. 110:000,00 4. Sérstakan styrk veitir Stórstúkan, þar að auki, bama- og unglingareglu-starf- inu um land allt..................... kr. 25,000,00 5. Auk þessa fá umdæmisstúkurnar á Suður- Vestur- og Norðurlandi sér- stakt framlag til útbreiðslustarfsemi sinnar og eflingar bindindis í sínum umdæmum ................................ kr. 15.000,00 6. Á milli Sjómannaheimilisins á Siglufirði og æskulýðs- og tómstunda starfsins í Reykjavík, Hafnarfirði, ísa- firði og Akureyri, bókasafns Reglunn ar og Söngfélags IOGT er skipt .... kr. 30.000,00 7. Þá styrkir Stórstúkan útgáfu blaðanna i | 1 1 ’ Einingar og Regins með samtals .... kr. 9.000,00 8. Þóknun til hinna ýmsu framkvæmda- nefndarmanna, en þeir eru 13 að tölu, , ^ eða samtals ............................ kr. 6,500,00 9. Framlag Stórstúkunnar til alþjóðaregl unnar (Hástúkunnar), eru ............... kr. 5,000,00 10 ýmislegur annar tilkostnaður........ kr. 8,700,00 Samtals Kr. 276.000,00 Auk alls þessa starfs, sem tengt er framangreindum fjárúthlutunum, fer svo að sjálfsögðu fram mikið og margvíslegt sjálfboðaliða- starf, bæði í sambandi við fundi hinna fjölmörgu reglu- deilda, einkum undirstúkn- anna, en sem hvorki Stórstúk- an, né fjárlög Alþingis hafa neinn kostnað af. Reglan kom á fót fyrsta drykkjumannahælinu á landinu, í Kumbaravogi, og sem síðar var flutt að Kaldaðanesi. Ríkissjóður ásældist rekstur þess, þá dó það. Hæli fyrir vangæf börn kom Reglan á fót og ann- ast að öllu leyti að Skála- túni í Mosfellssveit. -^- Félagar úr Góðtemplara- reglunni komu á fót og veita forstöðu hjálpar- starfi Bláa-Bandsins, sem öllum er kunnugt, og ætti jafnvel ritstjórum Alþýðublaðsins að vera vorkunnarlaust að vita það. Félagar úr Góðtemplara- reglunni beittu sér fyrir stofnun Bindindisfélags ökumanna og eru drif- fjöðrin í starfi þeirrar þj óðheillastof nunar. Fangahjálpin átti upptök sín í Reglunni. -J^ Leikfélag Reykjavíkur átti upptök sín í Reglunni og var stofnað af Templ- urum. Námskeiðum í föndri og ýmis konar tómstundaiðju er haldið uppi í Reykja- vík og kaupstöðum úti á landi, eins og fram kem- ur á reikningunum. ★ Undanfarin sumur hefur Góðtemplarareglan komið á fót og ahnast í bygg- ingum sínuni á Jaðri fyrir myndarstarf barna, •— og Reykjavíkurbæ hefur Regl^n ennfremur lánað á vetrum þessar sömu hyggingar fyrir sérskóla handa nokkrum ungmenn um, sem þurftu á slíkum sérskóla að halda. ★ Þá ætti og flestum að vera kunnugt, að Reglan gefur út (og hefur gert í fjölda ára) Barnablaðið Æskuna sem er eitthvert bezta og útbreiddasta blað lands- ins og ólíkt hollari lestur íslenzkri æsku. heldur en sumt af því, sem látið er á þrykk út ganga af ekki Templurum. -jfc- Upplýsinga og hjálparstöð fyrir þá, sem hafa um sárt að binda af völdum áfengisnautnar, er starf- andi í Reykjavík á vegum Góðtemplarareglunnar. Yfirleitt er Reglan ekki að upplýsa eða gefa um það háværar skýrslur, þó hún hjálpi drykkjumönnum til farsælla og betra lífs. Slík mál eru oftast nær of við- kvæm ti 1 þess. En ótalin eru þau mannslífin, sem hún hefur bjargað og er alltaf að bjarga með félagsstarfi sínu í kyrrþey. Hvað skyldu þau hins veg- ar vera mörg mannslífm, sem áfengis og bjór-dýrkendur, eða bruggarar, hafa bjargað frá tortímingu? Enn er margt og mikið ó- talið af því, sem Góðtempl- arareglan hefur áorkað á þeim 77 árum, sem hún hefuri starfað hér á landi, og verð- ur aldrei metið til fjár. Mundu nú rógberar á borð við þann sem ritaði umgetinn Alþýðublaðsleiðara, ennþá treysta sér til að láta í það skína, að starf Góðtemplara- reglunnar væri uppeldi of- stækismanna oe ekkert ann- að? Aðeins þeir, sem eru sjálf- ir minnimáttar-ofstækis- menn, geta látið svona ill- girni fra sér fara á prenti. Ríkissjóður selur lands- fólkinu áfengi fyrir nálægt 200 milljónir króna árlega, og veldur með þessari sölu gífur legri eyðileggingu, heilsu- tjóni, upplausn, spillingu og óhamingju, — hrópandi ásök- unum á þessa forhertu verzl- un. Eini félagsskapurinn, sem beitir nær öllum kröfum sín- um til þess að forða samborg urunum frá þessum ófærum, — Góðtemplarareglan — fær til þess aðeins 240 þús. kr. sem er álíka upphæð og ár- legur reksturskostnaður við einn, — segi og skrifa EINN — lögreglubíl í Reykjavik. Upphæðin, sem Reglunni yrði fengin til þess að vinna Framh. á 14. síðu W>MMMWWWWWMMMWMimWWWWMWWW»WWWWIW< Alþaöubíoötö VIÐ LYSTUM því yfir í ritstjórnargrein um dag- inn, að Alþýðublaðið sé á móti sterka bjórnum, enda þótt við leyfum um- ræður með honum og móti á síðum blaðsins. Eftir hinar annáluðu út- varpsumræður um bjór- inn létum við í ljós gagn- rýni á ofstækisfullum mál flutningi bjórandstæðinga og spurðum að því tilefni, hvert starf góðtemplara- reglunnar væri nú á dög- um, er frá henni kæmu slíkir málsvarar fram fyr- ir þjóðina. Hér á síðunni birtist f»var Freymóðs Jóhanns- sonar. Honum er jafn mik- ið niðri fyrir og í útvarp- inu, þrátt fyrir viku um- hugsun, og hann sendir ritstjóra okkar tóninn með orðum eins og: rógur, lýgi, fáfróð illkvittni, róg- berar, minnimáttar-of- stækismenn. Slíkur mál- flutningur dæmir sig Isjálf ur. Við endurtókum enga rógsögu um lað áfengis- ^gróði rynni til reglunnar. Við vitum vel, að svo er ekki, en 1,5 milljón frá AVR fer í gæzluvistar- sjóð. Reglan fær sjálf, samkvæmt ríkisreikning 1959, 240.000. En áfengis- varnarráð fær 610.000, áfengisvarnarráðunautur 79.878 og erindreki 62.925. Spurningar okkar voru settar fram af góðvild. Þeir eru margir, sem sjá samtök eins og SÍBS eða DAS vakna og blómgajsí, starfa á raunhæfum nú- tímagrundvelli. Góðtempl arar lifa um of á fomri frægð. Þeir tala um það, sem þeir hafi gert, en. minna um hitt, sem þeir ætli að gera. Þess vegna liafa merkustu nýjungar í baráttunni gegn áfengis- böli (AA og Bláa bandið) risið upp utan jstúkunnar, enda þótt einstaklingar séu í báðum samtökum. Þetta er kjarni málsins. Góðtemplarareglunni er enginn greiði gerður með því að gera hana að heil- agri kú, sem enginn má gagnrýna. Og vörn í þeim tón, sem einkennir grein- ina hér á ísíðunni, eru regí unni verri en engin. rtwwnwwwwwwtwvwwwwwMvwvwwwnw Alþýðublaðið — 27. jan. 1961 |_3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.