Alþýðublaðið - 22.02.1961, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 22.02.1961, Blaðsíða 13
Einn af brautryðjendum íslenzkrar myndlistar, Jón Stefánsson, listmálari, er átt- ræður í dag. Mér er það í barnsminni að þegar rætt var um íslenzka málara á heimiii foreldra minna, var Jóns Stefánssonar ávallt getið sem þess fremsta. Vissan ljóma lagði þá jafnan um nafn hans, þannig, að ó- sjálfrátt sló þeirri hugsun niður hjá mér, að Jón Stefáns son væri eini listmálari okk- ar íslendinga, sem nokkuð kvæði að; síðar átti ég eftir að sannreyna, að sem betur fer eigum við fleiri ágæta málara. Það, sem olli því, að Jón Stefánsson naut þessarar virðingar var ekki hvað sízt það, að engum gat dulizt að málaralistin var honum ; heilög, svo hitt, að hann fór ; fyrstur íslenzkra málara til Parísar og naut þar kennslu eins mesta málara aldarinn- ar, Matisse. Mér er einnig ógleyman- legt, er hann kom stundum í heimsókn til foreldra minna, það var sérstæður viðburður. Ljúfmennsku hans og góð- látlegri kímni var viðbrugð- ið. Annars hef ég ekki kynnzt Jóni Stefánssyni persónu- lega, nema að litlu leyti, en aðeins lært að meta hann sem listmálara og virða listaverk hans og lífsstarf. Mér hefur jafnan fundizt einhver skyldleiki vera milli Jóns Stefánssonar og hins rnikla meistara, Cezanne og er ég heyrði um dálæti Jóns Stefánssonar á þessum snill- ingi, fannst mér ég skilja verk Jóns Stefánssonar mun betur, Enda þótt þau séu að sumu leyti mjög ólík er yfir þeim þessi sama kalda og ró- lega yfirvegun, tær og fersk, suðræn hjá Cezanne, en nor- ræ.n og heiðskír hjá Jóþi. Jón Stefánsson er faíddur á Sauðárkróki 22. febrúar;jl881, brautskráðist úr Latthþ|kól- anum árið l&OO og siglctj ut- an til náms í verkfræði. Eins og Poul Uttenreitter kemst, að orði í formála sínum að .bók Helgafells um Jón Stefánsson: „mun hin hlutlæga og hriit- miðaða nákvæmni verkfræð- innar, hafa hneigt huga Jóns í þá átt.“ — En í Kaupmanna höfn fann Jón fljótlega köll- un sína og hvarf frá verk- fræðinámi og helgaði líf sitt myndlistinni. Jón Stefánsson er ekki þannig skapi farinn, að hann vilji, að því sé hamp- að, sem hann lrefur unnið landi sínu og þjóð, og verður listaferill hans því ekki rak- inn hér né getið þeirra lista- safna, sem eiga verk eftir hann. Samt verður hann að láta sér lynda, að á tyllidegi sem þessum sé honum sýndur nokkur þakklætisvottur fyrir hinn mikla skerf sem hann hefur lagt íslenzkri menn- ingu. Ef lýsa ætti með fáum orð- um list Jóns Stefánssonar, mætti segja, að honum hafi tekizt að bræða upp áhrif hinna frönsku meistara, til þess að steypa þau upp og endurskapa að eigin hætti. í verkum hans kemur jafnan fram hin þunga skaphöfn ís- lendinga, sérstaklega á þetta við um landslagsmyndirnar, en síður í uptstillingum og mannamyndum. — Einkum hafa sumar tilraunir Jóns Stefánssonar til að hefja liti, ljós og form upp í æðra veldi hrifið mig mjög, og í því sam- bandi er mér efst í huga Eiríksjökulsmynd á lista- 'safni ríkisins og Eldgíga- Jón Stefánsson myndanir við Heklu — og þó sérstaklega ein stíliseruð mjjnd af Baulu. íslenzkir myndlistarmenn hafa lært meira af Jóni Stef- ánssyni en nokkrum öðrum málara og listræn sjálfsögun hans, hefur orðið mörgum þeirra leiðarstjama. íslenzka þjóðin stendur í mikilli þakkfætisskuld við Jón Stefánsson. Gunnlaugur Þórðarson. FYRIR nokkru var kona að nafni Margareta Wittkowski skipuð aðstoðarforsætisráð- herra Austur-Þýzkalands. — Kona þessi er fimmtíu ára göm ul, og er fyrsti kvenmaðurinn, sem gegnir svo veigamikiu em- bætti í landinu. Titill frúarinn- ar er dr. rer. ool. ÞESSI merkilega myntl var ekki tekinn fyrrrhafn arlaust að, sögn mannsins sem tók hana. Það tók hann tveggja ára rann- sóknir á lífsháttum uglu- tegundar þessarar sem lappugla nefnist, tvö ferðalög yfir hálfa Sví- þjóð og vikudvöl í nyrsta hluta landsins til að geta náð myndinni:. Lappugl- an er einhver styggasti og sj aldséðasti fugl sem til er á Norðurlöndum. Þyk- ir það einstök heppni þeg ar tekst að ná mynd af þessari uglutegund, ekki sízt þegar liún er jafngóð og þessr. Takið eftir aug- unuin, andlitinu og stöðu vængjanna þegar hún rennir sér beint að mönn- unum oins og ógnvekjandi orustuflugvél. Ljósmynd- arinn slapp ómeiddur en aðstoðarmaður hans varð fyrir hörkulegri árás lappuglunnar. Þessi uglu- tegund sést aldrei hér á landi. BANDARÍKJA EFNAHAGUR Framhald af 4. siðu. og áður, veltan vex ekki að sama skapi og áður, vöruval minnkar og atvinnuleysið slær ótta á menn. Það er því eitt og annað sem bendir fram á erfiðleika. Einstaklingstekjur hafa aldrei verið jafnháar í land- inu og á síðasta ársþriðjungi síðastliðins árs. Þá náðu heild artekjur um 408 milljörðum dollara, en aukningin yfir ár- ið var hins vegar ekki hærri • en 1,2% á síðastliðnum fjór- um árum, og blaðið telur að svo lítil aukning veiki eðli- lega útþenslu efnahagslífsins. Meðallaun í Bandaríkjun- um hafa undanfarna mánuði verið aðeins lægri en í jan- úar 1960. Á þeim hafa stöð- ugt verið smásveiflur, en þá að jafnaði neðan við meðal- laun í janúar 1960, sem reynd ust 92, 29 dollarar. Meðallaun iðnverkamanns ^með konu og tvö börn voru í september 1960 um 81 dollari á viku, þegar hann hafði greitt opin- ber gjöld. En hvaðan kemur sú blekk- ing að Bandaríkjamenn vinni nákvæmlega fyi’ir þeim laun- um sem þeir þurfa, spyr blað- ið. Það telur upp þrjár höfuð- orsakir þess að þessi ranga hugmynd hafi breiðst út. Laun þegar hafa í átta ár stöðugt heyrt að þeir fái óvenjulega há laun, nærri því hættulega há laun og því v-aeri farið út á vafasama braut ef kraf- ist væri enn hærri launa, sem gæti valdið verðbólgu, og það þrátt fyrir það að sá hluti framleiðslukostnaðar vara er veitt er til launagreiðslna hef- ur farið minnkandi, og laun- in því minnkandi þáttur í framleiðsluverði. Þessi stefna í fjár- og efnahagsmálum er að áliti blaðsins toyggð á efna hagsástandi, sem nú tilheyrir fortíðinni og hefur ekki tekið nógu mikið tillit til kringum- stæðna náinnar framtíðar. Stórkostleg framför hefur átt sér stað á síðustu 30 árum, en fyrir um 30 árum bjó þriðj- ungur íbúanna við léleg kjör, var illa klseddur og hafði vart nægilegt að borða. En um 1960 býr aðeins um fimmtungur í- búanna þannig. Á það er bent að um 30 mi-llj. Bandarikja- manna hafa tekjur undir 3000 dollurum á ári, um ein millj. hefur ekki eins dollara lág- markslaun fyrir klst. vinnu og um 1,6 millj. landbúnaðar- verkamanna hafa að meðal- tali aðeins 600 dollara á ári í laun. Nú er önnur stjórn tekin við í Bandaríkjunum sem mun líta á það sem aðalverkefni sitt að ráða bót á þeim vanda- málum sem hér hefur verið lýst, og hefur þegar gert ýms- ar ráðstafanir í þeim efnum, sem munu verða til mikilla bóta. Alþýðublaðið — 22. febr. 1961 |_3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.