Alþýðublaðið - 30.04.1961, Side 7
SÍÐASTLIÐIÐ laugardags-
kvöld, 22. þ m., barst sú fregn,
að Gunnar Cortes væri dáinn.
Sú fregn kom svo óvænt og var
Evo ótrúleg, því aðeins skömmu
áður var hann hress og í fullu
fíöri. Hann var aðeins 49 ára að
aldri.
Gunnar var fæddur í Reykja-
vík 21 október 1911, sonur
þeirra hjónanna Emanuel Cortes
yfirprentara í Gutenberg og
Bjargar Jóhannesdóttur Zoega,
en þau eru nú bæði látin. Hann
lauk stúdentsprófi við
Menntaskólann í Rej’kjavík vor
ið 1931 og kandidatsprófi í
læknisfræði við Læknadeild
Háskóla íslands i janúar 1937
eftr fimm og hálfs árs nám. Hon-
um veittist auðvelt að velja sér
Etarfssvið innan læknisfræðinn-
Sr. Þegar í miðju háskólanámi,
var hann búinn að ákveða að
verða skurðlæknir, og fijótlega
að prófi loknu fór hann til fram
haldsnams í Danmörku, þar sem
hann starfaði við ýmis sjúkra-
hús í þrjú ár.
Haustið 1940 kom hann heim
og hóf starf hér í Reykjavík.
Fyrstu tvö árin sem heimilis-
læknir, en 1. janúar 1942 réðist
hann aðstoðarlæknir að Hand-
læknisdeild Landsspítalans og
starfaði þar samfellt í 5 ár, þar
áf síðustu þrjú árin sem fyrsti
aðstoðarlæknir.
Sérfræðingsviðurkenningu í
handlæknisfræði hlaut hann ár-
ið 1947. Sama ár dvaldi Gunnar
Við framhaldsnám í Englandi og
aftur um tíma árið 1958, an
Starfaði annars sem skurðlæknir
Við sjúkrahús Hvítabandsins hér
i bænum og var á heimleið frá
jþví að líta til sjúklinga þar, er
dauða hans bar að.
Gunnar átti sæti ( stjórn Vís-
inldasjóðs frá stofnun sjóðsins,
síðustu tvö árin sem varaformað
ur. Þá átti hann einnig sæti í
stjórn Skurðlæknafélags íslanðs
frá stofnun þess.
Með Gunnari er horfinn frá
okkur einn ágætasti skurðlækn-
ir þessa lands. Hans er saknað
ekki aðeins af ættingjum og vin-
um heldur einnig af öllum þeim
Gunnar J. Cortes, læknir
Minningarorð
fjölda fólks, sem notið hafa hæfi
leika hans og hjálpar.
Ég átti því láni að fagna að
kynnast Gunnari þegár á fyrsta
ári mínu í Læknadeildinni fyr-
ir 29 árum. Sá kunningsskapur
þróaðist brátt í vináttu, sem hef-
ur haldizt æ síðan. Leiðir okkar
hafa löngum legið saman og svo
árum skiptir höfum við unnið
hlið við hlið. Við, vinir hans,
erum þakklátir fyrir þann tíma,
sem við fengum að vera samvist-
um við hann og getum varla átt-
að okkur á því, að sá tími sé á
enda.
Gunnar var allóvenjulegur og
athyglisverður persónuleiki —
Hann var glæsimenni en mjög
hæglátur og frekar hlédrægur.
Hann var hinsvegar einbeiítur
og traustur, myndaði sér skoðan-
ir og tók ákvarðanir eftir vand-
lega íhugun en gerði lítið af því
að flíka skoðunum sínum.
Engan hef ég þekkt jafn ná-
kvæman og reglusaman í starfi
og allri umgengni sem Gunnar.
Slík nákvæmni er ómetanlegur
styrkur fyrir skurðlækni og vís-
indamenn en getur þó orðið
nokkur fjötur um fót.
Fyrir meira en 10 árum hóf
Gunnar mjög athyglisverðar
rannsóknir á sérstökum nýrna-
sjúkdómi og starfaði að þeim um
nokkurra ára skeið eftir því sem
önn dagsins leyfði. Hann var bú-
inn að safna efnivið og mun að
verulegu leyti hafa verið búinn
að vinna úr honum fyrir nokkru,
en hann var ekki búinn að-ljúka
verkinu að fullu, þannig að
hann væri ánægður með það til
birtingar. Ekki er mér grunlaust
um, að hans mikla nákvæmni
hafi tafið óeðlilega fyrir þessu
verki en ekki er heldur ólíklegt,
að sá sjúkdómur, sem leiddi
hann til bana, hafi átt drjúgan
þátt þar í. Ástæða er til þess að
harma, að honum skyldi ekki
auðnast að ljúka þessum rann-
sóknum, sem hefðu stuðlað veru
lega að aukinni þekkingu á áð-
urnefndum sjúkdómi hérlendis.
Vorið 1937, skömmu eftir
kandidatspróf, giftist Gunnar
Kristrúnu Þorsteinsdóttur, hafn-
sögumanns í Reykjavík. Strax
eftir giftinguna fluttust þau til
Danmerkur og stofnuðu þar sitt
fyrsta heimili_ Á Danmerkurár-
unum var heimili þeirra einnig
mitt, eða svo fannst mér vera.
Jafnan síðan hef ég verið tíður
gestur á heimili þeirra hjóna og
óvíða unað mér betur, Hin sam-
henta fjölskylda og hið hlýlega
og fallega heimili hennar, þar
sem allt ber vott um smekkvísi
og vandvirkni húsráðenda
beggja, hefur mér ætíð virzt
ímýnd hinnar traustu undirstöðu
þjóðfélagsins.
Þau hjón eignuðust þrjár dæt-
ur og er Erla þeirra elzt, gift
Árna Kristinssyni stud. med.,
Kristín Björg stundar nú nám
í 4. bekk Menntaskólans, en sú
yngsta, Guðrún, er aðeins 8 ára.
Fyrir vini Gunnars og þá, sem
nutu starfskrafta hans, er erfitt
að sætta sig við hið ótímabæra
fráfall hans, en erfiðast er hlut-
skipti dætra hans og eiginkon-
unnar, sem var svo nátengd hon-
um allt frá unglingsárunum og
sem hefði átt að fá að njóta hans
um mörg ókomin ár.
Við vottum þeim mæðgunum
og öðrum aðstandendum hans
innilega samúð, en finnum um
leið sárt til þess hve orð mefena
hér lítils.
Snorri Hallgrímsson.
ÖRSTUTT er síðan, að ég
var á heimili Gunnars J. Cort-
es og konu hans, Kristrúnar, í
hópi vina og kunningja, eins og
svo oft áður. Gunnar lék á alls
oddi. Engan gat þá grunað það,
sem nú er orðið.
En ekki gat hann helgað þessa
hvíldarstund sjálfum sér ein-
göngu. Harin var skyndilega
kvaddur til skyldustarfa. Hann
hvarf hljóðlega á braut, glaður
og Ijúfur, eins og hann átti eðll
til, og kom síðan aftur, enn glað-
ari og Ijúfari, að gjörðu góðu
verki.
Þegar fregnin um skyndilegt
andlát Gunnars J. Cortes barst
út, mun flestum fyrst haía orð-
ið hugsað til þess, hvílikur
mannskaði hér hafi orðið, enda
var Gunnar löngu orðinn þjóö-
kunnur læknir. ídl'endingar
hefðu nú orðið á bak nð sjá ein-
um færasta sérfræðingi íslenzkr-
ar læknastéttar. Hitt vissu að
sjálfsögðu færri, að Gunnar var
óvenju ííngerður persónuleiki,
maður, sem hafði sanna i áhuga
á hvers konar listum og næman
og fágaðan smekk. Ást hans á
tónlist var honum í blóð borin,
og hann ahfði mikið yndi af gócfc.
um bókmenntum. Þekking hana
í þessum efnum var svo traust,
að ég efast ekki um, að sérfróðir
menn hafa oft undrazt það.Gunft
ar hefði án efa getað orðið ]ista-
maður, og hann hefði þá efiaust
orðið góður listamaður. Ei til
vill er það ein skýringanna á
því, hversu góður læknir hann
var En starf sitt helgaði hann
hinum sjúku, listunum tómstuncl
irnar. Hins vegar var Gunnar
einn þeirra, sem skildi, •ö þeirn
mun betur sem menn nota tóm-
stunídir sinar, þeim mun meirt
verður orkan í starfinu.
Þeir eru margir, sem snkna
Gunnars J. Cortes, — lækr.isin?,
imannsms.
I
Gylfi Þ. Gíslason.
MINNINGARORÐ þessi átt»'
að birtast * biaðinu í gær C7»
vegna m'ístaka fórst það fýrir
og eru hlutaðeigendur beðnl*
afsökunar á því.
V.K. F. Framsókn
sendir félagskonum ámaðaróskir
í tilefni í. maí.
Stjórnm.
Úrval
a
fólk
af alls konar
VINNUFÖTUM
a
öllum
aldri.
TOLEBO
BÚÐIRNAR.
Alþýðublaðið' — 3D. apríl 1961 y