Alþýðublaðið - 14.09.1961, Síða 2

Alþýðublaðið - 14.09.1961, Síða 2
IStotJórar: Gísll J. Astþórsson (ób.) og Benedikt Gröndal. — ruUtrúi rlt- í? : ÖJórnar: IndriBi G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson. — ’• #Smar: 14 900 — 14 90* — 14 90Í Aug’ýsingasími 14 906. — ABsetur: AlþýBu- ;j fciBlð. — Prentsmíðja AlþýSubiaSslns Hverfisgötu 8—10. — Áskriftargjald 4r. < i,00 á mánuði. t lausasölu kr. 3,00 eint. Otgefandi AlþýBuflokkurinn. — Fra væmdastjóri Sverrir Kjartansson. Ábyrgðarleysið afhjúpað ÁBYRGÐARLAUS stjórnarandstaða, sem hugsar um það eitt að þóknast kjósendum, segir jafnan 'það, sem hún heldur að kjósendur vilji helzt !heyra. Ábyrg ríkisstjórn verður hins vegar að segja þjóðinni sannleikann og byggja aðgerðir sínar á raunverulegu ástandi mála. Undanfarna mánuði hafa kommúnistar og fram sóknarmenn keppzt um að telja þjóðinni trú um að vegna mikils síldarafla og hækkandi verðs á , afurðum landsmanna erlendis ,geti þjóðarbúið hæg Xega staðið undir þeim kauphækkunum, sem orðið : !iafa, án nokkurra aðgerða. Þess vegna sé gengis .ækkunin óþörf og eingöngu hefndarráðstöfun rík ísstjórnarinnar. I gær séndi stjórnin frá sér ýtarlega skýrslu um ; efnahagsmálin, þar sem þessi fráleiti áróður atjórnarandstöðunnar er gersamlega hrakinn. Eng .nn ábyrgur maður getur kynnt sér efni þessarar . skýrslu og eftir sem áður haldið fram, að hægt tiafi verið að komast hjá síðari gengislækkuninni. Viðreisnin var margþætt áætlun, sem hefur náð tilgangi sínum á mörgum sviðum, en ekki öllum. Hún leiddi fljótlega til stórbreytinga í peninga- málum, sem hafa aukið festu í efnahagslífinu. • ! Hún gerbreytti viðskiptamálum svo, að um þau er ; : varía deilt lengur. Hún jók sparifé þjóðarinnar og í.iélt útlánum innan ramma þeirra. Hún forðaði . iipjóðinni frá greiðsluþroti gagnvart öðrum löndum og endurreisti lánstraust íslendinga. Þannig hefur !iún skapað grundvöll undir næstu skrefin í upp » . byggingu. Það var von stjórnarinnar að atvinnurekendur og verkalýðsfélög semdu ekki um meiri kaup- ; liækkanir en atvinnuvegirnir gætu borið án nýrr ar dýrtíðar. Þessi von hefur því miður brugðizt, og miklar kauphækkanir eru orðnar að veruleika. Hins vegar hefur síldaraflinn ekki vegið upp afla j.eysi toga-ranna, hækkun afurðaverðs erlendis .[jy ekki náð því, sem varan hafði áður lækkað. Það ■^liefur því ekki komið til framleiðsluaukningar, íaem gæti staðið undir miklum kauphækkunum íitrax. Þess vegna var óhjákvæmilegt að taka af- Xeiðingum hækkananna og þar var um tvær leiðir ;pð velja. Annars vegar var gamla leiðin, að taka upp hallarekstur og fórna lánstrausti okkar út á við, taka upp viðskiptahöft með vöruskorti og i xninnkandi framleiðslu, og loks uppbætur með •j.iýjum sköttum. Þessa leið þekkja íslendingar of . vel til að óska eftir henni á ný. Hin leiðin var að lækka gengið. Það var gert. Af þessu er augljóst, að gengislækkunin var óhjákvæmileg. Með því að gera hana strax tókst stjórninni að varðveita þann grundvöll, sem lagð ur hafði verið að framtíðar uppbyggingu og þar með batnandi lífskjörum fólksins. s s s s s s s s s s s s s s s s s HÚSEIGENDUR - HÚSBYGGJENDUR Höfum allar tegundir TIL ÞETTINGAK STEINÞAKA TIL VERNDUNAR BÁRUJÁRNSÞAKA TIL VERNDUNAR ÞAKPAPPA TIL GÓLFLAGNA í VERKSMIÐJUM Upplýsingar um framkvæmdir veittar á skrifstofu vorri, SHELL Olíufélagið Skeljungur Sími 38100 r i V V i V V s s s s s S s s s $ s s s s s s s1 s s1 fHANNES Á HORNINU ★ Við kaupum blautar og óhreinar kartöflur. ★ Grænmetisverzlunin á að bera ábyrgðina. ★ Til neytendasamtak- anna. ★ Akraborg á Akranesi. HÚSMÓÐIR skrifar mér á þessa leiS: „Vör.urnar hækka í verði. Neytendurnir verða að borga. I>að er ein lafleiðingin af uppsprengngu kaupsins, sem Framsókn og kommúnstar stóðu að. Þannig kemur ósanngirnin og taumlaus keppnin fólki í koli. Neytendurnir verða að taka þessu og fá ekki að gert. En það er annað, sem þeir geta ekki tekið við þegjandi og hljóða- laust. Það er, að það sé svínað á þeim. GRÆNMETISVERZLUNIN ein selur kartöflur til kaup- manna og kaupmenn síðari til neytenda. Kílóið af kartöflunum kostar nú kr. 4,50. Maður skyidi ætla, að skammturinn, sem mað ur fær veginn sé ósvikinn. en svo er ekki. Ég keypti hjá kaup manni mínum í gær 2 kg af kartöflum. Þegar ég kom með þær heim sá ég að kartöflurnar voru bæði illa þurrkaðar og ó- hreinar. ÉG GERÐI það að gamni mínu að þvo þær og þurrka þær, en siðan vóg ég þær og þá vant- aði 300 grömm upp á að þær væru 2 kíló Auk þess höfðu þær verið illa teknar upp, skófl unum stungið í þær og raufin fuli af mold, en skemmd myr.d- ast djúpt inn. ’Ég hringdi til kaupmannsins og sagði honum frá þessu! Hann sagð, að sjálf- sagt væri að bæta mér þetta upp Ég spurði: Hver ber skað- ann? Hann svaraði: Vitanlega ber ég skaðann. ÞETTA þykir mér undarlegt. Grænmetisverzlunin tekur við framleiðslunn af framleiðend- um Henni ber að skoða vöruna sem hún kaupir, því að hún á að bera ábyrgð gagnvart þeim sem hún selur, en kaupmaður- inn síðan gagnvart þei v, som kaupir af honum. ÉG ÆTLA mér ekki að þoia svona lagað framar. Ég er i'é- lagi í Neytendasamtökunum og ég fer með næstu kartöflur, sem ég kaupi og eru svona, bei’it tii þeirra Það getur orðið ti; þess að knýja kaupmenn til þess að leita réttar síns gagnvart Græn metisverzluninni, en það getur orðið til þess, að hún skoði huga sinn tvisvar áður en hún kaup- ir ónýta framleiðslu. Það er ekki meiningin að kaupa mold og skít, heldur jarðarávöxt til manneldis". AKURNESINGUR skrifar: — „Mér þætti vænt um ef þú vild- ; ir minnast á eftirfarandi í pistli iþínum: Akraborg er gott skip og samgöngur hennar nauðsyn- ! legar og að flestu ágætar_ En einn slæmur galli, sem auðvelí er að lagfæra, er á þeim. Skip- inu er alltaf lagt fremst við hafn argarðinn hér á Akranesi, og veldur það því, að farþegar verða að ganga langan veg frá skipinu og að því. ÞETTA er alger óþarfi og £ raun og veru ekkert annað en. sérvizka af skipstjórninni Garð urinn er nær alltaf auður og næglegt rúm fyrir skipið miklu ofar. Þetta veldur sérstaklega miklum erfiðleikum hjá öldruðu fólki, konum, sem eru með börn og öðrum, sem til dæmis eru með mikinn farangur. Ég skorai hér með á útgerðarstjórn Akra- borgar að breyta um til hagræð- is fyrir farþegana“. Hannes á liorninu. I Fl KEPPIR IVIÐ S.A.S. j! FAXI, Icnattspyrbulíð I; Flugfélags íslands hélt j| utan í gær, Liðið fer til |! Osló, þar sem það kepp- !j ir við knattspyrnulið frá j! SAS. Þetta er í 3ja sinn !> á nokkrum árum, að lið jj félagsins fer utan til ;! keppni. IVWWMMMWWWWWWW Frá Ferðafé- lagi íslands FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ráðgerir tvær skemmtiferðir um næsiu helgi á laugardag í Þórsmörk á sunnudag gönguför á Hengil. Upplýs- ingar í skrifstofu félagsins, símar 19533 og 11798. •'J. ..14. sépt. 1961 — Alþýðnblaðið

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.