Alþýðublaðið - 05.07.1961, Side 5

Alþýðublaðið - 05.07.1961, Side 5
 1 ÞAÐ HEFUR verið sagt um hinn mikla fjölda sérfræðinga, sem Kennedy Bandaríkjafor seti hefur safnað kringum sig, að þeir séu gáfaðir, fullir af góðum og göfugum áformum, en að þá skorti reynsiu og lagni í stjórnmálum. En einn þeirra er þó búinn öllum þess um höfuðkostum stjórnmála mannsins, — Dean Acheson, fyrrverandi utanríkisráðherra. Acheson var aðstoðarutan rikisráðherra Trumans á árun um 1945—’47 og utanríkisráð herra 1949—'53. Hann var með öðrum orðum við völd á at burðaríkum tímum og áhrif hans voru víðtæk og mikil. Hann var mjóg gagnrýndur af Republikum. Því var haídið fram, að hann væri of enskur í útliti, framkomu og skoðun um, — og er nokkuð t.il í því öllu saman. Þessi andstaða gegn honum er enn talsverð, og svo mikil, að Kennedy treysti sér ekki til þess að skipa hann í neitt af æðstu ráðherraembættunum e?’ bar.n skipaði ráðherra sína í vetur. En Acheson, sem nú vinnur að einskonar eminence gris, grá hærður virðingamaður, í ame rískri pólitík, ráðgjafi, sern forsetinn metur mikils og hiust ar gjarnan á og jafnframt sér fræðingur um allt er að Atlants hafsban'dalaginu lýtur. Og það er Acherson, sem nú vinnur að því, að móta stefnu bandaiags ins með tiiliti til yfirvofandi stórveldadeilu í Berlín. Það er augljóst að slíkur maður hefur frá mörgu að segja. Stjórnartíð Trumans var eitthvert fjörugasta tímabil síð ari tíma og Bandaríkin voru um nokkurra ára skeið mesta stórveldi heims, höfðu tögiin og hagldirnar í flestum meirí háttar málum og beittu áhrif um sínumtil hins ítrasta. Dean Acheson átti ekki hvað sízt þátt í að vinna að samstarfi vestrænna þjóða efla varnir þeirra gegn hinni yfirvofandi kommúnistahættu, og halda þó fullkomnu lýðræðisskipulagi á ölium málum. Einn mesti harm leikur síðari tíma er ósigur lýð ræðisins eftir heimsstyrjöldina síðari, er kommúnistar héldu fram sínu í skjóli einræðis og ofbeldis, en vestrænir stjórn málamenn, voldugir og mikils ráðandi gátu hvorki né vildu varpa aðferðum lýðræðisins fyrir borð til þess að verjast yfirganginum úr austri. Þeirra aðferð var aðferð lýðræðisins, hinna frjálsu samtaka. Dean Acheson kom við ílest mál þeirra tíma og hann hefur frá mörgu að segja í nýútkominni bók sinni, Sketches from Life og Men I have known. Þarna mátti búast við skarplegum at hugasemdum um menn og mál efni, rýni í kjarna stjórnmála tímabilsins og viturlegra leið beiningar. En Acheson hefur kosið, að skrifa létt og lipur lega um menn og málefni. — Hann dregur upp svipmyndir af mörgum, sem voru á allra vörum fyrir aðeins tíu árum, Ferða- happdrætti Félags yngra jafnaðarmanna í Reykjavík til ágóða fyrir félags- heimigi þess að Stórholti 1. 1. Ferð fyrir einn mann á 1. farrými m.s. Gullfoss frá Reykjavík til Kaupmannahafnar o!g heim aftur. Verðmæti kr. 6180,00. 2. Hringferð um ísland fyrir tvo menn á 1. farrými m.s. Esju á kom andi sumri. Verðmæti kr. 3822,00. 3. Ferð fyrir einn mann með flugvél frá Reykjavík til London og til Reykjarvíkur aftur. Verðmæti kr. 6241,00. 4. Fimm daga ferð á hestum um ör'æfi íslands á þessu sumri fyrir einn mann. Verðmæti kr. 2769,78. Dregið verður 15. júlí 1961, Verð hvers miða er 10 krónur. Þeir, sem hafa fengið senda miða héim, eru vinsamlegast beðnir að koma við á flokksskrifstofunni/ í Alþýðuhúsinu sem fyrst og greiða þá. en eru nú hálfgleymdir, — sögupersónur. — Aeheson er mjög hrifinn af mönnum eins og Attlee, fyrrum forsætisráð herra Breta, Bevin, utanríkis ráðherra hans, Robert Schum an, utanríkisráðherra Frakka árum saman, Marshall hers höfðingja, höfundar Marshall aðstoðarinnar og utanríkisráð herra á undan Acheson, Arth ur Vandenberg, Adenauer og fleirum. Hann segir líka frá Visinsky, hinum skörulega full trúa Sovétstjórnarinnar á þing um Sameinuðu þjóðanna árum saman, og virðist hann ekki bera minnstu virðingu fyrir honum. Til dæmis segir hann smásögu um hann og Charles Bohlen, fyrrum sendiherra Bandaríkjanna í Moskvu, nú verandi sérfræðingi Kennedys í sovétmálum. Þeir hittust í veizlu i Moskvu og Visinsky kvaðst furða sig á því, að þeir hefðu aldrei sézt fyrr. — En ég hef séð yður, svar aði Bohlen Ég var við réttar höldin er þér ákærðuð Bukhar in. Bukharin var náinn vinur Visinskys, en engu að síður varð Visinsky þægt verkfæri Stalins, er ryðja þurfti Bukhar in úr vegi. Þegar Visinsky heyrði athugasemd Bohlens, náfölnaði hann og fór þegar í stað úr veizlunni. Acheson lýsir ChurchiU á mjög viðfelldinn hátt. Enn einu sinni fær maður skemmti lega mynd af þessum brezka stjórnmálamanni kannski hin um mesta á þessari öld. Eitt sinn er Kóreustríðið stóð sem hæst, ætlaði Churchill að halda mikla ræðu í neðri mál stofunni. Acheson var um þesa ar mundir staddur í London og dáginn áður en Churchill átti að halda ræðuna, sýndj hana honum handritið að hcnni. — Acheson sá strax að gamll maðurinn hafði í hyggju, óaff vitandi, að upplýsa mörg hem aðarleyndarmái. Nú voru góf> ráð dýr, gat hann verið þekkt ur fyrir, að benda forsætisrá$ herranum á þetta. Hann áíti ekki um neitt að velja. Hann strikaði út þau atriði, sem ekki mátti minnast á. Þegar Chur, chill sá hvað Acheson hafðii srikað út sagði hann aðeins: —• Þér hafið slegið sverðið úr höndum mér. Acheson skýrði málið fyrir honum, og sagði, a&■ hægt mundi að bjarga öllu viS og gerði nokkrar smábreyting ar. Churchill tók þessu vel, — og hélt ræðu, sem var yfirfar in og breytt af bandaríska utan- ríkisráðherranum. Einn kafli bókarinnar fjailar um hinn fræga Lissnbonfund Atlantshafsbandalagsins og lýa ir Acheson einræðisherra Por túgals og virðist hafa mestit mætur á honum Hann viður kennir að hann sé einvaldur, en það lýsir Acheson vei, að hann hikar ekki víð að hrósa Salazar meðan Angóla er St allra vörum. Kaflinn um Rússa er frófS legasti kaf]i bókarinnar. Acho son er gramur út í þá menn, sem halda þvi fram, að meðait haldið sé uppi samningavioræfl um við Sovétstjórnina um dcilu. málin, sé engin hætta á styr} öld. Þetta er að hans skoðun. mesta fjarstæða. Rússarnir grípa einmitt til ofbeldisaS Frh. á H. síðu. AÍþýðublaðið — 5. juii 1961'5^

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.