Alþýðublaðið - 07.11.1961, Page 1
REGIÐ I KVÖLD
Afgreiðsla okkar í Alþýðuhú sinu er opin til klukkan 10
tWWVWWWWWMMWMWWtWWWWMMWWWWWWWiWIMWWVWWMWWMMWW
42. ár. — Þriðjudag'ur 7. nóv. 1961. — 250. tbl.
✓
SÖGULEGUR leikur fór
fram á Keflavíkurflug-
velli á sunnudag á milli
FH og Efterslægten. Þá
tapaði meistaraflokkur F
H fyrsta Ieik sínum í tvö
ár a.m.k.
Leikurinn var mjög
fjörugur og jafn. Mátti
ekki á milli sjá allt fram
á síðustu mínútu hver úr-
slitin yrðu. Danir tryggðu
sér sigurinn, 17 ; 15.
Mikil harka var í leikn-
um og nokkur átök, sem
oft vill veroa, er sterkir
mætast. Myndin sýnir
einn FH piltinn bregða
fæti fyrir einn Danann,
sem fleytir kerlingar á
gólfinu.
STÓRBRUNI varð í Kópavogi
í gærkvöldi. Brunnu til kaldra
kola byggingar tilheyrandi
frystihúsinu á Kársnesi, mikið
af skreið, veiðarfærum o. fl.,
þannig að tjónið nemur hundr-
uðum þúsunda. ef ekkj millj-
ónum.
Það .var kl. 23.04 í gær-
kvöld', að hringt var á slökkvi
stöðina í Reykjavík og tilkynnt
um eldinn. Vélstjóri i frysti-
húsinu hafði orð ð var við
MMMWWWWMWWMMWi
SIDUSTU FRETTIR:
Frysti
húsið
slapp
UM kl. 12.30 í nótt hafði
slökkviliðinu tekizt að ná
yf'rhöndinni yfir eldinum
og slapp frystihúsið.
Byggingarnar, sem mest.
ur eldur var í, voru þá
fallnar í rúst, brunnar til
kaldra kola.
Olíutankurinn, sem seg.
ir frá í fréttinm, sprakk
ekki.
Púizt var við, að bruna
verð r yrðu alllengx enn á
staðnum að dæla á bruna
rústirnar, < n sem fvrr seg
ir, var eldurinn .yíirbugað
ur upp úr klukkan hálf-
eitt í nótt.
iMHtMMMMWMMMMHHMV
brunalykt og gerði hann þegar
aðvart, fyrst slökkviliðinu, en
síðan forstjóra fyr.'rtækisins,
Karli Bjarnasyni. |
Mestur var eldurinn í svo-
kölluðu salthúsi, sem er áfast
við þurrkhús og netageymslur.
Voru þær byggingar orðnar al
elda fjórum mínútum eft r að
vólstjórinn fann brunalyktina
og logaði upp úr þakinu áður
en slökkvilið ð kom á vettvang.
Allt slökkvilið Reykjavíkur
og Reykjavíkurflugvallar fór á
staðinn og varalið var bcðað,
en . slökkvil'ðsstjóri sijórnaði
sjálfur aðgerðum. 35 manns
eru .fastir í slökkviliðinu í
Reykjavík og 20—30 varaliðs-
menn, sem nær allir munu hafa
mætt til starfa. Þrír bílar voru
frá sllökkviliðinu í Reykjavík
og tveir frá Reykjavíkurflug-
vell:.
Sjálfboðal ðar voru fjöímarg
ir á eldstaðnum og stöifuðu
þeir ásamt brunavörðum vi'ð að
reyna að ná einhverju af veið
arfærum út úr geymslunni. Erf
iðle'kar voru á slökkvistarfinu
vegna vatnsskorts, þar sem
hvergi var .nærrl nógu við
vatnsæð (mest 114 tomma) í
Kópavogi, og. varð að sækja
allt vatn til Reykjavkur. S'ðar
náðist þó vatn úr læk einum
þar skammt frá.
í þurrkhúsi var mikið magn
af nýrri og góðri skreið og log
aði glatt í lienni um miðnætti.
I Þá var í geymslu afar mikið af
I nýjum veiðarfærum, netum o.
jfl. en einhverju mun hafa tek
Jizt að bjarga af þeim.
I Stór olíutankur er við enda
Framhald á 15. síðu.
6. nóv.
Associated Press fréttastof-
an hefur það eftir bandarísku
veðurstofunni í Washington,
að helský Rússa, er myndað-
ist þegar þeir sprengdu hina
rúmlega 50 megatonna kjarna
sprengju sína yfir Novaja Sc-
mlja fyrir nokkru, hafi í dag
verið yfir Norðurlöndum á'
svæðinu frá norðurodda
Skandinavíuskaga norður til j
Skotlands og suðurodda Græn1
lands og yfir íslandi. Vindur.
er nú vestlægur og má ætla
að skýið berist, ef stefna þess
breytist ekki, austur til Sov-
étríkianna. fari vfir Síberíu og
yfir Leningrad, en norðan við
Moskvu.
Helskýið kemur frá Kyrra-
hafi, Kanada og Alaska og er
nú að ljúka fyrsta hring sín-
um um jörðu. Hefur ferðin
tekið eina viku, eða þar uin
bil.