Alþýðublaðið - 08.04.1961, Blaðsíða 1
HIERAÐ
VORIÐ
ERAÐ
KOMA
G±££IÍO)
42. árgr. — Laugardagur 8. apríl 1961 — 79. tbl.
Blaðið hefur hlerað:
Að yfirverkfræðingur Út
varpssambands Evrópu
komi innan skamms í heim
sókn til Ríkisútvarpsins til
að leggja á ráðin um undir
búning sjónvarps hér.
í GÆRDAG skeði bað slys
um borð í togaranum Pétri
Halldórssyni, að Brandur Jóns
son, háseti varð fyrir höfuð-
böggi. Hélt togarinn til Þor-
láksliafnar og fór sjúkrabíll
austur um 6 leytið í gærdag til
að sækja manninn. Maðurinn
var fluttur á Landakot og mun
vera við sæmilega líðan eftir
atvikum.
ÝMSAR sögur ganga í bæn
um um páskaferð á vegum
ferðaskrifstofu einnar í
Reykjavík. Er l>að ckki í
fyrsta sinn, sem menn segja
sínar farir ekkj sléttar í við
skiptum við það fyrirtæki, og
mun fyrirgreiðslan sízt fara
batnandi.
Eáskaferð var farin á veg
um skrifstofunnar, eins og
fyrr segir og ýmsir boðsgest
ir í ferðinni. Auk þess fór
fólk samflota við aðalhópinn
ðg hafði greitt bæði fyrir m'at
og gistingu eins og aðrir.
Á leiðartnda var erfitt um
vik varðaniii gistingarplássið
sem lofað hafði verið, en þó
mun hafa tekizt að hola flest
um niður á bæ einum í sveit
inni. Hins vegar fékk fólkið,
sem var á'hangandi ferðaskrif
stofunni, gistingu í tjöldum
úti á túni. Þótti vistin í
þeim hfbýlum: frekar dapur
leg, enda var 10—12 stiga
frost úti um það leyti. Og
svo mikið er víst, að a.m.k.
einn, ef ekki tveir, voru flutt
ir til læknis af völdum illrar
aðhlynningar.
Ýmislegt fleira. mætti tína
til, sem miður fór í þessari
páskaferð, en hér verður þó
staðar numið að sinni. Aðeins
skal geta þess að lokum, sem
telst ekki til tíðinda hjá of
angreindu fyrirtæki, að ölvun
var í góðu meðallagi á stund
um og það meðal bílstjóra og
fararstjóra á kvöldum a. m.
k .
ÞAJÐ er aldeilis kominn
vorhugur í litlu snótlna,
sem prýðir forsíðuna í
dag. Vrð rákumst á hana
upp í Garðastræti í gær,
þegar sólin skein sem glað
ast og bræddi snjóinn og
klakann á gangstéttinni.
Sú lrtla var nú ekki á því,
að láta „stóra fólkið“ vaða
í „drullunni“, því hún átti
hana, að eigin sögn. Þess
vegna gerði hún sér lítið
fyrrr og tók alla „drull-
una“ og ók henni á þrí-
hjólinu sínu heini til
sín.
Sfækkun íra-
fossstöðvar
ákveðin
ÁKVEÐIÐ hefur verið
að bjóða út stækkun á
írafossstöðinni. Á verk-
inu að vera lokið í árslok
1964 og viðbótarvirkjun-
in að duga í 3 ár. Reiknað
er með að viðbótarvirkj-
un þessi kosti 64 millj.
kr.
Jafnframt mun vera í at
hugun að stækka Ljósafoss
stöðina strax á eftir stækkun
írafossstöðvarinnar og er á
ætlað að slík stækkun gæti
fullnægt orkuþörf vtegna aukn
ingar í 1. ár. En éftiý slíka
virkjun væri Sogið algerlega
fullvirkjað og nauðsyntegt að
virkja annars staðar.
JARÐGUFUVIRKJUN í
HiVERAGERÐI.
Verður þá næst ráðizt í
jarðgufavirkjun í Hveragerði.
Hefur þegar verið unnið mik
ið verk í sambandi við und
ifebúning gufustöðvar í Hvera
gerði. Þessa dagana er verið
að atlhuga gufdhoJurnar í
Hveragerði og hafa þær verið
opnaðar margar í einu til'
Iþess að athuga hvort þær
hafi áhrif hver á aðra.
SÍÐAN STÓRVntKJUN.
Næsta á eftir jarðgufuvirkj-
uninni verður sáðan hafizt
handa um stórvirkjun. Ekki
mun enn fulláQeveðið hvar sú
stórvirkjun verður gerð' en
reiknað hefur verið út hvað
það kostar að virkja hin ýmsu
fallvötn. Það kostar t, d.
hvorki meira né minna en
1200 milljónir að virkja Gull
foss!
Skemmdarverk
að Túngötu 2
MIKIL skemmdarverk voru
unnin í liúsinu að Túngötu 2,
sem verið er að rífa, einhvem
tíma frá liádegi á þriðjudag og
trl miðvikudagskvölds.
Maðurinn, sem annast nið-
urrif hússins, hefur tekið flest
all-a gluggana úr og komið þeim
fyrir á ákveðnum stað í hús-
inu til að vama því að rúðu-
glerið brotnaði.
Einhver óviðkomandi hefur
farið inn í húsið á fyrrgreindu
tímabili og brotið allar rúðum-
ar og valdið þannig tjóni, sem
nemur þúsundum króna. Það
eru eindregin tilmæli til fólks
að gefa sig fram við lögregluna,
hafi það orðið vart við grun-
samlegar mannaferðir við hús-
ið á fyrrgreindum tíma.