Alþýðublaðið - 25.02.1962, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 25.02.1962, Blaðsíða 2
■v ■Jistjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Grðndal. — Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson. — Simar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasimi 14 906. — ASsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu 6—10. — Áskriftargjald kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef- andi: Alþýðufiokkurinn. — Hvað segja óbreyttir Framsóknarmenn ? TÍMINN hefur verið að myndast við það öðru fhjverju undanfarið að skamma kommúnista, þar e'S óbreyttum flokksmönnum Framsóknar var farið að ofbjóða kommúnistaþjónkun forustu Framsóknarflokksins. En hafi . óbreyttir Fram- sóknarmenn verið komnir á þá skoðun, að Fram- sókn væri andvíg algerri samstöðu með kommún- istum, munu þeir hafa komizt að hinu gagnstæða, er þeir lásu Tímann í gær. Þá lét málgagn Fram- sóknarflokksins sig hafa það, að mæla með fram- boðslista kommúnista bæði í Iðju og Trésmiðafé- laginu. í mörgum verkalý'Ssfélögum hafa óbreytt- ir framsóknarmenn stutt lýðræðissinna, enda er Framsóknarflokkurinn í eðli sínu lýðræðisflokk- ur, enda þótt hann hafi leiðzt út á þá óheillabraut nú að styðja kommúnista. Alþýðublaðinu er einnig kunnugt um það, að mikillar óánægju með komm- únistaþjónkun Framsóknar gætir í Iðju og Tré- smiðafélaginu. Þegar Iðja var unnin úr höndum kommúnista fyrir nokkrum árum studdu Fram- sóknarmenn lista lýðræðissinna. En nú skipar Tíminn því sama fólki er þá stóð með lýðræðis- sfnnum að kjósa kommúnista. Tíminn og forusta Framsóknarflokksins getur ekki sýnt sínu fólki meiri lítilsvirðingu. Verður fróðlegt að sjá hvaða afstöðu aðal- fundur miðstjórnar Framsóknarflokksins tekur til ^þessara mála. Svo virðist af Tímanum í gær sem miðstjórn Framsóknar leggi blessun sína yfir stuðninginn við lista kommúnista í Iðju og Tré- smiðafélaginu. En vitað er, að í liði Framsóknar er mikill ágreiningur um það, hvort rétt sé af Framsc/knarflokknum að hafa samstöðu með kom- múnistum eða ékki. Það eina er komið getur Fram sóknarflokknum á rétta braut er að hinir óbreyttu flokksmenn mótmæli og neiti algerlega kommún- istaþjónkun forustuliðsins. Og það geta þeir gert m. a. nú í kosningunum í Iðju og Trésmiðafélag- inu með því að kjósa lista lýðræðissinna. FKAMREIÐSLUMENN! AÐALFUND Félags framreiðslumanna verður haldinn miðviku- daginn 7. marz kl. 5 e. h. í Nausti. DAGSKRÁ: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lagabreytingar. Stjórnin. 2 25. febr. 1962 — Alþýðublaðið QOGD AUTO UNION DKW á staðnum Komið Skoðið - Reynið VERÐ FRÁ KR. 120,000,00. SKÚLAGATA 59 ÓLGAÍ FRAMSÓKN Framhald aí 1. síðu. flokkunum í utanríkismálum og styðja bá í landhelgismál- inu. Þegar Hermann lætur af störfum, styrkist þcssi and- stöðuhópur. Völd manna eins og Ólafs Jóhannessonar, Jóns Skaftasonar, Jóhannesar Elías sonar, Björns Fr. Björnssonar, Tómasar Árnasonar og fleiri slíkra verða meiri en áður. Hins vegar er breytingin mikið áfall fyrir Þórarin Þór- arinsson og aðra framsóknar komma. Hermann hefur verið þeirra haldreipi h i n g a ð til. Raunar höfðu þessir menn beð ið ósigur þegar í haust. Þá voru haldnar miklar umræð ur í þingflokki framsóknar ura stefnu flokksins og sérstaklega flokksblaðsins. Reyndust þá að eins þrír menn standa með kommalínu Tímans: Hermann, Þórarinn og Sigurvin Einars- son. Allir hinir þingmennirnir, þar á meðal Eysteinn, tóku af stöðu gegn kommadekrinu. Enda þótt suma yngri menn ina dreymi um að losna líka við Eystein, er hann enn mjög fastur í sessi. Hann hefur mikil áhrif á Helga Bergs, sem nú verður væntanlega ritari flokks ins, en Helgi hefur nýlega ver ið skipaður framkvæmdastjóri iðnrekadeildar SÍS. Fróðlegt verður að sjá þróun mála innan Framsóknarflokks ins á næstu mánuðum og árum. Eftir 30 ár er kominn hreyfing á hlutina. Það getur ýmislegt átt gftir að gerast. HVAÐ er að gerast í Fram- sóknarflokknum, spyrja menn í tilefni af þeirri fregn, að Her- mann Jónasson ekki gefur kost á sér til endurkjörs sem formaður flokksins. ___________ l'C Sjóvinnuskóli Framhald af 16. síðu. bært, að lögin verði endurskoð uð um slýrimannaskólann, — vegna mikilla breytinga, sem orðið hafa á búnaði skipa, t.d. siglingatækjum, fiskileitartækj um og meðferð þeirra. Þá er rætt um nauðsyn þess, að sérstökum sjóvinnuskóla verði komið á fót, þar sem þýð ingarmikið sé að meðferð sjáv arafurða verði sem bezt. Bent er á hið mikla starf, er skipstjórnarmennirnir Asgrím- ur Björnsson, Hörður Þorsteins son og Einar Guðmnndsson hafa unnið í sambandi við sjó vinnunámskeið og þann mikla árangur, sem hlotizt hefur af því starfi. Þrjú slys Framhald af 16. síðu. Kastaðist maðurinn í götuna, ‘hruflaðist oS skarst á höfði og hlaut slæmt mar á fætur. — Bifreiðarstjórinn, isem ck á hann, kvaðst ekkj hafa séð. hann fyrr en. hann bar í ljóa geisla bifreiðarinnar. Rétt fyrir klukkan nfu j gærmorgun, var bifreig á leið suður Reykjanesbrautina og er hún var við Þóroddsstaði hjólaði lítill drengur skyndi- lega fyrir ihana. Töluverð hálka var 'Og rann bifreiðin nokkurn spöl, er bílstjói-inn rpyndi að stöðva, og lenti dreng urirn framan undir henni. — Höggið var mikið og mun hann hafa dregizt nokkurn spöl með bílnum. Bifreiðin dældaðist við höggið, en drengurinji slapp furðu lítið meiddur — meg nokk-ar skrámur í andlitinu. Bíll'nn snérist og lenti út af vegin- um. Á Miklubrautinni varð svo slys um klukkustund síðar, er kona, sem var á gangi yfir göt una lenti fyrir bifreið er kast aði henni upp á eyjuna sem er milli akbrautanna. Féll konan illa og handleggsbrotnaði. Tölu verð hálka var, og rann bifreið in hálf stjórnlaus eftir að öku maðurinn hemlaði.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.