Alþýðublaðið - 14.09.1961, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 14.09.1961, Blaðsíða 7
, < < »rS>ri,í f »1 MK|) SÍÐASTLIÐIÐ vor síoín- uðu nokkrir úhugamenn um kornrækt íélag með sér, me® það fyrir augum að hefja k<ynrækt á Rangársöntlum. Voru framkvæmdir hafnar strax í vor og sáð byggi og höfrum í 110 hektara lands og mun það vera stærsti sam felldi akur hérlendis og stærri en akrar almennt á Norður- löndum. Árangurinn hefur orðið það góður að ekki verð ur um villzt, að bygg nær auðveldlega fullum þroska hérlendis. Forustumenn hlutafélagsins Hafrafell skýrðu Alþýðnblað- inu svo frá að félagið hefði verið stofnað á s. 1. vori. — Aflaði það sér jarðnæðis á Rangársöndum, en akurinn er í landi þriggja jarða, Gelding arlækjar, Helluvaðs og Ketil húshaga# Aðalhvatamaðurinn að stofnun félagsins var hinn kunni atorkumaður Skúli Thorarensen bóndi og útgerð armaður. Félagið hefur kom- ið sér, upp nokkrum vélakosti og má þar nefna fullkominn sláttuþreskjara, kornþurkara, sáningarvél, áburðardreifara og ýmsar aðrar vélar til rekst ursins, en það er Globus h.f. í Reykjavík, sem heíur flutt tækin inn_ Á Helluvaði hefur félagið komið sér upp ágætri aðstöðu til þurkunar og ann- arrar vinnslu á korninu. Eigendur Hafrafells telja mikla markaðsmöguleika fyr hvort innlend framleiðsla fær að njóta scmu aðstöðu. Innflutt korn er yfirleitt af verri gæðaflokkum, heldur en það, sem ræktað hefur, verið hér og er það gjarnan orðið nokkurra ára gamalt, þegar það er fiutt inn_ Er rýrnun þá orðin allt að því 30%. Er það því sangirniskrafa korn- ræktarbænda að innlendri og erlendri framleiðslu sé gert jafnt undir höfði. Bústjóri kornræktarinnar hefur verið ráðinn Magnús Pétursson, en hann hefur dvalizt lengi erlendis og kynnt sér kornrækt. Auk þess hefur félagið notið góðr ar aðstoðar Klemenzar Kristj ánssonar tilraunastjóra á Sám stöðum og Páls Sveinssono.r ir korn hérlendis eins og sjá má á því að heildarframleiðsl an hérlendis, sem mun vera á 400 hektara, nemur aðeins 5% af ársnotkun innanlands. Innflutt korn nýtur styrks, sem nemur 16—17%, en for- ystumenn Hafrafells sögðu, að ekkert lægi fyrir um það, Grein og myndir: Gísli Gestsson í Gunnarsholti. Magnús sagði, að sandur hentaði einkar vel til kornræktar, þar sem hann bindur mikinn hita í sér. Mikill framkvæmdahugur er í eigendum Hafrafells, — hafa þeir í hyggju að þrefálda akurlendið að vori, ef upp- skeran nú í haust verður a '< vonum, en iandrýmið er nóg, þar sem Rangársandar eru. Má líkl’egt. ttölja að iinnan fárra ára ver.ði' sandarnir orðnir gróið iand. Stjórn Hafrafells skipa þessir menn: Árni Gestsson formaður, Ásgeir Bjarnason, Pétur Pétursson, Skúli Thor- arensen og Þórður Hjörleifs- son Framkvæmdastjórar eru þeir Árni Gestsson og Ásgeir Bjarnason. — 14. sepl. 1961 7 Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.