Alþýðublaðið - 27.01.1961, Blaðsíða 10
strákar ger-
ið þetta
ekki...
ÞAÐ var mikið skrifað um
verkfallshótun enskra at-
vinnuknattspyrnumannaó
dögunum, en myndin, sem
við birtum hér er úr ensku
blaði. Á hún að sýna skelf-
ingu enskra eiginmanna
út af þessu máli. Textinn
með myndinni var svo-
hljóðandi:
, , . blessaðir strákar
gerið þetta ekki. — Hugs-
ið ykkur hina d’apurlegu
laugardaga, sem váð ætt-
um framundan, uppþvTott-
ur, aka út með börnin,
heimsóknir til tengda-
fólks o. s. frv.
Heimsmet í öllum stökkunum
í FYRSTA sinn í sögunni er
islendingur fremstur allra
Norðurlandabúa á heimsafreka
skrá í íþróttum — það frá-
baera afrek vann Vilhjálmiur
Einarsson, er hann stökk 16,70
m í þrístökki á meistaramóti
íslands í frjálsum íþróttum sl.
|i John Kennedy j!
jl leikvangur
;! Hinn frægi Santryleik- J!
! | vangur í Dublin, þar, sem i;
;! Herb Ellrott setti heims- J!
!! met sitt í miluhlaupi — !!
;! 3:54,5 mín. var nýlega gef j J
J! ið nýtt nafn með leyfi J!
j j Bandaríkjaforseta, hann-' j
; [ heitir nú: „John Ken- j!
!! nedy-leikvangur“. j!
tMMMMMMMMWMMMMMM
sumar. Hann er annar á
skránni, næstur á eftir hinum
óviðjafnanlega Joszef Schmidt,
Póllandi, sem' fyrstur allra
þrístökkvara náði 17 metra
markinu — hann stökk 17,03 á
meistaramóti PóIIands, tveim
dögum áður en Vilhjálmur
vann sitt afrek.
■fc HEIMSMET VORU SETT
í ÖLLUM STÖKK-
GREINUNUM
Það er sömu sögu að segja
um stökkin og aðrar greinar
frjálsíþrótta sl. ár, afrekin
voru stórkostleg. Sennilega
hafa þau þó verið jafnbezt í
stökkunum, t. d. voru sett
heimsmet í þeim öllum og
ekki af lakari endanum: 2,22
m í hástökki, 8,21 í lang-
stökki, 4,80 í stangarstökki, en
þrístökkið er 17,03 m eins og
’ið höfum áður minnzt á. —
,Breidd“ er einnig frábær,
það eru tveir með betra en
2,20 í hástökki, en hvorugur
þeirra sigraði þó í Róm. Það
gerði sá, sem á þriðja bezta
árangurinn, Sjavlakadze. Ann-
ars er Brumel sennilega bezti
Rússinn, aðeins 19 ára gamall.
Hann er ótrúlega fjaðurmagn
aður, hæð hans er aðeins 1,85
m og hann stekkur því 35 sm
hærra en eigin hæð.Margir álíta
að hann verði skeinuhættur
meti Thomas á þessu ári. Ann
ars fá þeir Bnumel og Thomas
að reyna sig á innanhússmót-
um í USA næstu vikur. Joe
Faust er annað mesta há-
stökkvaraefni þeirra Banda-
ríkjamanna, en heyrzt hefur
að hann sé hættur iðkun í-
þrótta.
Don Bragg hefur verið einn
bezti stangarstökkvari Banda-
ríkjanna undanfarin ár, en
hefur venjulega skort þennan
litla herzlumun ti'l að sigra á
stórmótum, þó að hann hafi
viðurnefnið „Tarzan“. Á úr-
tökumóti USA fyrir OL í sum
ar tókst það loksins og það
munaði ekki um það — Bragg
setti glæsilegt heimsmet.
Bandaríkjamenn eiga sand af
frábærum stangarstökkvurum,
cn sá efnilegasti er J. D. Mar-
tin. Fyrrverandi heim'smet-
hafi, Bob Gutowski lézt í bíl-
slysi sl. sumar. Rússinu Kras-
ovskis setti Evrópumet í sum-
ar, stökk 4,655 m. Honum
gekk frekar illa í Róm. Kunn-
ingi okkar Preussger náði 4,65
í sumar, þýzkt met.
LOKSINS FÉLL MET
OWENS!
Síðasta heimsmet eins mesta
iþróttamanns sögunnar, Jesse
Owens, féll í sumar, er Ralph
Boston stökk 8,21 m á úrtöku
móti USA. Boston hefur tekið
skjótum framförum undanfar-
in tvö ár og enginn eða lítill
vafj er á Þv», að hann á eftir
að bæta þennan árangur sinn
töluvert. Annars eru fleiri frá-
bærir langstökkvarar rétt á
eftir. svo sem Roberson,Ovan-
esian, Herman, Steinbach og
fleiri.
Framh. á 14. siðu.
10 þás.
doliarar
New York, 26. jan.
(NTB-AFP).
* HLAUPARINN Mike Ag-
ostini skrifar æsigrein í banda-
ríska íþróttablaðið „Sport Illu-
strated", þar sem hann heldur
því fram, að hluti af áhuga-
mönnum í frjáfeíþróttum í Evr-
ópu græði ca„ 10 þús. dollara á
ári á þátttöku í mótum! Fram-
kvæmdanefndir móta í Evróptt
bjóða íþróttamönnum miklar
greiðslur.
Agostini segir, að hann viti
til bess, að olympíusigurvegari
í millivegalengdum hafi fengið
1 dollar á jard. Skandínavar
bjóða mept fyrir millivegalengd
arhlaupara. Mér voru einu
sinni boðnir 400 dollarar fyrir
að keppa á móti í London, sagði
Agostini.
Khjonen
beztur
Zúrich, 26. jan. NTB—AFP.
Keppni stökkvikunnar í Un-
terwasser hélt áfram og þetta
var þriðja umferð. Finninn
Eino Kirjonen sigraði nú eins
og í fyrstu umferð, hlaut 227,0
stig (69 og 69,5 m.) Annar vrar
Jugoslafinn Marjan Pecar,
226,5 stig (68 og 71 m) og þriðji
Norðmaðurinn Guttorm Hel-
dal, og Finninn Immonen. —
Eftir þessar þrjár umferðir er
Kirjonen með flest stig, 674,4
stig, Immonen, 669,0 st. og
þriðji Svíinn Holger Karlsson
642.1 stig.
Fundur frjáls-
íþróttamanna
★ Á SUNNUDAGINN
gengst stjórn Frjálsíþrótta
sambands ísl'ands fyrir
fundi frjálsíþróttamanna
og kvenna í Framsóknar-
húsinu uppi og hefst hann
kl. 2,30.. Á fundi þessum
verða afhent verðlaun fyr-
. ir Meistaramót tslands s.
1. sumar, þ. e. Meistaramót
karla og kvenna og svo
unglinga, drengja og
sveinameistaramótin.
Sýnd verður kvikmynd
frá landskeppninni 1950
gegn Dönum í Reykjavík
og frá þriggja landakeppn
inni í OÍiIo 1951, er íslend-
ingar sigruðu Dani og
Norðmenn. Einnig mun
Benedikt Jakobsson,
flytja erindi og skýrt frá
þyí helzta, sem framundan
er ,á næsta kcppnistíma-
bi-li. Að lokum verður
kaffidrykkja.
(10 27- Ían- 1961 — Alþýðublaðið
j
mm